12.1.2009 | 12:37
Hvar eru kosnigarloforð framsóknarmanna.?
Framsóknarmenn sem voru í forystusveit þeirra í síðustu borgarstjórnarkosningum lofuðu Grafarvogbúum að nýtt framtíðarsvæði fyrir móttökustöð Sorpu myndi rísa á ný á svæði sem myndi henta Grafvarvogsíbúum og væri miðsvæðis í hverfinu, því Björn Ingi Hrafnsson bjó nefnilega í sama hverfi hafði skilning á því hvað þetta var árríðandi verkefni sem skiljanlegt er sjálfsagt til að friða íbúa. Nú er kjörtímabilið komið langt á veg komið. Ekkert bólar á neinu sem þeir lofuðu á sínum tíma í kosningarbæklingi og stefnu skrá sem þeir gáfu út fyrir síðustu kosningar sem var í lit og vel merktur stefnulisti. Hvað hefur gerst síðan ekki neitt við íbúar þurfum að keyra langaleið niður á Sævarhöfða til þess eins að fara með rusl úr okkar hverfi sem ekki er boðlegt fyrir þetta stóra hverfi sem við búum í.
Það skal getið fram það var nefnilega framsóknarmaðurinn Alfreð Þorsteinsson náin vinur Björns Inga Hrafnssonar sem seldi lóð móttökustöðvar Sorpu við Gylfaflöt sem var á mjög hentugum stað til vina sinna undir íbúðarhúsnæði. Það er með ólíkindum hvernig hægt er að segja ósatt vísvitandi að fólki án þess að blikna ár eftir ár um loforð og stefnur og ekkert er hægt að taka mark á.
Heyrst hefur að framboði íbúa í Grafarvogi sé í undirbúningi fyrir næstu borgarstjórnarkosningar þar hafa menn talað saman um menn og málefni. framboð hefur eining verið orðað við fleiri hverfi í nágreninu sem ætla að taka sig saman gegn þessu gamalgróna kerfi sem hefur verið við líði frá því að ég man eftir mér sjáum til hvað því líður. Fulltrúar í borgarstjórnarflokkum vita af þessu máli enginn borgarfulltrúi getur sagt að hann viti ekkert um þetta mál okkar, sem snýr að okkur Grafarvogsbúum. Við íbúar munum ekki láta þetta mál daga lengur uppi því við munum minna á málið það sem eftir verður.
Jóhann Páll Símonarson.
11.1.2009 | 15:23
Hörður Torfason varar við boðum og bönnum?.
Það hefur vakið athygli mína hvers vegna tölum um mannfjölda sem koma saman á Austurvelli á laugardegi ber ekki saman og þar er munurinn mikill. Hörður Torfason segir mannfjöldann vera meiri en Lögreglan eða fréttamenn Ríkisútvarpsins segja frá. Ég tel það best fyrir alla að hafa tölurnar sem réttastar ekki að vera að ýkja til þess eins að fá athygli. Hinsvegar finnst mér þegar forsprakkar mótmæla skuli ógna Lögregluyfirvöldum ef hugsanlega til þess kemur að lögreglumenn þurfi að skerast í leikin til að halda uppi lögum landsins það er dapurlegt til þess að vita að lýðskrumarar skuli nota sér óöryggi og ótta fólk til þess eins að skapa úlfúð á milli fólks.
Ég tel að lögreglan þurfi að efla mannkost til þess eins að takast á við ólátabelgi sem virða ekki lög eða reglur. það má vel vera að við þurfum hjálp óeirða lögreglumanna frá Þýskalandi, Ítalíu, Englandi, ennfremur frá okkar vinum á Norðurlöndum sem hafa sér þekkingu hvernig tekist er á við mótmælendur og knattspyrnubullur það eru ekki nein vettlingar tök ef menn hlýða ekki ábendingum lögreglu. Við vitum til þess um lýðskrumara sem gerðu það sama og Hörður Torfason gerir annar þeirra var í Noregi Karl Hagen og hin var í þýskalandi sem lést í bílslysi á síðasta ári þessir tveir félagar töpuðu fylgi þegar fólkið áttaði sig að þarna var blekkingar menn á ferðinni.
Ég tel það vera gott mál ef menn mótmæla á réttan hátt og það sé gert án þess að skemma og valda jafnvel slys á fólki það tel ég vera heiðarleg og réttlætanleg mótmæli. Enn því miður hafa þessi mótmæli Harðar Torfasonar farið úr böndunum vegna stöðugar hótana hans. Honum væri nær að líta upp til leikarans sem heldur boðaða fundi innan dyra og gefur þar fólki tækifæri að koma sínum athugasemdum á framfæri á þeim fundum eru ekki leyfð öskur og frammíköll stað þess eru þar leyfðar frjálslegar umræður sem eiga rétt á sér undir það tek ég enda er það rétta aðferðin. Hin aðferðin fer fram í kosningum til Alþingis. Þessar báðar leiðir eru kjörin aðstaða fólks að hafa áhrif á hverjir eru fulltrúar okkar á löggjafasamkomu okkar Íslendinga.
Jóhann Páll Símonarson.
Hörður: Mótmælin rétt að byrja | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
19.12.2008 | 15:28
Svona eiga leiðtogar að vinna.
Nú eru liðnir rúmlega 6 mánuðir síðan Gylfi Sigfússon tók við starfi forstjóar H.F. Eimskipafélagi Íslands. Þessi tími er ekki langur hjá Gylfa í stóli forstjóra sem hefur þurft að takast á við gífurlegar breytingar og hamfarir í þjóðfélaginu sem hafa átt sér stað með falli viðskiptabankana hefur valdið því að fyrirtækin í landinu hafa átt í miklum erfiðleikum að fjármagna sig með erlendum gjaldeyri sem er til af skornum skammti í landinu og hefur stór aukið útgjöld og kostnað útflutnings fyrirtækja sem þurfa að standa skil á sínum greiðslum og er ekki á ábætandi við þessar aðstæður. Það hlýtur að vera mjög erfitt fyrir forstjóra sem er boðin staða hjá stóru fyrirtæki eins og Eimskip sem hefur starfað á flutningsmarkaði í 94 ár samfellt sem er eitt af elstu fyrirtækjum landsins að taka við undir svona kringum stæðum sem engin vissi fyrr um afleiðingar sem urðu og komu eftir á, án þess að Gylfi Sigfússon hafði hugmynd um þegar honum var boðin staðan að taka við sem forstjóri H.F. Eimskipafélagi Íslands.
Eimskip þarf að borga alla þjónustu sem þeir þurfa erlendis þar með olíuviðskipti, afgreiðslu á skipum Eimskips og greiðslur til starfsmanna félagsins sem vinna fyrir Eimskip erlendis sem dæmi. Allt þetta kemur niður á félaginu þegar Íslendingar eiga í hlut því fólk trúir ekki lengur Íslendingum. Sem hlýtur að koma niður á Eimskip eins og öllum öðrum, ég var nýlega í Bandaríkjunum var sjálfur fyrir fyrirlitningu að vera Íslendingur. Því skildi engum undra að Íslensk félög þurfi að ganga í gegnum það sama ég ég varð fyrir. Því útlendingar hafa ekki trú á okkur sem þjóð.
Gylfi Sigfússon forstjóri hefur barist eins og hetja fyrir velgengni Eimskipafélagsins og hefur sýnt það svo um munar. Með miklum áherslubreytingum og ábyrgri stefnu og aðhaldi í rekstri. sem hefur skilað sér í betri afkomu, þegar tekist hefur að selja fyrirtæki sem félagið á. Það mun koma í ljós fljótlega á næsta ári þegar hugsanleg sala gengur í gegn á fyrirtæki sem nú er í sölumeðferð.
Miklar áherslu breytingar hafa átt sér stað síðan Gylfi tók við þessu starfi sem forstjóri. Með því að hvetja starfsmenn áfram í sínum störfum og hafa trú á sínu fólki og hefur sýnt það í starfi og sannað hans óeigingjarna starf fyrir Eimskip síðan hann tók við starfi forstjóra fyrir rúmum 6 mánuðum síðan. Stefna hans er að koma Eimskipafélaginu á fulla ferð inn í framtíðina enda fagnar Eimskipafélagið 95 ára afmæli sínu á næsta ári. Það verður fróðlegt á næstunni að fylgjast með Gylfa Sigfússyni hvernig honum tekst til. Það er hverju orði sannara.
Jóhann Páll Símonarson.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
17.12.2008 | 14:24
Er að undirbúa kæru á hendur Landsbanka Íslands og skilanefnd.
Það er dapurlegt til þess að vita hvernig stjórnendur Landsbanka Íslands og skilanefnd bankans vinna og þau vinnubrögð sem eru viðhöfð vegna misstaka stafsmanna bankans gagnvart mér. þetta mál er búið að vera til skoðunar í rúmlega 2 mánuð. Starfsmenn Landsbanka tóku út af mínum einkareikningi 511,888 krónur til kaupa á hlutabréfi sem ég sjálfur hafði ekki gefið leyfi fyrir. Selja síðan hlutabréfið 10.12 2008 á 156,522 krónur sem var upphaflega 511,888 krónur sem voru teknar út án heimildar. Síðan berst mér bréf í gær þann 16.12 2008 þar sem þetta kemur fram að lagt hafi verið inn á minn reikning 156.522 krónur. Það vantar talsvert fé að þetta muni ganga upp fyrir utan vexti.
Ég sendi þeim bréf í gærkvöldi og ítrekaði að þolinmæðin væri á þrotum. Væri ekki komin niðurstaða í þetta tiltekna mál fyrir kl 12 í dag þann 17.12 2008 muni ég vísa þessu máli til lögreglu. Svar hefur ekki borist enn. Ekki einu sinni afsökunarbeðni að hálfu bankans hvað þá heldur að skila aftur fé sem þeir tóku ófrjálsri hendi. Það eina sem ég fékk var bréf frá bankanum að þeir hefðu selt bréfið og lagt hluta aftur inn 156.522 krónur eftir rúmlega 2 mánuði án vaxta og talsvert vantar en. Bréfið virkaði á mig sem ég ætti að halda mér saman og vera ánægður með það sem ég fékk upp í mínar 511.888 krónur sem þeir tóku án leyfis. Mér ofbíður þessi framkoma.
Nú mun ég í framhaldinu undirbúa kæru á hendur þeim fyrir ólöglegt athæfi. Mun halda áfram með þetta mál.
Jóhann Páll Símonarson.
16.12.2008 | 13:24
Tel þetta rétta ákvörðun Viðskiptaráðherra.
Nú ætlar Viðskiptaráðherra að stofna sveit manna sem mun nú fara yfir reglugerða sviðið á fjármálasviðinu. þessi sveit mun sjálfsagt koma með tilögur til úrbóta til þess eins að tryggja hag þeirra sem kaupa hlutabréf, innlögn peninga í banka sem lítið dæmi. Það mun ekki ganga upp að sömu menn sem voru í nefndum og ráðum gömlu fjármálafyrirtækjanna muni sitji í þessum nýu nefndum. Fólkið verður að koma frá öðrum stöðum við eigum mikið af hæfiríku fólki sem gæti sinnt þessum störfum. Annars mun trúnaður ekki vera til staðar ég tel það skilyrði.
Ég er með tillögu að skipuð verði sveit manna sem hefði það vald að fylgjast reglulega með bönkum og fjármálafyrirtækjum reglulega og gætu hvenær sem er, þegar þeir telja ástæðu til að skoða innri mál krosseignar tengsl, útlán, og stöðu þessar fyrirtækja án þess að spyrja um leyfi. Þá tel ég að traust myndi geta skapast á milli fólksins í landinu sem hefði peninga á milli handanna og vildi ávaxta þá með ábyrgum hætti. Ég tel þessa sveit manna sem væru menntaðir á öllum sviðum væri besta lausnin í dag til að tryggja hag almennings og veita viðskiptalífinu aðhald í góðum og ábyrgum vinnubrögðum. Þetta er ekki lögregla heldur sveit manna sem á að tryggja hag almenning í peningamálum. Nóg er komið af siðblindum fjárglæframönnum sem hafa komið heilli þjóð í ógöngur
Jóhann Páll Símonarson.
Fara á yfir lög á sviði fjármálamarkaðar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
15.12.2008 | 14:09
Sjómannafélag Íslands semur fyrir sína félagsmenn.
Sjómannasamband Íslands er ekki samnings aðili fyrir Sjómannafélag Íslands þess vegna er ekki hægt að tala um að samningarviðræður séu í góðum farvegi. Sjómannafélag Íslands er með fjölmennustu félaga sjómanna á landinu og er með aðra kröfugerð og aðrar áherslur enn Sjómannasamband Íslands sem skiljanlegt er. Í Sjómannafélagi Íslands eru félagsmenn víðvegar af landinu. Úr sögn Sjómannafélags Íslands á sínum tíma úr ASÍ og Sjómannasambandinu hafa vakið athygli þeirra sem vita ekkert um þetta mál og hvers vegna það varð gert. Ég ætla ekki hér að rifja upp þau mál. Vegna óbilgirni forystusveitar Sjómannasambandsins og ASÍ þeim bolabrögðum verður seint gleymt hvernig þeir höguðu sér.
Þátttaka sjómanna í olíukostnaði kemur ekki til greina og hvað þá heldur að taka þátt í kostnaði vegna slysatryggingar. Sjómenn ætla sér ekki að taka þátt í að reka útgerð i landinu svo það sé á hreinu. Það er von sjómanna að samningar náist fyrir áramót enn það byggist á að útgerðamenn nái viðunandi samningum við Sjómannafélag Íslands og félaga þess.
Jóhann Páll Símonarson.
Samningaviðræður sjómanna í góðum farvegi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
14.12.2008 | 23:32
Sigrún Brá úr Fjölnir er afburða sundkona.
Það vekur athygli hjá mér þegar Sigrún Brá frá íþróttafélaginu Fjölni í Grafarvogi settur hvert Íslandsmet á fætur öðru. Síðast á laugardaginn þá bætti hún fyrra met í 400 hundruð metra skriðsundi syndi á nýu Íslandsmeti á 4,17,09 mínútur. Gamla metið var 4,17,35 mínútur.
Í morgun setur hún annað Íslandsmet í 200 metra skriðsundi Sigrún Brá synti á 1,59,45 mínútum gamla metið var 2.01,55 mínútur. Það verður að segjast þetta er glæsilegasti árangur sem hún hefur sett á sínum ferli. Enda hafa æfingar verið þrotlausar og árangurinn eftir því.
Sigrún Brá hefur sjálf staðið undir sínum kostnaði með aðstoð foreldra sinna sem hafa staðið þétt að baki hennar og er það virðingar vert af þeim. Hins vegar undrast ég á því hvers vegna Íþróttasambandið styðji ekki við bakið á unglingum sem eru afreks fólk og vilja ná árangri eins og Sigrún Brá hefur sýnt að undanförnu með stöðugum æfingum og skólagöngu. Afreksfólk nær ekki árangri ef það stundar ekki æfingar reglulega. þess vegna verður Íþróttasambandið að styrkja þessa aðila sem vilja sækja mót sem eru til staðar. Reykjavíkurborg mætti til dæmis leggja fram styrk handa þessari ungri konu til að hún gæti keppt við sýna félaga á erlendri grundu. Æfingin skapar meistarann.
Jóhann Páll Símonarson.
Sigrún Brá bætti eigið Íslandsmet | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
14.12.2008 | 17:56
Er uppgjör gömlu bankana sukk ?.
Við uppgjör gömlu bankana kemur ýmislegt í ljós í Landsbankanum situr Sigurjón Þ Árnason fyrrverandi bankastjóri sem rannsakar sjálfan sig. Þessi sami Sigurjón hafði 163,5 miljónir í laun á síðasta ári ég sjálfur gagnrýndi það á síðasta aðalfundi gamla bankans. Ég var sá eini sem gerði athugasemd við þessi ofurlaun upptakan af þessum fundi var fjótlega tekin burtu af heima síðu bankans og sást ekki oftar. Sigurjón Þ Árnason er með Tryggva Jónsson einn af baugsfélögum sér við hlið að gera upp skuldir og eigur gamla bankans sem er í eigu þjóðarinnar. Hvers vegna eru þessir menn ekki fjarlægðir burtu strax.? Hvar eru þið Alþingismenn eru það ekki þið sem eigið að passa okkar hag og verja okkur fyrir þessu óreiðumönnum.
Er það rétt sem Jón Gerald Sullenberger sagði frá í Silfri Egils í Sjónvarpinu í dag. Að Jón Ásgeir ásamt sínum félögum hafi misnotað ýmis félög Tryggingarmiðstöðina, F.L. Group sem síðan hét Stoðir. Stofnaði fullt af fyrirtækjum Dagsbrún, Teymi, 365 miðla þau fyrirtæki eru nú ekki til. Og skuldarar eiga þar mikið fé inni sem fæst trúlega ekki greitt, lán frá lífeyrissjóðum og lán úr gömlu bönkunum sem nú er búið að leggja niður. Með hjálp Sigurðar og Hreiðars í Kaupþings banka hafi þeir komist inn í Glitnir banka og ryksugað bankann. Þetta eru mjög alvarlegt mál ef þetta reynist satt hjá Jóni Gerald Sullenberger og vert að skoða betur.
Ég tel að fjármála eftirlitið hafi brugðist gjörsamlega og skrítið að ekki sé búið að víkja stjórnendum burtu. Viðskiptaráðherra Björgvin G Sigurðsson hefur sagt það að hann beri fullt traust til forstjóra FME. Björgvin G Sigurðsson ráðherra úr röðum Samfylkingar hefur einnig brugðist trausti og ber að víkja. Hann sjálfur skipaði Sigurjón Þ Árnason fyrrverandi bankastjóra Landsbankans í að rannsaka sjálfan sig og vera Landsbankanum til traust og halds. Síðan gleymist endurskoðunarskrifstofur KGM sem var að rannsaka Glitnisbanka í leiðinni að rannsaka sjálfan sig. Því þeir skrifuðu uppá reikninga bankans og báru ábyrgð á sínum gjörðum. Birna Einarsdóttir bankastjóri nýja Glitnisbanka ber við minnisleysi og mistök gamla bankans þegar hún keypti hlutabréf og var skráð í Kauphöllinni fyrir 184 miljónir króna og þessi bréf voru í eigu hennar eignarhalds fyrirtæki Melorku. Allir muna frétt sem barst frá fjármála eftirlitinu og sagt að þetta væru mistök gamla bankans ótrúlegt.
Við sem höfum tapað og misst eigur okkar krefjumst að Alþingismenn taki nú þegar til hendinni og láti Sigurjón og Tryggva sem eiga hagsmuna að gæta fara strax á morgun. Fólk er að fyllast upp í kok af þessum ósóma sem þrífst í þessu landi. Sem jaðrar við spillingu af verstu gerð. Þessir menn eru á fullu enn að stofna ný fyrirtæki og fá lán í nýja Landsbankanum á meðan sitja skuldarar eftir og fá ekki greitt sem þeir eiga rétt á. Burtu með þessa aðila ég sé ekkert eftir þeim.
Jóhann Páll Símonarson.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.12.2008 | 12:43
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir hótar stjórnaslitum.
Verði niðurstaða landsfundar sjálfstæðismanna í janúar á þá leið að að sjálfstæðismenn hafni aðildarviðræðum um inngöngu í Evrópusambandið þá mun Samfylking slíta stjórnmálasamstarfinu. þetta viðurkenndi formaður Samfylkingar Ingibjörg Sólrún Gísladóttir í viðtalsþætti í vikulokin á Rás 1 í morgun. Þá liggur það fyrir að þetta stjórnarsamband er að líða undir lok og Sjálfstæðisflokkurinn má nú fara að skoða sinn gang og spyrja sjálfstæðismenn hvað þeir vilja gera í framhaldinu. Valdið er hjá sjálfstæðismönnum hverjir munu verða í framvarðasveit flokksins á næsta landsfundi flokksins ég tel að þessi fundur muni skera út um það hvort við viljum afhenta Lýðveldið Ísland á silfurfati til aðildaraðila að Evrópusambandinu og afsala okkur í leiðinni sjálfstæðinu.
Ég er á þeirri skoðun að Sjálfstæðisflokkurinn eigi að taka upp nýja mynt Dollar til að tryggja sjálfstæði Íslendinga og þar með óháð Evrópusambandinu. Verði þetta niðurstaða Landsfundar er ég hræddur um að staða flokksins muni styrkjast því meiri hluti þjóðarinnar vill ekki gefa sjálfstæðið eftir. það mun koma í ljós þegar gengið verður til þjóðaratkvæðagreiðslu þá mun þjóðin hafna þeirri hugmynd Samfylkingar að afsala sér öllum réttindum í lýðræðislegum ríkjum eins og Íslandi.
Jóhann Páll Símonarson.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
11.12.2008 | 23:25
Vilhjálmur Þ Vilhjálmsson andmælir útsvarshækkun á borgarbúa.
Það er ekki á hverjum degi þegar berast fréttir um að forseti borgarstjórnar skuli stinga við fótum við útsvarshækkun um 0,5 prósent á borgarbúa í Reykjavík. Vilhjálmur Þ Vilhjálmsson fyrrverandi borgarstjóri finnst nóg komið af hækkunum á heimilin í landinu og vil finna aðrar leiðir til að leysa mál Reykjavíkurborgar, að því er unnið dag og nótt að finna leiðir til að komst til botns í þeim málum sem nú liggja fyrir. Forseti borgarstjórnar getur þess að borgin geti ekki hækkað gjöld á ýmissar þjónustu greinar vegna slæmra stöðu heimila í Reykjavík. Undir það tek ég með Vilhjálmi Þ Vilhjálmssyni sem hefur ætíð staðið eins og klettur með borgarbúum.
Ég tel og hef áður sagt að Vilhjálmur Þ Vilhjálmsson er okkar öflugasti borgarfulltrúi með reynslu og þekkingu. Þótt það hafi verið sótt af honum með óbilgirni af borgarfulltrúum, Það sama verður ekki sagt um ríkistjórnina sem samþykktu lög í dag að heimila sveitafélögum að hækka útsvar um 0,5 prósent. Ríkistjórnin var ekkert að hugsa um hag fólksins í landinu, hvað þá heldur hag borgarbúa. Ég tek undir með Vilhjálmi Þ Vilhjálmssyni að standa vörð um hagsmuni borgarbúa og Reykjavíkurborgar eins og þú hefur ætíð gert með sóma.
Jóhann Páll Símonarson.