5.10.2015 | 00:13
Sjóslysanefnd vill ekki ná bátnum upp.
Það er ljóst að skipverjar, aðstandendur á dragnótabátnum Jóni Hákoni BA furða sig á meðferð rannsóknar á slysinu og telja að verið sé að eyðileggja sönnunargögn þar með bilun á björgunarbúnaði bátsins,af hverju hvolfdi honum í logni.Til dæmis hefur Sindri Björnsson bróðir Magnúsar Kristjáns Björnssonar sem fórst í slysinu reynt ítrekað að fá bátinn tekinn upp án árangurs. Sjóslysanefnd ber við fjársvelti rannsóknarnefndarinnar sem eru hættuleg tíðindi fyrir okkur sjómenn,enda eru fjöldi mála enn í rannsókn og niður stöðu er ekki að vænt í bráð frekar enn annað sem er óljóst. Jón Hákon BA 60 hét áður Höfrungur BA 60,smíðaður 1988 í bátalóni í Hafnafirði, breikkaður og lengdur árið 1996, ný vél árið 2002.
Sleppibúnaður og Gúmmíbátar.
Sjómenn búa við falskt öryggi ef sjálfvirkur sleppibúnaður virkar ekki segir Jón H Ingólfsson rannsóknarstjóri hjá Rannsóknarnefnd samgönguslysa,," Ef sjálfvirkur sleppibúnaður þeirra virkar ekki er öryggi sjómanna stefnt í voða,, Jú sjómenn búa við falskt öryggi og öryggi sjómanna stefnt í voða. Samt fyrir þessu alvarlegu orð þá á að reyna að svæfa málið. Annar báturinn situr í sínu gálga eins og gengið var frá honum. og hin báturinn var laus og lá á botninum og fangalínan var enn tengt við bátinn sem skoðaðir voru báðir í nóvember á sl ári.
Formaður Sjómannasambandsins kallar eftir rannsókn.
Hann er sá fyrsti núna sem lætur þessi mál til sín taka og vill rannsaka þetta mál ofan í kjölinn, af hverju þessi búnaður virkaði ekki? Valmundur segir að þessi búnaður sé einsdæmi hér á landi, það er rétt hjá honum. Árið 2005 sagði fyrrverandi formaður Sjómannasambandsins Sævar Gunnarsson" Að þessi búnaður væri fullreyndur og eigi ekki að gefa frekari frest á að búa skip sleppibúnaði fyrir björgunarbáta eftir ítrekaðar frestunar útgerðamanna að taka þennan búnað í notkun,,Enn ég met það svo að ekki þurfti að gera neinar frekari prófanir á þessum búnaði.
Gallar á sleppibúnaði.
Siglingarstofnun á sínum tíma leyfði uppsetningu á þessum búnaði sem Sigmund Jóhannsson hannaði og voru framleiddir af vélsmiðjunni Þór hf í Vestmanneyjum á sínum tíma og voru endurbætur unnar á honum varandi belg sem blæs hann út og hreyfir sjósetningargálgann sem þolir ekki að vera saman brotin til lengdar. Hann veðrast og springur og verður lekur og þar með óvirkur. Í kjölfarið leitaði vélsmiðjan Þór í Vestmanneyjum til erlendra aðila um kaup á nýjum belgjum til að skipta þeim gömlu út.
Önnur gerð sjósetningarbúnaðar gúmmíbjörgunarbáta og voru framleiddir af Vélsmiðju OL.Olsen hf.í Njarðvík. Þar er um að ræða samanþjappaður stálgormur sem aflgjafi til sjósetningar. Þessi búnaður hefur verið prófaður við 60gráðu halla í gagnstætt borð við sjósetningu eins og reglur krefjast, með ísingu. Um var að ræða gorma sem sjómenn kölluðu Bronco jeppa gorma, enn þeir vildu brotna við prófun.
Jón Ingólfsson H. Ingólfsson það er krafa sjómanna að Jóni Hákoni verði lyft upp til ýtarlegar rannsóknar. Það er ljóst að mikið er að sem þarf að skoða betur, þú veist það sem gamall og reyndur sjómaður. Ennfremur getur þú ekki leyft þér að segja að það sé ekki hægt, þú veist betur. Enn hvað er verið að fela?. Sjómannasambandið hefur nú krafist að bátum verði lyft upp og sjálfsagt munu önnur sjómannafélög félagar og ættingjar taka undir með Sjómannasambandinu.
Alþingismenn látið málið ykkur varða.
Jóhann Páll Símonarson.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 00:19 | Facebook
Athugasemdir
Er búinn að deila þessu á Facebook þar sem aðilar er að gera athugasemdir. þar sem aðili krefst þess að þessi bátur verði tekinn upp.
Jóhann Páll Símonarson.
Jóhann Páll Símonarson, 5.10.2015 kl. 10:32
Þingmenn eru svo uppteknir af aðbúnaði svína þessa dagana, að það er sennilega eitthvað í að þeir kanni þetta mál frekar. Reglugerðar og eftirlitskerfið á Íslandi er svo morkið og til lítils nýtt, að það er spurning hvort halda eigi þessu bjúrókrati úti, yfir höfuð.
Góðar stundir, með kveðju að sunnan.
Halldór Egill Guðnason, 13.10.2015 kl. 18:24
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.