Í hvaða flokkum eru þessir öfgamenn ?.

Mér fannst þessi mótmæli sem voru á Austurvelli í gær snúast um skrílslæti, frekar enn að hafa einkvað til málana að leggja. Þarna var hópur af ungu fólki sem hagaði sér með grófum hætti og ekki voru þeir sem eldri voru betri til fyrirmyndar. Þessir sömu voru með stiga til að geta sent óharðnaða unglinga til að setja bónus fána upp á okkar löggjafasamkomu hið háa Alþingi. Þegar lögreglan hugðist biðja þessa ólátaseggi að hætta þessum aðgerðum þá stóðu þeir upp í hárinu á lögreglumönnum sem eiga að tryggja það að lög og reglur skulu haldnar.

Ömurlegt  var að sjá hvernig unga fólkið hagaði sér með því henda eggjum, tómmötum, og jógúrt í Alþingishúsið er ekkert nema vanvirðing og dómgreindarleysi við þá sjálfa og fjölskyldur þeirra. Ég tel þess aðila sem eru stöðugt með þennan áróður dag eftir dag vera stjórnað af ákveðnum stjórnmálaflokkum sem vilja stjórna því sem þeim hentar. Á því verður að taka föstum tökum við sem þjóð getum ekki leyft öfgasinnum að taka löginn í sínar hendur. Það er gert með því að handtaka þá sem brjóta lög og virða ekki reglur og láta þá sæta ábyrgð á sínum gjörðum.

það verður að stöðva þessar mótmæla útisamkomur strax með öllum tiltækum ráðum, við getum ekki látið öfgahópa stjórna ólöglegum aðgerðum til þess eins að skapa óróa og ótta fólks. Hörður Torfason sem er einn af mótmælendum var spurður af fréttamanni hvort þetta væri ekki einelti gagnvart stjórnvöldum"? Ég veit ekki annað enn að sá sami maður hafi flúið land sem hann var fyrir einelti sjálfur á sínum tíma, hann sjálfur er kannski búin að gleyma því.

Ekki má gleyma hér fjölmiðlum sem hafa kynnt undir þessum áróðri. það vekur furðu að nú gjósa upp hagfræðingar sem hafa ekki verið mikið í dagsljósinu að undanförnu, hvaðan skildu þessir menn hafa verið að undanförnu, þeir eru hver með sína skoðun eins og við öll. Ég hef ekki séð neinn af þessum mönnum sem ber af. Samt hafa þeir mentað sig og lært eftir sama lögmálinu í hagfræði þá er átt við kenningar. Stóri vandinn í þessu þjóðfélagi er að nú er að ryðja sér til rúms hópur af öfgafólki sem sækir sér hugmyndir frá öðrum þjóðum. Ef við sem þjóð gerum ekkert í þessum málum þá mun einn daginn skapast hér vandræða ástand. Til þess verðum við öll sem viljum ekki að þetta ástand fari lengra, að hlýða fyrirmælum lögreglu og standa með lögreglumönnum í þeirra verkum til þess ein að okkur líði betur.

Jóhann Páll Símonarson.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Varst þú á Austurvelli? Eða sástu þetta bara í fjölmiðlum?

Þráinn Kristinsson (IP-tala skráð) 9.11.2008 kl. 20:10

2 Smámynd: Jóhann Páll Símonarson

Heill og sæll Þráinn.

Ég sá þetta í fjölmiðlum. Hef ekki áhuga að vera innan um öfgafólk sem er að stofna til vandræða um ekki neitt nema að reyna að blása til óeirða. Sumir sem þarna fara fyrir eiga virkilega bágt.

Hins vegar vantar betri upplýsingar um stöðu mála. það getum við rætt á góðum stað í stóru húsnæði sem málin væru rædd af skynsemi ekki með upphrópunum eins og gerist í Iðnó það gengur ekki upp.

Þess vegna eigum við að nota Ríkisútvarpið til að upplýsa okkur með faglegum stjórnendum og fræðimönnum og koma í leiðinni skilaboðum til þjóðar okkar.

Enn öfgahópar gera ekkert annað enn að spilla fyrir.

Jóhann Páll Símonarson.

Jóhann Páll Símonarson, 9.11.2008 kl. 20:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband