Við viljum Davíð Oddsson á ný.

Bloggara hér á MBl taka sig nú saman og stunda nú einelti á hendur manni sem hefur leit þjóðina til farsælar á undanförnum árum sem heitir Davíð Oddsson. Rök þeirra standa ekki að mínu áliti. Mogga bloggarar sem vissu allt á sínum tíma skrifuðu skíthátt um Davíð Oddsson þegar hann benti á að lækkun á húsnæðisverði myndi lækka á næstunni um 30% prósent allt ætlaði að göflunum að ganga og menn snerust gegn sannleikanum, og bjuggu til spuna um mann sem ekki gerði neinum neitt nema vann þjóðinni heilla. Samfylkingin og útrásavíkingarnir áttu það sameiginlega ósk að koma Davíð Oddsyni úr Seðlabankanum og þeim tókst það, vegna þess að Davíð Oddson vildi fara að eigin ósk. Hvað hefur síðan gerst í bankanum síðan Davíð fór ekki neitt, og nú situr þjóðin upp með aula sem geta ekki einu sinni tekið á gjaldeyrishöftum alla kerfið er hriplekt. Ekki neinn bloggari skrifar um þetta ástand í þjóðfélaginu.

Hvar eru þið bloggarar sem þykkjast vita allt. Af hverju er Fjármálaeftirlitinu hlíft þegar kemur að upplýsingum um mál sem varðar eftirlitið. Þá er borið við sig þagnaskyldu hversu lengi ætlið þið að láta Fjármálaeftirlitið komast upp með það?. En þið haldið áfram skipulega að níða Davíð Oddsonar niður með ótrúlegum hætti. Ég tel þetta vera skíthátt þeirra sem leggið nafn sitt við þetta plan sem stundað hafa skipulagt einelti gegn einum manni Davíð Oddsyni þið ættuð að skammast ykkar og hafa vit á því að þegja. Fólkið í landinu er búið að fá af þessum rógberum.

Samfylkingin lagðist í rúmið með útrásarvíkingum sem arðrændu þjóðina með skipulögðum hætti, ekkert er talað nú um að handtaka þá alla, heldur er reynt að hylja slóðir og þegja yfir staðreyndum. Ekki er búið enn að setja þá alla undir lás og slá sem var stefna Vinstri Græna og Samfylkingar. Stað þess er þeim leift að afskrifa skuldir og hefja sig til flugs hér á ný. Ekki er það Davíð Oddsson sem stendur í kaupum eða er að fara með fé úr landi. Þjóðin er búinn að fá upp í kok á þessum stjórnaliðum sem brugðust þjóðinni með loforða lista sem ekki hefur verið staðið við þótt liðnir sé margir mánuðir síðan. Það var Jóhanna Sigurðardóttir og Steingrímur J Sigfússon sem hafa platað bloggarar og þjóðina í heild.

Það eru nefnilega margir sem vilja Davíð Oddson til baka að leiða okkar þjóð með farsælum hætti uppúr feni sem við komum okkur ekki í. Það voru nefnilega útrásavíkingarnir sem gerðu það svo um munar. Þess vegna væri Davíð Oddson sá besti að takast á við þessa menn og endurheimta fé sem var tekið ófrjálsri hendi frá þjóðinni. Davíð Oddson er öflugasti stjórnmálaforingi sem getur komið okkur til hjálpar. Sem getur leit þjóðina á rétta braut aftur. Vinstri Grænir og Samfylkingin geta ekki stjórnað landinu lengur hver þvælan á fætur öðru, og ekki við öðru að búast. Það sannar það nú á að hækka stýrivexti aftur sem gæti sett stöðuleikasáttmála ríkistjórnar í uppnám.

Jóhann Páll Símonarson.

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband