Ekkert að marka stjórnmálamenn.

Frelsi einstaklingsins til að ráða sínum málum sjálfur afla sér tekna og verja þeim að vildi á ekki að ljúka þegar lífeyrisaldri er náð.“ Þetta voru kjör orð Bjarna Benediktssonar á sínum tíma. Hver var ávinningurinn? Ekki leið á löngu þar til hann áttaði sig á því að þrátt fyrir að launin næmu 80.000. á mánuði, jukust ráðstöfunartekjurnar ekki nema um 4.000 krónur á viku. Að hans sögn manns sem hann hitti og var kominn yfir sjötugs. Þar komu til skerðingar og hann sagði sinni vinnu upp á þeirri ástæðu að þetta borgaði sig ekki, vegna kostnaðar við að ferðast frá og til vinnu. Enn honum sárnaði virðingarleysið sem fólst í því að skerða tekjur hans með þessum hætti og hvatinn til að vinna gufaði upp. Takið eftir gufaði upp vegna skerðingar. Ástæðan er sú að árið 2009 voru tekjumöguleikar aldraða skerir með því að afnema rétt fólks yfir sjötugs til að vinna fyrir launum sem þessum án þess að það hefði áhrif á bætur. Eitt er víst ef langt er gengið í skerðingum upplifir fólk hvorki tilgang né samgirni í sínum málefnum. Tekjutengingar vegna maka og fjármagnstekna hafa verið stórauknar og grunnlífeyrir hefur verið skertur og stór hópur sem áður fékk slíkan lífeyri gerir það ekki í dag. Bætur hafa ekki haldið verðlægi síðan 2009. ,,Hvað sagði Sjálfstæðisflokkurinn á þeim tíma afturkalla þá skerðingu sem eldri borgarar og öryrkjar urðu fyrir 1 júlí 2009. Skerðing vegna greiðslna á ellilífeyri, krónu fyrir krónu verður hætt og hann leiðréttur til samræmis við þær hækkanir sem orðið hafa á lægstu launum síðan í ársbyrjun 2009. Sjálfstæðisflokkurinn mun bæta stöðu aldraða. Draga aftur úr tekjutengingum og hjálpa fólki til sjálfhjálpar með því að leyfa öllum yfir 70 ára aldri að afla tekna á skerðingar. Hækka að nýju lífeyrisgreiðslur, tryggja að aldraðir á dvalarheimilum haldi fjárhagslegu sjálfstæði og eyði þeirri mismunun sem birst hefur í aðgerðum stjórnvalda undafarin ár. Nú eru liðinn rúmlega 6 ár síðan,loforð hafa verið gefinn út af öllum stjórnmálaflokkum saman ber Framsóknarflokki sem er ekkert undaskilinn í þessum hörmulega ástandi þegar erfiðasti tími er að ganga í garð og fólk sem er á smánarlaunum, þarf að leita hjálpar hjá fjölskylduhjálp, kirkjunni og öðru góðu fólki. Sumir eiga hvergi heima fá lánað hjólhýsi til að geta lifað af, því greiðslur duga ekki fyrir framfærslu. Er ekki nóg komið af loforða listum og svikum stjórnmálamanna.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband