Morgunblaðið hefur breytt um skoðun.

Nú er farið að styttast í kjör forseta Íslands. Öll umræða hefur snúist um ákveðna frambjóðendur sem njóta verndar MBL. RUV, og þeirra sem framkvæma skoðana kannanir á fylgi frambjóðenda. Prósents er eitt af þeim skoðunarfyrirtækjum sem flestir taka ekki mark á. Sama á við Gallup sem er ekkert er tekið mark á vegna vinatengsla. Eftir sitja frambjóðendur sem hafa orðið fyrir því að sitja á hakanum, vegna hagsmunatengsla. Enda hafa þeir fengið litla athygli hjá þessum fjölmiðlum, nema að hafa sjálf farið sínar leiðir til að kynna sig fyrir kjósendum.

Síðan eru þau sem mælast mest hafa sett tugi þúsunda í auglýsingar, nú síðast í kvöld á RUV þar birtist Katrín Jakobsdóttir í Sjónvarps auglýsingu sem kostar sitt. Allir muna eftir hennar orðum þegar hún var spurð hvað hún myndi eyða miklu fé í þessa baráttu.Svarið var stutt. Aðeins því sem kemur inn í kassann!! Af hverju hefur hún ekki verið spurð ítarlega út í þessi orð!! Hvernig stendur á því? Sama konan sem veiti síðustu ríkistjórn brautagengi sem bruðlaði með fé þjóðarinnar. Sama á við þegar húm var spurð um laxeldi í sjó. Hún kom sér undan að svara þeim orðum. Enn fremur sami frambjóðandi sem neitar að fara í viðtal á sjónvarpstöðinni Samstöðinni þar sem frambjóðendum hafa verið boðið formlega að taka þátt í þeirri umræðu.

Arnar Þór Jónsson forsetaframbjóðandi, hefur verið tekinn niður ítrekað að hagsmunaöflum sem segir fyrir stuttu í viðtali á Eyjan!! Við erum ekki sama krúttfélag og árið 1980. Það er gamli tíminn, úrelt hugmynd, að forseti eigi að sitja greiddur og strokinn og skrifa undir allt sem honum er rétt,, Hann heldur áfram í þessu viðtali þegar hann segir!! Spillinguna hér á landi blasa við,innviðir landsins á borð við heilbrigðiskerfi, menntakerfið og samgöngukerfið hangi á bláþræði segir Arnar Þór Jónsson forsetaframjóðandi í viðtali við Eyjuna.

Mikið er til í þessum orðum samfélagið á Íslandi er að koðna niður af spilltum aðilum sem eru ítrekað að grafa undan íslensku samfélagi í formi græðgi og samþjöppunar á valdi og yfirráðum sama hvert litið er. Dagurinn á morgun verður eftirteknaverður sökum þess að Arnar Þór Jónsson er boðaður til fundar kl 14,00 á morgun 24 maí til svara hjá blaðamanninum Stefáni Einari Stefánssyni. Það er í fyrsta skipið í hans baráttu að Morgunblaðið hafi gefið honum kost að standa fyrir stefnu sinni á Íslenska lýðveldinu og stöðu þess. Kjósum Arnar Þór Jónsson sem næsta forseta Íslands. Hann er miklu sterkari enn menn halda. Fyrir utan hann er Öryggisventill þjóðarinnar.
Jóhann Páll Símonarson.


mbl.is Boðar Arnar Þór til viðtals í Spursmálum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Dominus Sanctus.

 "Öll umræða hefur snúist um ákveðna frambjóðendur

sem njóta verndar MBL. RUV,

og þeirra sem framkvæma skoðana kannanir á fylgi frambjóðenda".

-------------------------------------------------------------------------

Þetta er hár-rétt skilgreining hjá þér.

Dominus Sanctus., 24.5.2024 kl. 08:45

2 Smámynd: Helga Dögg Sverrisdóttir

í kosningabaráttunni er eftirtektarvert hve litla umfjöllun málefni Arnar Þórs hafa fengið. Kannski af því þau eru öðruvísi, en vissulega áhugaverðari en hinna. Fjölmiðlar hafa ekki rækt hlutverk sitt í þessari baráttu, það sér hver maður sem það vill. 

Vona að Arnar Þór fái meðbyr frá þjóðinni þann 1. júní. Með hans kjöri kemur vísir að breytingum á embættinu sem mikil þörf er á. 

Helga Dögg Sverrisdóttir, 24.5.2024 kl. 11:15

3 Smámynd: Jóhann Páll Símonarson

Heill og sæll Dominus SanctusJú mikið rétt hjá þér Arnar Þór Jónsson hefur ekki fengið á umfjöllun sem frambjóðendum ber. Hann hefur verið þrýst niður af áhrifa öflum sem eru á ná yfirhöndina á auðlindum og öðru sem Íslenska þjóðin á. Ekki auðvaldsinnar  með fulla vasa af fé þjóðarinnar. Sjálfstæðisflokkurinn er að verða hálfgerður brennivínsflokkur sem talar um Frelsi til athafna. Hefur þú orðið var við þetta frelsi nema til þeirra útvalda..Takk fyrir þínar athugasemdir þær eiga rétt á sér. Þannig virkar lýðræðið

Jóhann Páll Símonarson

Jóhann Páll Símonarson, 24.5.2024 kl. 16:12

4 Smámynd: Jóhann Páll Símonarson

Heil og sæl Helga Dögg Sverrisdóttir

Þín orð skipa máli og skoðun þín. Ég tek undir það, enda hef ég verið að benda á þetta misræmi og þeirra sem stjórna umræðunni. Mbl, RUV og Bylgjan hafa farið í veiðinetið þegar það er dregið. Og pokinn hífður upp og losað um poka-hnútnum. Þá kemur innihaldið í trollinu í ljós þegar  varðahundar auðvaldsins eru að störfum. Sömu aðilar dæla fjármagni í þessa baráttu það er ljóst. Viljum við hafa slíkt framferði? Nei auðvaldið á ekki að komast til valda.Gamli tíminn, er úreltur. Nú lifum við öll á nýrri öld með aðrar hugsanir enn þessir fantar. Jú hef hlustað á Arnar Þór Jónsson sem hefur borið af í þeim viðtölum sem hann hefur farið í. Konur hafa haft að orði hvað Arnar Þór Jónsson talar fallega til eiginkonu sína sem stendur þetta við bakið á honum. Helga Dögg Sverrisdóttir þú er sterk kona sem hefur skoðanir sem margir mættu hlusta á. Auðvita kjósum við Arnar Þór Jónsson sem Öryggisventil þjóðarinnar.

Jóhann Páll Símonarson  

Jóhann Páll Símonarson, 24.5.2024 kl. 17:05

5 Smámynd: Jóhann Páll Símonarson

Heil og sæl Helga Dögg Sverrisdóttir

Þín orð skipa máli og skoðun þín. Ég tek undir það, enda hef ég verið að benda á þetta misræmi og þeirra sem stjórna umræðunni. Mbl, RUV og Bylgjan hafa farið í veiðinetið þegar það er dregið. Þegar pokinn er hífður upp, losað um poka-hnútnum. Þá kemur innihaldið í trollinu í ljós þegar varðahundar auðvaldsins eru að störfum. Sömu aðilar dæla fjármagni inn þessa baráttu það er ljóst. Viljum við hafa slíkt framferði? Nei auðvaldið á ekki að komast til valda.Gamli tíminn, er úreltur. Nú lifum við öll á nýrri öld með aðrar hugsanir enn þessir fantar. Jú hef hlustað á Arnar Þór Jónsson sem hefur borið af í þeim viðtölum sem hann hefur farið í. Konur hafa haft að orði hvað Arnar Þór Jónsson talar fallega til eiginkonu sína sem stendur þétt við bakið á honum. Helga Dögg Sverrisdóttir þú er sterk kona sem hefur skoðanir sem margir mættu hlusta á. Auðvita kjósum við Arnar Þór Jónsson sem Öryggisventil þjóðarinnar.

Jóhann Páll Símonarson.

 

Jóhann Páll Símonarson, 24.5.2024 kl. 17:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband