Þökk sé Gylfa Sigfússyni fyrir frábært starf á vegum Eimskipafélags Íslands.

Það er ekki á hverjum degi þegar starfsmenn Eimskipafélag Íslands kveðja forstjóra sinn og slíkan persónuleika að guð náð. Síðasti starfsdagur, Gylfa Sigfússonar er í dag 31 desember 2018 eftir rúm 10 ár í mjög erfiðu starfi sem forstjóri og allri þeirri vinnu sem hann hefur lagt á sig dag og nótt að styrkja og efla Eimskipafélagið að nýju eftir hrun. Eftir að góðu, gömlu og traustu fyrirtæki óskabarn þjóðarinnar var rænt að nóttu til í skjóli útveggja sem ekki neinn máti vita af, þeim vítaverðum gjörðum sem voru framkvæmdar af vanstilltum félögum sem gerðu ekkert annað enn að taka yfir ýmiss fyrirtæki yfir eins og Eimskip sem lítið dæmi um óheiðarleika. Búta það síðan niður í parta. Yfirtóku áður Landsbankann sem síðan fór á höfuðið og, tugi miljarða fluttir frá Landsbanka Íslands yfir í Straums Burðarás fjárfestingarbanka , sá banki var líka gerður upp og allir sem áttu fé hjá þessum félögum töpuðu því. Þvílíkir glæfraspilarar sem ég hef orðið vitni af og aldrei kynnst þvílíkum ömurlegum fjár glæframönnum, á sama tíma á hann tugi miljarða í sjóðum hugsanlega í skattaskjólum og segist vera búinn að greiða allar sínar skuldir. Slíkur er málflutningur hans sjálfs.

Gylfi Sigfússon tók við Eimskipafélaginu sem forstjóri árið 2008 þegar félagið var komið í gjörgæslu Landsbanka Íslands og átti ekki fyrir daglegum rekstri. Það var nefnilega Gylfi Sigfússon sem hafði fundi með starfsmönnum í hverri viku og lét starfsmenn vita um stöðu mála. Mikil drengur þar á ferð, enda þegar Gylfi bað starfsmenn að spara þá var það gert af frjálsum og fúsum vilja, meira að segja engu var hent heldur margnotaður pappír, slíkur var samtaka máttur allra starfsmanna. Það vill gleymast hjá fólki þegar maður eins og Gylfi sem hefur víðtæka reynslu og þekkingu á viðskiptum erlendis og hér heima, það var hann sem þekkti góða menn í USA sem hann fékk þá til samtarfs með mikið fé og kom Eimskipafélaginu á réttu brautina á ný.

Í tíð Gylfa Sigfússonar hefur félagið stækkað og stækkað búið að kaupa til baka þær eignir sem voru seldar fyrir skuldir og keyptar til baka fyrir tugi miljóna, ef ekki miljarða króna, endurnýjun á nýjum tækjum fyrir miljarða 3 ný skip í smíðum og þau munu verða þau stærstu í sögu Eimskipafélagsins. Nýir kranar og einn sá stærsti á leiðinni og verður settur upp eftir áramót í Sundahöfn. Slíkur er krafturinn hjá Eimskipafélaginu undir stjórn Gylfa Sigfússonar. Samt er þessi árangur ekki nægur fyrir hluthafa, þeir vilja meira og meira fé til sín slík er græðgi hluthafa og þeim til vansa. Enn svona er lífið á markaði og spurning hjá Eimskip hvort ekki væri betra að gera upp við hluthafa og hætta með að setja félagið á markað á meðan fyrirtækið er að stækka. 

Nú líður af starfslokum hjá frábærum einstakling sem hefur sýnt það og sannað að hann hefur verið stoð og stytta okkar Eimskipafélags manna og hluthafa. Staðið sig með glæsibrag sem eftir er tekið. Hann á heiðarskilið fyrir sín störf á rúmlega 10 ára ferli í ólgu sjó. Topp forstjóri sem margir eigendur fyrirtækja vilja fá sem næsta forstjóra.

Við kveðjum þig með tár í vöngum. Njóttu nú þess að vera þú sjálfur á næstu árum með þinni elskulegu og glæsilegri konu og börnum ykkar. Eitt er víst slíkur forstjóri eins og Gylfi Sigfússon er vanfundinn persónuleiki. Gleðilegt ár og við þökkum þér samveruna á liðnum árum.

Jóhann Páll Símonarson. 

 


Þyrlusveit landhelgisgæslunar og björgunarmenn. Menn ársins árið 2018.

Undanfarið hafa verið skoðunar kannanir á útvarpstöðvum landsmanna á Manni ársins. Landinn er svo klikkaður í sínum skoðunum og niðurstöðum varðandi hver eigi að vera í raun Maður ársins?. Upp í huga mínum hlýtur það að vera snarklikkaða fólks sem telur Báru á Klausturbar hafa unnið þrekvirki á hinum blauta Klausturbars, þar sem þingmenn gerðu sér glaðan dag,og mat þeirra að Bára á Klaustur hafi unnið þrekvirki að þeirra mati. Ég spyr fyrir hvað hefur þessi Bára á Klausturbar unnið fyrir, ekki neitt að mínu mati?, nema að vera hugsanlegur lögbrjótur við lög landsins? eigum við sem þjóð að verðlauna slíka lögbrjóta? Nei við skulum líta fyrst í okkar barm áður enn við dæmum aðra.

Það sem skiptir máli er þau þrekvirki að bjarga mannslífum og fólki í bráðri hættu um líf og limi. Hugsið ykkur nú ef þið sem spólið til baka. Hvað skyldi þessir aðilar sannkallað björgunarfólk sem bjargaði illa slasaðu fólki við Núpsvötn fyrir stuttu og kom þeim til hjálpar og þeim sem lifðu þetta hörmulega slys af. Þar voru 3 þyrlur notaðar við verkið, 2 að flytja fólk af slys stað og önnur í að leiðbeina.

Annað tilvik þegar m/s Fjordvík strandaði á leið inn til Helguvíkur í vondu veðri og leiðinda sjólagi þegar 15 mönnum var bjargað úr sjávarháska og sigmaður þyrlunar og þyrluflugmenn unnu þrekvirki að bjarga mannslífum. Ekki nóg með það sigmaður þyrlunar Guðmundur Ragnar Magnússon rifbeinsbrotnaði þegar nær öll rifbein brotnuðu þegar hann skal með síðuna á stálkassa í rokinu þegar hann seig niður til að bjarga mannslífum og stjórnaði aðgerðum á meðan hann var með brotin rifbeins, þrátt fyrir mikinn sársauka og kvalir innvortis.

Jú hann lét sig hafa það sama hvað það kostaði líf hans sjálfs. öllum sjómönnum og hafnarlóðs var bjargað í þyrluna samtals 15 mönnum sem áttu sitt líf undir þessum frábæru þyrluflugmönnum og sigmanni sem stofnaði lífi sínu í hættu ásamt þyrluflugmönnum sem sýndu það í verki eina ferðina enn að þeir eru frábærir og allt það björgunar fólk sem kemur að þessum málum. Ef það er ekki afrek ársins að bjarga fólki úr sjávarháska, slysum, veikindum, eða öðru. Þá er illa farið fyrir þá sem vita ekki eða hafa þurft að leita eftir slíkri hjálp. Kjósum þyrluflugmenn, Sigmenn og björgunarfólk menn ársins 2018.


mbl.is Bjargaði öllum með brotin rifbein
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Milla Ósk Magnúsdóttir segir ekki rétt frá.

Það er slæmt að fara ekki rétt með fréttir þegar þær eru sagðar. Nú vill svo vel til að auglýstur aðalfundur Sjómannafélags Íslands fór fram kl 17 í gær þar sem mikill ólga og skítkast frá örfáum stuðningsmönnum Heiðveigar Maríu Einarsdóttir voru á þessum fundi. Fréttakona á RÚV Milla Ósk Magnúsdóttir sagði að fundi hafi verið slitið vegna mikill ósættis,, Hið rétt er að fundur fór fram með réttum hætti og samkvæmt dagskrá fundarins. Hinsvegar varð fundarstjóri ítrekað að gera alvarlegar áminningar við suma fundarmenn á vegum Heiðveigar sem voru undir áhrifum áfengis og voru á bar á Grand Hóteli þar á meðal var Heiðveig María Einarsdóttir að gera sér glaðan dag. 

Það var fyrirfram ákveðið hjá félögum Heiðveigar að þeir ætluðu að gera usla á þessum auglýsta aðalfundi, enn þeim tók það ekki. Ég hef sjaldan orði vitni af slíku framferði á fundum, undir þessum kringum stæðum hefði þeim verið vísað á dyr vegna framkomu þeirra. Enn fundarstjóri var virkilega prúður og sat á sér að vísa þeim á dyr.

Gjaldkeri félagsins sýndi framá ef við værum í félagasamtökum sem kalla sig ASÍ þá væru þessi gjöld tugi miljóna króna. Vitað er að Efling Stéttafélag borgar um 80 miljónir króna á ári, VR það sama og önnur félög minna fróðlegt efni sem vert er að taka fyrir, allt á kostnað félaga. Gert var athugasemd við laun starfsmanna, skrifstofu stúlka er ekki á góðum launum, fv formaður sem hefur verið á milli tannanna á stuðningsmönnum Heiðveigar var með minni laun enn farmenn. Enn félagið er vel rekið og er til sóma fyrir alla félaga Sjómannafélags Íslands

Í lok fundar undir málefnum önnur mál,, Þá hvað ég mér hljóðs eins og dagskrá var boðuð. Ég byrjaði á að útskýra fyrir fundarmönnum framferði Heiðveigar og hvernig hún hefur hagað sér í gegnum tíðina með rökum,, Ég var rétt byrjaður þegar fundarstjóri tók eftir að einn hugsanlega af klaustursmönnum var byrjaður að taka upp ræðu mína, því það fór virkilega fyrir brjóstið á þeim þær upplýsingar sem ég hafði undir höndum, enda voru frammíköll ítrekuð, þar til að fundarstjóri stöðvaði ræðu mína vegna frami kalla og upptöku sem er vanvirðing við þann sem tekur til máls. Sem ég gerði, enn sagði að ég myndi koma mínu orðum á farmfæri með skrifum á næstu dögum.

Enn gleði hélt áfram hjá stuðningsmönnum Heiðveigar á barnum á Hóteli Grand við Sigtúni í Reykjavík.


Aðalfundur Sjómannafélags Íslands verður haldin í dag kl 17. að Grand Hótel

Ágættu sjómenn nú er komið að því að stærsti fundur með okkur öllum félagsmönnum verður haldinn í dag á Grand Hótel í skugga leiðinda, og alvarlega ásakana sem verður ekki farir úti það nánar fyrr enn þessum fundi er lokið. Enn ég mun tjá mig hinsvegar um þau gögn sem ég hef undir höndum á fundinum á hendur Heiðveigu Maríu Einarsdóttur því ég tel það eigi heima innan okkar raða og ennfremur til upplýsingar fyrst hún kaus að fara fram með þeim glannaskap og saka ritara um fölsun á fundagerðum, og slíta blaðsíður úr fundagerðabók sem lítið dæmi á þeim orða flaumi sem hefur verið við hafður.

Sagan endalausa hefur farið úr öllum böndum þar sem þáttastjórnandinn á Útvarpi Sögu Gunnar Smári Egilsson sem allir þekkja mæta vel af hans viðskiptum og þeim fögru sögum af honum sjálfum eru honum til vansa. Enn heldur þessi blanki blaðaútgefandi áfram og nú var hann kominn allt í einu inn með útvarpsþátt á Útvarpi Sögu með viðmælenda sem hann hringdi stöðugt í vikulega út á sjó til að ausa aur yfir Sjómannafélag íslands með Heiðveigu Maríu Einarsdóttur sér við hlið. Hugsið ykkur heila útvarpstöð sjálfsagt frítt hjá Heiðveigu Maríu Einarsdóttur Gunnar Smári Egilsson gekk svo langt að kalla okkur hálfgerða Bastharða, enn gleymdi sjálfum sér þegar hann greiddi ekki félögum sínum laun, það voru félagar í blaðamannastétt sem ekki fengu greitt laun sín.

Sagan af Heiðveigu Maríu Einarsdóttir er sorgarsaga og mig undrar hvernig hún getur verið með lögmann á launum til að koma sínum málum á framfæri. Það væri gaman að vita hvar þeir aurar koma? Enn sagan sem ég hef undir höndum, bendir til þess að hún ætti að vera virkilega blönk eins og Gunnar Smári Egilsson og sagan lík af þeim báðum. Enn Sjómenn munið að framvísa félagskírteininu sem þið hafið undir höndum, til þess að þessi fundur sé löglegur verðum við félagsmenn að mæta, og taka til máls um stöðu mála. Góðar stundir sjáumst kl 17 í dag á Grand Hótel. 


Hver á að taka við af Degi B Eggertssyni?

Það er ekki ábyrg stefna að krefjast afsagnar þegar ekki er ljóst hvaða meiri hluti á að taka við. Viðreisn getur ekki unnið með Sjálfstæðismönnum, Vinstri græn geta það ekki, Samfylking getur það ekki, flokkur Sósalista geta það ekki, Píratar geta það ekki Hinsvegar vinnur Miðflokkurinn með Sjálfstæðismönnum og flokkur Fólksins. Ef Dagur myndi segja af sér þá yrðu algjör upplausn í borgarstjórn Reykjavíkurborgar nema að meirihluti þeirra sem nú ráða stjórn Reykjavíkurborgar myndu samþykkja sín á milli annað fyrirkomulag. Hinsvegar gætu Viðreisn eða Píratar tekið við keflinu með samþykki Samfylkingar með sína 13 fulltrúa að auki yfir 31 þúsund manns sem stuttu þessa flokka til starfa í Reykjavík  á móti 10 fulltrúum Sjálfstæðismanna, Miðflokksins og flokki Fólksins.Voru saman lagt með rúmlega 24 þúsund atkvæði,, mismunur nær 7,000 þúsund atkvæði sem munar um, og er talsvert.Það þýðir ekkert að ropa og senda ályktanir sem ekki neinn tekur mark á.Fólki hefur kosið þennan meirihluta til starfa og vill hafa hann. Það segja atkvæðinn sem þessir flokkar fengu í síðustu kosningum. Hinsvegar er ekki gott hvað þá heldur að fara illa með fé og kenna öðrum um svínaríið sem hefur þrifist lengi hjá Reykjavíkurborg. Eyþór nokkur Arnalds segir að Dagur B Eggertsson beri ábyrgð á braggamálinu fræga sem kostaði tugi miljóna.
Enn Eyþór Arnalds sem kallar hæðst minnist ekki einu sinni á sínar gjörðir að samþykkja lokun Laugavegar og flæma alla verslun burtu og þar með atvinnutækifæri tuga fólks. Þetta gerði Eyþór Arnalds og stóð með meirihlutanum að eyðileggja lífsværi fólks sem hefur lagt allt sitt undir. Ég segi tekur nokkur mark á slíku blaðri að reyna að ropa sem hæðst. Enda fékk flokkur hans ekki nema rúm 30% atkvæða litlu meira enn Samfylking með rúm 25%.

Eitt er víst þessi meirihluti heldur velli og mun svo verða áfram. Enn þegar kemur að næstu kosningum þá munu menn muna þann fantaskap sem þeir notuð gegn kaupmönnum við Laugarveg og hótel eigendur eru á sama meiði bandbrálaðir yfir lokun Laugavegar því hótelgestir þurfa að fara langa leiðir með töskur sínar og þeir sem eiga erfitt með gang komast heldur ekki. Það sjá það allir þetta ástand gengur ekki upp. Af hverju eru fjölmiðlar ekki að fjalla um lokun Laugavegar? Þora þeir ekki því? Eða er búið að stinga mola upp í þá? Eyþór Arnalds og meiri hluti í Reykjavík fólkið er ekki búið að gleyma ykkar gjörðum og fantaskap sem þið hafið sýnt kaupmömmum við Laugarveg.  


mbl.is Eyþór: Dagur þarf að axla ábyrgð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hin spilta Heiðveig María Einarsdóttir.

Það er gott að hafa sérstaka aðkomu að Vísi og Stöð 2 með fréttir hvað hún hefur fram að færa. Hún hefur til dæmis aldrei verið spurð út í stöðu hennar og framferði á undaförnum árum, það veit ég og hef undur höndum skjöl sem staðfesta það. Ég hef verið beðinn að skrifa grein, enn ég hef viljað hlífa henni við þá sögu. Enn ykkur til staðfestingar þá mun ég upplýsa það á aðalfundi Sjómannafélags Íslands þann 27 desember 2018 kl 17 þegar ég mun biðja um orðið og segja sögu sem margir myndu fá í magann að heyra slíka sögu, því hún er ekki glæsileg og hvað þá heldur að vera formaður Sjómannafélags Íslands. Enn það eru að koma Jól enn á milli Jóla og Ný árs verður ömurlega sagan sögð um konu sem sakar aðra um blekkingar og falsanir. Henni væri nær að upplýsa stöðu hennar að Hagsýn bókhald og rekstrar ehf sem var stofnað og skráð 13.02.2014 og hver sé staðan á því máli og miklu meira sem ég hef undir höndum. Góðar stundir í bili 


mbl.is Kröfum félagsins hafnað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Verið ítrekað að flæma burtu verslun við Laugarveg.

Nú eru uppi hörmungar ástand þegar reynt er ítrekað að flæma burtu verslun við Laugaveg, það segir hinn þjóðkunni verslunarmaður Sverris Bergmann sem er búinn að eyða sinni ævi við verslun við Laugarveg. Hugsið ykkur frá árinu 1965 þegar hann hóf störf og margir miklu lengra eins og Vinnufatabúðin og fleiri gamlir kaupmenn eru í hættu að gefast upp af þessari ungliðadeild hryðjuverka fólks sem nú stjórnar Reykjavíkurborg er í raun að ganga frá verslunarrekstri yfir hálfa öld og nú hefur Sverrir fengið sig fullsaddan af valdníðslu fulltrúa Reykjavíkurborgar. Já það er í lagi að vera ofurdrukkinn á götum Reykjavíkurborgar, gera sínar þarfir í garða eigenda húsa við Laugaveg flott og fínt að gera Laugaveg að einum að hættulegustu götu Evrópu og víða þar sem hugsanleg dóp og glæpir munu þrífast þegar verslun mun hverfa. Ég er klár á því þá munu menn verða virkilega hræddir þegar hugsanlega tól og tæki verða notuð af óprúttnu fólki sem veit ekki einu sinni hvað það gerir. Já þá er eins gott að sérsveit lögreglunar verði til staðar dag og nótt klár í slaginn. Eitt mun gleymast hvað með allar fjárfestingar í Hótelum, þegar viðskiptamenn hverfa vegna átaka og glæpa, þá held ég að margir myndu vakna af værum blundi við ofsa hræðslu af slíku ástandi.

Þetta er hinsvegar ekki í fyrsta skipti sem slíkt ofbeldi er notað gegn verslunareigendum sem hafa starfað þar í áratugi í sátt við mannaverk. Enn á undaförnum árum hefur ofbeldið vaxið og sukkið heldur áfram af stjórnendum Reykjavíkurborgar varðandi útgjöld og sukk í fjármálastefnu Reykjavíkurborgar saman ber Braggablús sem allir þekkja í fréttum. Jú sukkið er víða eftir sem borgarfulltrúar fara yfir mál sem hafa verið falinn á milli veggja til að koma í veg fyrir upplýsingar streymið til borgarbúa, síðan þegar þeir verða uppvísir af spillingu þá kemur svarið frá þeim" Ekki benda á mig" Það var nefnilega Hrólfur Jónsson sem tók þessa hörmulegu ákvörðun að eyða tugi miljóna í handónýttan bragga sem var að hruni kominn. Það er hörmulegt til þess að vita að verslunareigendur eiga ekki málsvara í borgarstjórnarhluta Reykjavíkurborgar þau hafa ekki einu sinni hugmynd hvað er að gerast í raun og veru á götum Laugavegar, hafa til dæmis ekki áhuga að kynna sér hið hörmulega ástand. takið eftir villimennska og svínarí er að aukast við Laugaveg, enda er ekki einu sinni Lögreglumenn á gangi við Laugaveg þó það væri ekki nema að veita aðhald gagnvart borgurum. Jú setjum upp hundruð myndavéla þá sjáum við allt. Væri ekki nær að standa upp úr stólunum og láta sjá sig á götum borgarinnar.


mbl.is Flytur Herrahúsið vegna stefnu borgarstjórnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nú er ljóst að fá félög standa með Eflingu stéttafélagi launamanna.

 Eftir langar viðræður á undaförnum mánuðum á milli félaga í verkalýðshreyfingu að allir sem einn myndu binda sterkt samband á milli aðila og ekki má gleyma þeim sterku yfirlýsingum sem þar hafa birst í fjölmiðlum að samtaka mæti þeirra og hvað þeir gætu haft sterka stöðu til að lama atvinnulífið með skæru hernaði í dag og dag. Af 19 félögum í Starfsgreina Sambandi Íslands með um 53.000 þúsund félagsmenn um allt land. Nú hefur Efling stéttafélag tekið til baka samnings umboðið frá SGS þá eru 18 félög eftir? Verkalýðsfélag Akranes sem er með 1 varaforseta í ASÍ sem heitir Vilhjálmur Birgisson þá spyr maður sig? Hefur hann umboð nú til að taka umboðið sem hann afhenti SGS fyrir hönd sinna félagsmanna til Starfsgreina Sambandsins?, Hann hlýtur nú að óska eftir félagsfundi með sínum félögum um næstu viðbrögð við þessari hörmulegu niðurstöðu þar sem ríkir mikill andstaða félaga og foringja ræðið í verkalýðforkólfum saman ber ítrekaðar hótanir um byltingu í gulstakka herferð Ragnars Ingólfssonar sem hlýtur líka að verða að boða til fundar í VR og hafa til þess stuðnings félagsmanna sinna, eins og Vilhjálmur Birgisson af Akranesi. 

Það er ljóst nú það er upp kominn púður tunna sem mun sjálfsagt springa á milli félaga, og allt tal um samtaka mátt er farinn út í vind og eftir stendur vilji félagsmanna hvað þeir vilja gera í þessari stöðu, þegar verðtryggð lán hækka stöðugt,, uppsagnir í stórum stíl rétt að byrja,, verðbólga kominn á skrið? Hvað verður þá eftir" Ekki neitt að mínu áliti,, Það hefði verið besta kjarabót að taka neysluvísitölu úr sambandi strax,, Skoða vertryggingu með öðrum hætti. Búa til lána fyrirkomulag sem allir gætu verið sáttir við, enn til þess verða menn að ræða saman með skynsömum hætti ekki með yfirgangi og frekju, enda eru sumir af þessum verkalýðsforkólfum óreyndir í samningsgerð við atvinnurekendur. Varðandi launa mál þá verður það að taka þau í skrefum á milli 3-4 ára. Síðan verður Ríkisstjórn íslands að afnema tryggingargjaldið sem var sett í hruninu til að greiða leið atvinnulausa bóta sem eru að sliga atvinnurekendur. Enda eru 10 ár síðan og enn er haldið áfram á sömu leið og atvinnurekendur eru að sligast undan gjöldum til þess að veita atvinnu, Það hljóta allir sem sjá slík gjöld ganga ekki upp og taka verður undir með atvinnurekendum. Slíkar birgðar verður að afnema til að samningar gætu farið á betri veg. Enn hótanir forkólfa sem hafa blaðrað lengi og sagt ítrekað atvinnurekendur út úr lífeyrissjóðum sem ég tek undir, enn hverju hefur það skilað" Ekki neinu þeir sitja þar sem fastast. Valdið er nefnilega í höndum ASÍ félaga sem gera heldur ekki neitt í þeim málum nema að hóta og hóta atvinnurekendum. Enn tökum eftir hvað félagsmenn í Verkalýðsfélagi Akranes og VR segja um næsta leik, hann verður alla vega spennandi á næstu dögum. 


mbl.is Efling dregur umboðið til baka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Akureyri að slá í gegn.?

Í gær fjallaði ég um hörmulega og skerta þjónustu varðandi hjartasjúklinga í Reykjavík sem þurfa að leita sér hjálpar og þær aðferðir Svandísar Svavarsdóttur að leggja niður hjartagátt á Landspítalanum við Hringbraut og færa þessa aðstöðu í saman þjappaða aðstöðu að Landspítalanum í Fossvogi þar sem legurúm eru takmörkuð fyrir utan öll þrengsli sem þar er. Eftir stöðugar hringingar til mín þar sem fólk var að þakka mér fyrir að minnast á þessa færslu hjartagáttar. Ekki er langt síðan ég heyrði að Embætti Landlæknis væri undir skoðunar að færa embættið til Akureyrar til að auka þjónustu við landsbyggðina og ekki veitir að fá slíkar tekjur og gjöld til Akureyrar fyrir utan miklu styttra væri að leita til Landlæknis fyrir þá sem byggju úti á landi.

Nú vill svo til að þjónusta við hjartasjúklinga er mjög slæm til dæmis á Akureyri þar sem sérfræðingar eru varla til. Sjúklingar hafa þurft frá nágrana byggðum að leita til Reykjavíkur til að fá þessa þjónustu með tilheyrandi kostnaði sem því fylgir að aka yfir 700 km fram og til baka til að leita lækninga sem er í raun hörmuleg framkoma við fólk sem þarf virkilega á hjartalækningum á að halda. Ekki má gleyma öllum sjúkraflugum í neyðartilfellum sem hafa verið í gangi og hefur færst í aukana með þvílíkum útgjöldum fyrir okkur sem Þjóð.

Það vill svo vel til að félagi minn sem ég hitti á förnum vegi og býr fyrir norðan sagði mér í fréttum að nú væri uppi hugmynd að stofna sérstaka aðstöðu fyrir hjartasjúklinga,þar sem yrði opið allan sólahringinn og aðgerðir yrðu framkvæmdar strax, ef þess þyrfti. Í Reykjavík þá er mygla og slæmt ástand og sama gildir um sjúkrahúsið á Akureyri sem þarfnast viðhalds eins og sjúkrahús í Reykjavík sama ástand víða um land. Hann sagði það standi í veginum fyrir opnun. Enn vonaðist að húsnæði myndi finnast sem fyrst svo hægt væri að opna slíka aðstöðu með hjarta sérfræðingum. Þetta eru glæsifréttir fyrir íbúa á Norðurlandi fyrir utan öryggið upp á líf og dauða. Spurningin mín til þingmanna í kjördæmum á Norðurlandi hvar eru þið og hvers vegna hafið þið ekki tekið til máls um slík hörmungar ástand. Ég sem leikmaður finnst slíkt ástand ömurlegt og hvet ykkur að laga þetta hörmulega ástand. Fjárlög framundan og nú fer að styttast að þau verða samþykkt á Alþingi og stutt til jóla. Ég mun fylgjast með hvaða þingmenn vakna af værum blundi.  

 

 


Enn og aftur á að skerða þjónustu við hjartasjúklinga.

Þetta eru stór tíðindi þegar slíkar ömurlegar fréttir berast frá Svandísi Svavarsdóttur eina ferðina enn. Að nú eigi og búið sé að framkvæma að sitja hjartasjúklinga sem þurfa hjálp inn á bráðadeild við Landspítalann í Fossvogi þar sem öllu er safnað saman í einn graut þar sem eru til staðar slysavarðstofa, hjarta ómtæki svefnrannsóknir, legudeildir og fleira sem hæg væri að nefna. Hver er tilgangur að skerða þjónustu Hjartagáttar? var starfsfólk haft með í ráðum? Svandís Svavarsdóttir hvernig stendur á þessari ömurlegu framkvæmd hjá þér þú sem heilbrigðisráðherra? Við sem höfum haft þessa þjónustu mótmælum slíkum fanta aðgerðum hjá þér í skjóli myrkurs með lepp fyrir augað til að fela verk þín. Eins og þú veist mæta vel þá hefur hjartagátt mátt þola færslur á milli hæða stöðugt. Fyrst var opið allan sólahringinn til að sjúklingar í bráðri hættu gætu komið strax enda spurning upp á líf eða dauða.

Loksins fékkst fram góð aðstaða þar sem allt var til staðar og sjúklingum gátu treyst á þjónustu við hæfi á Landspítala við Hringbraut. Nú berast hinsvegar þær hörmulegu fréttir að búið sé að henda sjúklingum út hjá Landspítala við Hringbraut og færa alla aðstöðu í Fossvoginn Svandís Svavarsdóttir, þú veist líka að Hjartagátt hefur verið í fjársvelti lengi, það sást þegar hjartagátt var lokað að sumarlagi, sami frasi það fæst ekki fólk til starfa var svarið, sem er það sama og nú er notað við færsluna. Hver mann ekki eftir opnunartíma? Fyrst allan sólahringinn, síðan frá 08- 16 og lokun yfir sumartímann, þetta eru fantaverk Svandísar Svavarsdóttur.

Hugsið ykkur svar Rögnu Gústafsdóttur setja nýja ferla og endurskipuleggja vinnubrögð á deildinni" var svarið hjá hjúkrunarforstjóranum,, "Og nýja tækni,,Sem toppar ömurleikann,, Hún hlýtur að vita það þar þarf fólk að sinna þessum störfum og auka legupláss handa sjúklingum. Eða á að rúlla þeim sjúklingum sem þurfa hjálp niður á Landspítala við Hringbraut sem þurfa bráðahjálp eða útvitkun um það hefur aldrei verið spurt ítarlega út í þessi atrið. Í hverju er þessi nýja tækni fólginn? Ekki hafa verið keypt tæki eða fjárfest í fólki sem dæmi.Hvað sjá stjórnendur í þessum ömurlegu breytingum? Hugsanlega þrengja að allri aðstöðu fyrir sjúklinga? Draga úr innlögnum sjúklinga? Draga úr opnunartíma og auka álag á starfsfólk sem þýðir að aukinn pressa verður á starfsfólki fyrir utan sjúklinga sem verða eftir og fá ekki þá þjónustu sem var fyrir hendi. Ég ráðlegg öllum sem fá verki,eða annað að hringja strax í 112 og biðja þá að koma strax ég er með verk.


mbl.is Hjartað í Fossvogi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband