Ómenning ríkir í fréttum frá Mbl og Ruv

Það er ruddamennska ákveðna flokksmanna sem eru þarna í starfi sem blaða og fréttamenn, þegar kemur að framboðum frambjóðenda til Forseta Íslands. Villimennskan er slík þegar þeir eru að draga frambjóðendur í dilka og fullyrða blákalt að Íslendingar eigu ekki að eyða atkvæðum í þá aðila sem eiga ekki möguleika. Hvað skilaboð eru þetta? Er Andrés Magnússon að fullyrða að fólk eigi ekki að kjósa Sjálfstæðisflokkinn í næstu kosningum? Ef hann gerði það yrði honum sparkað út af Mbl um leið. Maður spyr sig hvað vakir fyrir Andrési Magnússyni blaðamanni ef maður á að kalla hann blaðamann. Þegar hann reynir ítrekað að taka skoðanir af kjósendum. Auðvita gilda lýðræðisreglur, kjósendur hafi frjálst val að kjósa þann einstakling sem hver og einn vill. Þannig virkar lýðræðið og þannig skal það vera án afskipta blaða og útvarpsmanna. Siðaspilling ræður ríkjum. Það virðist sem fulltrúar stjórnmálaflokka ætla að taka völdin af þjóðinni með útbreiðslu áróðurs um þá sem hafa ekki loðna lófana til að spila út þessum leik, enda er leikurinn ójafn þegar peningar eru ekki til staðar. Það er ljóst. Hver og einn bíður sig fram að eigin verðleika, síðan er það kjósenda að ákveða þann sem þeim finnst bestur og hæfastan. Nei segja þeir sem eiga fulla vasa af fé, þykkir ekkert að því að kaupa sér völd með sínum auglýsingum, spjöldum og ráðningu fólks eins og Karenar Kjartansdóttur sem starfaði sem einn af eigendum ráðgjafa fyrirtækisins Langbrók og innanbúðar kona Samfylkingar. Eins og Höllu Hrundar Logadóttur tengda orkunni. Friðjón Þórðarson flokksbundinn Sjálfstæðismaður kosningarstjóri Katrínar Jakobsdóttur sem dæmi um hvað stjórnmálaflokkar eru innvinkaðir í samþjöppunarvaldið sem eru tengdir siðaspilltum aðilum, sem minnir mig á gömul grafhýsi þar sem ákvörðunarvaldið var tekið og ákveðið. Ég vil nefna hér skipulagt herferð gegn Arnari Þór Jónssyni sem er trúverðugur frambjóðandi sem Sjálfstæðisflokkurinn þolir ekki að komast til valda sem Forseti Íslands, er þetta rétt. Jú því miður, þetta er ekki í fyrsta skipti sem Sjálfstæðisklíkan tekur fólk niður. Andrés Magnúson blaðamaður. Þú gleymdir að birta þetta um flokkinn þinn. Ég ætla að birta það. Leyfðu síðan manni eins og Arnari Þór Jónssyni og öðrum frambjóðendum að vera þeir sjálfir án þinna afskipta. 1.Hleyptu Alþjóðagjaldeyrissjóðnum inn á gafl í stjórnarráði Íslands. 2. Hækkuðu skatta á almenning. 3. Gerðu ekkert til hjálpar almenningi vegna skuldastöðu í kjölfar hrunsins. 4. Ófrægingarherferð gegn Ríkisendurskoðun vegna kaupa á bókhaldskerfi fyrir ríkið. 5. Íslandsbanki gefinn kröfuhöfum. 6. Arionbanki gefinn kröfuhöfum. 7. Lögðu fram 16 milljarða króna að óþörfu til bjargar Sjóvá. Tapið féll á almenning. 8. Endurreistu Sparisjóðinn í Keflavík án þess að hann ætti sér von. Kostaði ríkið 25 milljarða. Ekkert er fjallað um þetta sem lítið dæmi um samþjöppunarvaldið Jóhann Páll Símonarson


Bloggfærslur 29. apríl 2024

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband