Var ráðabruggið skipulagt.

Mér hefur borist til eyrna að borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins nema Kjartan Magnússon hafa tekið þátt í að stunda einelti á hendur borgarstjóra sínum Vilhjálmi Þ Vilhjálmssyni félaga sínum. Með fundarhöldum út í bæ í allan vetur. Sjálfstæðismenn sem hafa verið í sambandi við mig eiga ekki orð yfir þessari framkomu þessa fólks sem stundar hafa þessa iðju. Nú velti ég sjálfur hvað Sjálfstæðismenn munu gera í framhaldinu? Þeirri spurningu er ósvarað enn? Þetta mál tel ég hafa skaðað Sjálfstæðisflokkinn vegna trúverðugleika og traust sem kjósendur hafa sýnt Sjálfstæðisflokknum í áratugi.

Á Sjálfstæðisflokkurinn sök á þessu eineltismáli. Ég segi nei mér virðist eins og að formaður Sjálfstæðisflokksins hafi ekkert vitað af þessu fyrr enn allt var komið upp í loft. Það  voru allir borgarfulltrúarnir nema Kjartan Magnússon sem báðu um fund með formanni flokksins án þess að Vilhjálmur Þ Vilhjálmsson væri með í ráðum.

Jóhann Páll Símonarson.   


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhann Páll Símonarson

Heill og sæll Þrymur.

Því miður vill svo vera það eru fleiri sem eiga hlut að máli og Sjálfstæðilokkurinn líður fyrir hefndarhug og valdagræðgi borgarfulltrúa sem beitu okkar borgarstjóra Vilhjálmi þ Vilhjálmssyni eineltis og bolabrögðum sem er ekki sæmandi neinum sem er í vinnu hjá þeim unnu og kusu þá.

Enn því miður situr Sjálfstæðiflokkurinn eftir með sárt ennið og hefur ekki gert neitt. Enn það hlakkar í stjórnarandstöðunni yfir þessum atburðum sem hafa gerst. Enda sína skrif og bera þau merki að það er mikið að ske í þessum málum. Enn sem betur fer skilur fólkið og er harmið slegið yfir aðförum á hendur Vilhjálmi þ Vilhjálmssyni sem liggur í sárum eftir að borgarfulltrúarnir hafa skemmt mannorð hans.

Jóhann Páll Símonarson.

Jóhann Páll Símonarson, 15.10.2007 kl. 12:46

2 Smámynd: Helgi Þór Gunnarsson

Góða kvöldið Jóhann Páll, er Sjálfstæðisflokkurinn leiksoppur auðvaldsins? Mér hefur fundist það undanfarinn ár og alltaf að aukast, ekki rétt? Kær kveðja úr Eyjum.

Helgi Þór Gunnarsson, 15.10.2007 kl. 22:52

3 Smámynd: Jóhann Páll Símonarson

Heill og sæll Helgi.

Ekki er ég sammála að Sjálfstæðisflokkurinn sé leiksoppur auðvaldsins.

Hitt er svo annað og alvarlegra mál að mínu áliti. Það er þegar fulltrúum og þá er átt við borgarstjórnar fólkið nema Kjartan Magnússon sem misfóru með valdið sitt stunduðu plott og fundi án sinn Skipstjóra Vilhjálmi Þ Vilhjálmssyni með fundarsetu út í bæ. Til að reyna að hrifsa til sín völdum sem þeir voru ekki beðnir um eða kosnir til að framfylgja því.

Eins og þú veist þá hefur þessi umræða skaðað Sjálfstæðisflokkinn undan verður ekki komist hjá því. Sjálfstæðisflokkurinn hefur ekkert gert og ekki hægt að bera því við. Þá kemur þessi spurning hvað er hægt að gera. Því til að svara myndi ég skipta þeim út sem ekki er hægt að treysta og misnota sitt vald.

Ég skil vel þig og aðra sem eru ekki sáttir við svona framferði enda myndi ég aldrei samþykkja það.

Kærar kveðjur til Suðurhafseyja.

Jóhann Páll Símonarson.

Jóhann Páll Símonarson, 16.10.2007 kl. 09:47

4 Smámynd: María Anna P Kristjánsdóttir

Sæll Jóhann, ef þetta er rétt þá finnst mér skilyrði af hálfu Sjálfsæðisflokksins að láta rannsaka þetta innandyra hjá sér,það verður að komast til botns í þessu máli,því þetta er svo alvarlegt ef hluti borgarfulltrúanna hafi óbeint verið að grafa undan Vilhjálmi.

María Anna P Kristjánsdóttir, 16.10.2007 kl. 11:39

5 Smámynd: Jóhann Páll Símonarson

Heil og sæl María.

Ég hef vanið mig í gegnum tíðina að fara með rétt mál. Og mun ekki upplýsa meira í þessu máli því ég er flokksbundinn maður í Sjálfstæðisflokknum og tel að þetta mál eigi heima þar á meðan flokksfélaga. Enda veit ég að allt gott sjálfstæðisfólk vil ekki eiga svona mál yfir höfðinu á sér.

þess vegna þarf þetta fólk að koma saman og fá að taka til máls í þessu máli og draga þá sem hafa valdið þessu til ábyrðar.

Varandi Vilhjálm þá tek ég undir með þér það er ólíðandi að það sé verið að grafa undan Vilhjálmi sem var oddviti borgarstjórnarflokks Sjálfstæðismanna og var kosinn þar til góðra verka fyrir Sjálfstæðisflokkinn.

Jóhann Páll Símonarson.

Jóhann Páll Símonarson, 16.10.2007 kl. 12:48

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband