27.10.2008 | 07:52
Gordon Brown forsætisráðherra Bretlands er á villigötum.
Sú ákvörðun Gordon Brown að beita íslensku þjóðinni hryðjuverkalögum er einsdæmi í sögu lýðræðisríkja. Það er ekki bresk þjóð sem stendur fyrir þessum gjörningi, það er Gordon Brown forsætisráðherra Bretlands sjálfur í nafni verkamannaflokksins sem reynir að slá riki í augum almennings í Bretlandi sem þekkir ekki neitt til um þessi mál. Ég veit ekki annað enn að Bretar hafi verið vinaþjóð íslendinga um aldir. Það skal ennfremur upplýst að íslendingar hafa skapað mikið af atvinnutækifærum hjá vina þjóð okkar sem við töldum og teljum. Til dæmis með framleiðslu á íslenskum sjávarréttum, útflutningi á ný veiddum fiski sem hefur verið fluttur út í gámum sem nemur þúsundir tonna á ársgrundvelli af þessum viðskipum hafa skapast stöðug atvinna fyrir breska þjóð. Þess vegna er það dapurlegt til þess að vita að íslensk þjóð sé beitt hryðjuverkalögum.
Þess vegna er gaman að sjá hvað íslendingar munu gera í framhaldinu. Hins vegar munu þeir ekki láta Breta segja sér fyrir verkum. það má sjá á þessum stuðnings undirskriftum, að það eru margir sem eru vinveittir íslendingum og meira að segja frá einstaklingum frá mismunandi þjóðernum sem er frábært. Ég tel þessar undirskriftir rúm 53 þúsundir manna bera vott um að Íslendingar ætli ekki að láta stórveldi stjórna sér.
Jóhann Páll Símonarson.
![]() |
Yfir 53 þúsund undirskriftir |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 07:56 | Facebook
Athugasemdir
Það var líka nokkuð klókt að láta uppskriftina að samtli Árna M. og A. Darling fara í dreifingu eftir óopinberum leiðum, eða eins og Geir H. orðaði það snyrtilega á fréttamannafundi þá "...var það hin mesta furða að svona lagað skyldi leka út." ;) Þetta samtal fer nú eins og eldur í sinu um netmiðla heimsins þannig að nú er búið að koma upp um lygina í Bretunum, og það er víst allt brjálað þar í þessum töluðu orðum. Til að mynda er breski Brjálslyndi flokkurinn búinn að taka málið upp sem vopn gegn Brown og félögum sem eru hundfúlir yfir birtingunni og stefna nú hraðbyri í pólitískt afhroð!
Lengi lifi Ísland!
Guðmundur Ásgeirsson, 27.10.2008 kl. 14:40
Bwahahahaha. "Brjálslyndi" átti auðvitað að vera "Frjálslyndi" flokkurinn í Bretlandi. Afsakið mistökin!
Guðmundur Ásgeirsson, 27.10.2008 kl. 14:42
Heill og sæll Bofs,
Ég tek undir það sem þú segir. Og glæsilegt ef þetta hefur orðið af umtalsefni eins og þú bendir á.
það er rétt hjá þér ef þetta tiltekna mál kemst með skýrum hætti inn í brest samfélag og nær þar virkilegi umræðu er ég hræddur um að það fari á verri veg fyrir honum. Enda fari hann sem lengst og láti aldrei sjá sig framar alla vega frá mér. Og það er mín von að Gordon Brown verði sóttur til ábyrgðar sem allar fyrst.
Jóhann Páll Símonarson.
Jóhann Páll Símonarson, 27.10.2008 kl. 16:52
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.