10.4.2009 | 13:06
Þyrlan sannar sitt mikilvægi.
Atvikið sem skeði í gær staðfestir að þyrlufloti Landhelgisgæslunnar verður að vera til staðar og vakir verða að vera allan sólahringinn til að geta farið í loftið strax og beðni berst. Samkvæmt þessu tekur Þyrluna 23 mínútur að fara í loftið vegna þess að þyrluflugmenn eru ekki til staðar heldur eru þeir á bakvakt sem þíðir að þeir þurfa að koma sér á áfangastað. Þetta kerfi gengur ekki upp með þessum hætti þegar sjúklingar eins og í þessu dæmi þurfa að komast undir læknishendur sem fyrst til þess eins að heilafrumur og annað verði ekki fyrir skaða. Eftir heilanum starfa limirnir.
Eins má benda á að þyrlufloti Gæslunnar hefur verið óflughæfur vegna bilana á sama tíma og meira að segja hafa báðar stóru þyrlunar verið bilaðar á þessu ári, þetta hefur komið fram í fréttum. Jóhanna Sigurðardóttir formaður Samfylkingar, Steingrímur J Sigfússon formaður Vinstri Græna, og leppur stjórnarinnar formaður Framsóknarflokksins Sigmundur Davíð Gunnlaugsson ætla sér að skera niður fjárframlög til Gæslunnar. Þess skal getið að uppsagnir hjá þyrlumönnum taka gildi nú í sumar þá verður ein þyrluáhöfn til staðar í 20 daga í hverjum mánuði sem þýðir að þyrlu áhafnir verða til staðar aðeins í 240 daga á ári.
Það er ömurleg til þess að vita að lífsbjörg sjómanna og allra landsmanna verður ekki til staðar nema hluta úr mánuði og hluta úr árinu samkvæmt áætlun Ríkistjórnarinnar sem er ábyrðarhlutur. Ef stjórnvöld ætla skilja við öryggismál sjómanna og landsmanna með þessum hætti. Verði þetta að veruleika þá þurfa sjómenn og landsmenn að mótmæla niðurskurði á þyrluflota og starfsmönnum Gæslunnar. Eins og framhorfir er þetta falskt öryggi.
Jóhann Páll Símonarson.
Þyrla í sjúkraflug | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Það verður erfitt fyrir aðra að fara í fótsspor Björns Bjarnasonar fyrrverandi dómsmálaráðherra sem hefur unnið þrekvirki í öryggismálum sjómanna og landsmanna undir sinni öruggri stjórn hans. Eins og allir vita var fiskiskip nýlega í vanda vegna vélabilunar undan Krísuvíkurbjargi, skipverjar brugðust fljótt við og létu anker skipsins falla samkvæmt fyrirmælum skipstjóra skipsins 1 sjómílu frá landi þegar skipið stöðvaðist vegna vélabilunar, sem betur fer, var ekki foráttu brim stað þess var hægur vindur. Um borð voru 15 menn í hættu, strax var brugðist rétt við og send út beðni um aðstoð enda var biðin ekki löng er 2 þyrlur birtust strax, björgun áhafnar undirbúinn, þegar átti að hífa sjómennina 15 um borð komst vél skipsins í gang og hægt var að hífa upp anker og sigla því til hafnar. Aðstoðin frá þyrlusveit Landhelgisgæslunnar var afþökkuð, í leiðinni henni þökkuð fyrir vel unnin störf fyrir að bregðast fljótt við útkallinu því 15 sjómenn voru í lífháska ef skipið hefði rekið upp í klettana.
Það vill svo vel til það var Björn Bjarnason sem byggði upp þyrluflota Landhelgisgæslunar og samdi um smíði og byggingu nýrri flugvél Gæslunnar sem kemur til landsins í sumar. Sömuleiðis á alvöru varðskipi sem verður sjósett á næstu dögum og verður afhent á næsta ári sem mun heita Þór. Nýja skipið og flugvélin munu geta tekist á við hættur ef þær skapast á næstu árum vegna stærðar afls og ganghraða til að komast á áfangastað. Undir öruggri stjórn Björns Bjarnarsonar fyrrverandi dómmálaráðherra hefur þetta tekist, hlúð var að öllum þáttum í starfsemi Landhelgisgæslunnar til að bregðast við þeim hættum sem sjómenn og almennir landsmenn hafa þurft á að halda. Enda er þyrlan og varskip sjúkrabifreiðar landsmanna á því liggur ekki nokkur vafi, ekki má gleyma áhöfnum skipa, flugvéla og ekki síst þyrluflugmanna sem hafa að undanförnu staðið í erfiðum verkefnum að bjarga og hjálpa fólki í vanda allt eru þetta hættuleg störf sem starfsmenn Landhelgisgæslunnar sinna.
Enn nú eru uppi hugmyndir nýrra ríkistjórnar að minka umsvif Landhelgisgæslunnar og draga úr þyrluflota og krafti Landhelgisgæslunnar með því að segja upp þyrlumönnum og áhöfnum skipa og hafa eina þyrlu áhöfn á vakt að sinna útköllum ef til sjávarháska kæmi. Það er ekki boðlegt ef frystitogari þyrfti hjálp að halda þá yrði sagt við höfum ekki þyrlu til staðar fyrir 24-30 manna til, hún er í öðru verkefni þetta er ábyrðarhlutur að svo skuli vera staðreynd. Þyrluflugmenn sem hafa staðið sig frábærlega fyrir landsmenn er lífsbjörg sjómanna og landsmanna sem þurfa að hafa þyrlu til staðar ef slyss eða björgun mannslífa er um að ræða. Skip landhelgisgæslunnar eru barn síns tíma og þurfa endurnýjun eins og hvað annað í okkar lífi. Það verður að segjast við erum að dröslast með skipaflota sem er kostnaðar samur og úreltur. Nú eru uppi hugmyndir að leigja nýja varskipið til Norðmanna. Ég á ekki orð yfir þessum hugmyndum Jóhönnu Sigurðardóttur formanns Samfylkingar, Steingríms J Sigfússonar formanns Vinstri Græna og Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar formanns Framsóknarflokksins sem er leppur þessara ríkistjórnar sem sammála að skera niður lífsbjörg sjómanna og allra landmanna. Þetta eru flokkarnir sem eru ábyrgir fyrir að draga kraftinn úr Landhelgisgæslunni á því liggur ekki nokkur vafi. Það skuli menn muna þegar og ef til þegar sjómenn eða landsmenn þurfa fá hjálp frá Gæslunni, þá hugsanlega verður sagt því miður þið verið að bíða við höfum ekki mannafla né tæki til staðar.
Enn Björn Bjarnason fyrrverandi dómsmálaráðherra það verður ekki sagt um þig, undir þinni stjórn hefur Landhelgisgæslan vaxið og dafnað enda sína það verk þín. Ég sem áhugamaður um öryggismál sjómanna og sjómaður til tugi ára vill ég koma á framfæri þakklæti mínu til þín fyrir frábært starf sem þú hefur gert í þágu sjómanna og landsmanna allra það skulum við muna.
Það var nefnilega Björn Bjarnason sem vann þetta þrekvirki í öryggismálum sjómanna og landsmanna allra.
Jóhann Páll Símonarson.
Nýtt varðskip sjósett fljótlega | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 10.4.2009 kl. 12:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.4.2009 | 13:28
Mun byrja fljótlega að blogga.
Kæru félagar eins og ég sagði í síðasta pistli mínum þá lofaði ég ykkur að segja hvað hefur skeð síðan ég tók mér smá frí frá bloggi mínu. Það var vegna andláts móður minnar sem lést 7 febrúar 2009 eftir stutta legu á Landsspítalanum við Hringbraut.
Móðir mín hét Björg Svava Gunnlaugsdóttir fæddist í Flatey í Breiðafirði þann 18 september 1927 foreldrar hennar voru Gunnlaugur Marteinn Gunnlaugsson fæddur í Ólafsvíkurhreppi 15 ágúst 1906 lést 16 janúar 1979. Og Borghildur Aradóttir fædd 30 ágúst 1891 í Hallsteinsnesi Gufudalssveit Barðastrandasýslu lést 20 nóvember 1941. Fjölskylda hennar fluttist frá Flatey þegar móðir mín var eins árs til Patreksfjarðar bjó þar hjá frænku sinni Ólínu Andrésdóttur í gamla vershúsinu og þaðan til Ólafsvíkur þar sem hún ólst upp þar til ferðinni var heitið til Keflavíkur og síðan Reykjavíkur þar sem hún lést.
Björg Svava Gunnlausdóttir var kaupmaður og listamaður fram í fingur góma stofnaði hannyrðaverslanir sem hétu verslun Bjargar þær urðu 3 talsins síðar hóf hún stofnun matvöruverslunar í Árbænum sem hét Seláskjör sem var ofarlega í Árbænum, eftir að þessu lauk snéri hún sér allfarið að fyrri störfum og ferðaðist í kringum landið í sölutúrum með föt og það sem fólkið á landbyggðinni þarfnaðist allt var til hjá Björgu sem fólkið vantaði og sérstaklega bændur sem voru þakklátir henni fyrir þjónustu sem hún veiti þeim það var nefnilega keyrt á hvern bæ. Þessum sölutúrum lauk þegar kraftar voru ekki lengur til staðar enn samt mátti reyna. Þetta er umfjöllun um mína elskulegu móður í stuttu máli.
Eitt skulu við öll muna það besta við lífið er.
Við vitum ekki hvenær við fæðumst, né hvenær við förum þessi orð eru sönn.
Jóhann Páll Símonarson.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
10.2.2009 | 00:57
Kæru vinir smá blogg frí.
Þetta eru sérstök tíma mót í mínu lífi. Ég hef ákveðið að trufla ekki neinn einasta mann þessa stundina vegna sérstaka ástæðna sem ég get ekki sagt frá að sinni. Mun upplýsa það þegar allt verður afstaðið. það er mín von að þið virðið það. Megi guð og gæfa vera með ykkur öllum.
Jóhann Páll Símonarson.
28.1.2009 | 12:55
Burtu með minnihlutastjórn Samfylkingar og Vinstri Græna.
Það er ekki glæsilegt sem nú stendur fyrir dyrum hjá þessum stjórnarflokkum sem standa að þessum samkomulagi um stjórnarmyndum. Það vekur furðu að Samfylking, Vinstri Grænir, Framsóknarflokkurinn, og Frjálslyndisflokkurinn, sem standa að þessari ríkistjórn skuli styðja hækkun skatta og lækkun launa skuli verja það. Það var létt yfir þeim var sagt í fréttum yfir hækkun skatta og lækkun launa. Ef þjóðin verður ekki brjáluð nú þá er ég hræddur um það.
Ég hefði haldið að fólkið væri búið að fá nóg af vertryggingu, hækkun skatta í jafnvel 40- 50 prósent og ekki má gleyma vaxtaokrinu sem er að sliga þjóðina. Nú ætlar Steingrímur J Sigfússon að taka megnið af laununum í skatta. Hvað með fyrirtækin í landinu á að hækka skatta á þeim ef svo fer þá munu eigendur sem eftir eru. Ekki þola það og fara með jafnvel með sínar höfuðstöðvar úr landi og þar með missum af skatta tekjum og atvinnumissi ekki glæsileg sýn.
Þess vegna verðum við öll þjóðin að mætta á Austurvelli þegar ný Ríkistjórn tekur við völdum og látum hanna hafa það óþvegið: Burtu með Samfylkingu - Burtu með Vinstri - Græna - Burtu með Framsókn. Burtu með Frjálslyndaflokkinn. Þetta verður kjör orð okkar. Minnihluta stjórn og þeir sem standa af henni burtu með ykkur Ingibjörg Sólrún - Steingrímur J Sigfússon - Sigmundur Davíð - Guðjón Arnar Kristjánsson og alþingismenn ykkar farið burtu ég hef fengið nóg.
Jóhann Páll Símonarson.
26.1.2009 | 00:12
Ringulreið ríkir í Samfylkingunni.
Eftir langa fundasetu hafa báðir stjórnaflokkarnir setið á fundum og ráðið þar hvað gera skildi. Björgvin G Sigurðsson sagði af sér sem viðskiptaráðherra og um leið sagði öll stjórn og forstjóri fjármálaeftirlitsins af sér . Og um leið tilkynnti Björgvin G Sigurðsson að hann myndi á ný sækjast eftir að að vera kjörin á þing aftur. Þetta eru skrítnar tilfærslur hjá Björgvini G Sigurðssyni eftir allt sem undan er gengið. Af hverju valdi hann þennan dag? Því sagði hann ekki af sér strax, fyrst hann var búin að athuga málið lengi ?. Undarlega skoðun hans finnst mér. Síðan er spurt hver taki við það veit enginn því stjórnin mun hugsanlega sjálfsagt springa í dag þá mun sjálfsagt allt fara á fullt í þessari baráttu flokkana. Enn ég ítreka og tek undir sjónarmið Geirs H. Haarde að ábyrg stjórn verður að vera við líði á meðan ekki er búið að kjósa nýja stjórn og hrinda þeim verkefnum í framkvæmd sem nú bíða úrlausnar í málum fyrirtækja og heimilanna í landinu sem búið er að ákveða um. Ekki má skilja landið eftir stjórnlaust segir Geir undir það tek ég.
Á meðan Ingibjörg Sólrún Gísladóttir var í sínum erfiðu veikindum. Á meðan voru boðaðir fundir víðs vegar um bæinn til þess eins að ráða skoðunum samfylkingarfólks hvað gera skildi næst. Það sem vakti athygli manna hvers vegna var verið að boða til þessara funda á meðan formaðurinn var ekki viðstödd og var í lögbundnu veikindaleyfi og átti erfitt bæði sálarlega og andlega. Allir muna eftir fundi sem var haldin af ákveðnum mönnum og var í Þjóðleikhúskjallaranum. Það er dapurlegt til þess að vita að félagar í Samfylkingunni skuli vinna í bakherbergjum til þess eins að grafa undan formanni Samfylkingar þegar hún á við veikinda að stríða, höfuðaðgerð vegna heilaæxlis. Ég get ekki annað sagt þetta eru hreinræktaðir aular sem þurfa að vera í sviðsljósinu. Ég hef heyrt í viðtölum við menn að þeim blöskri framkoma fárra einstaklinga sem að þessu stóðu til þess eins að rýra traust formannsins.
Síðan er maðurinn sem ekki nokkur maður hefur orð á Evrópusinninn Árni Páll Árnason alþingismaður fyrir Samfylkinguna sem var í bankaráði gamla Búnaðarbanka Íslands HF sem var og hét. Tökum dæmi frá 2002 nefnum nokkur nöfn. Árni Tómasson bankastjóri, Magnús Gunnarsson formaður bankaráðs, Árni Páll Árnason bankaráð Elín Sigfúsdóttir bankaráði og framkvæmdarstjóri fyrirtækjasviðs, Sigurjón Þ Árnason framkvæmdarstjóri rekstrarsviðs, Yngvi Örn Kristinsson framkvæmdarstjóri verbréfasviðs. Ég veit ekki annað enn að allt þetta fólk sem hér um ræðir eru nú í skilanefndum bankana nema Árni Páll Árnason. Enn sá maður hefur ekki haft sig í frammi gagnvart ummælum um banka hrunið eða gert athugasemdir við skilanefndir bankana á Alþingi.
Síðan er það skrítna í þessu öllu saman Ágúst Ólafur Ágústson varaformaður Samfylkingar á honum er ekki tekið mark hvað sem hann segir eða gerir athugasemdir við. Honum er ekki treystandi að leiða flokkinn á meðan Ingibjörg Sólrún er í veikindaleyfi heldur er Össur Skarphéðinsson betur treyst að vera varaformaður á meðan, enda reynslunni ríkari. Heldur enn pabba strákurinn honum er ekki treystandi. Það er ekki gæfulegt að fara með þetta fólk í næstu kosningar ég er ansi hræddur um að sú útkoma verði ömurlegt ef ekki kemur til uppgjörs meðal félaga í Samfylkingunni því vinstri öflin í flokknum eru að gera allt brjálað. Staðan eins og er Samfylking er að reyna að breiða yfir sinn innri vanda og stefnuleysi og upplausn sem hefur þar ríkt að undanförnu og hefur verið að aukast með hverjum degi sem líður.
Jóhann Páll Símonarson.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 00:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
24.1.2009 | 22:16
Easy To Fool er besta lagið.
Söngvakeppni Sjónvarpsins stendur nú yfir nokkur lög eru betri enn hin. Það vekur tiltrú mína að nú sé lagið komið sem yrði framlag Íslensku þjóðarinnar í næstu Söngvakeppni okkar. Easy To Fool eftri Torfa Ólafsson er afspyrnu flott lag og mjög grípandi. Ég yrði ekki hissa ef þetta yrði spilað hér á útvarpstöðum daginn út og inn á næstunni. Flytjandi lagsins eru þeir Arnar, Edgar, Sverrir, og Ólafur sem fara vel með lagið.
Ég tel þetta besta lag sem hefur komið fram á undanförnum árum í þessari keppni. Sem sýnir hvað mikið við eigum mikið af frábærum einstaklingum og lagahöfundum ekki er skortur á þeim. Ef við horfum til framtíðar þá er ég vissum að við gætum nýtt þessa hæfileika til markað setningar og tekju öflunar fyrir íslenska þjóð. Þetta mætti gera með því að efla aðstöðu tónlistamanna til frekari uppbyggingar fyrir Studio sem myndi síðan skila sér aftur í gjaldeyristekjur inn í landið. Nú er rétti tíminn að upphefja tónlistamenn til vegs og virðingar því við eigum mikið af þeim sem við vitum lítið um allt land. þess vegna þurfum við að efla og auka keppni á milli manna. Framlag Sjónvarpsins er mjög gott enn vantar meiri fagmennsku í að kynna löginn, þetta er nefnilega ekkert grín
Jóhann Páll Símonarson.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
22.1.2009 | 23:33
Ferðum á vegum Smyril - Line verður fjölgað.
Smyril - Blue -Water og Smyril- Line hafa gert samning sín á milli að Norræna munu nú í febrúar og mars snúa sér í að sigla til Íslands með vörur og farþega. Upphaflega var áætlunin að Norræna mundi ekki sigla til Íslands í febrúar og mars með vörur og farþega fyrr enn í apríl mánuði.
Hins vegar eru uppi nýir möguleikar sem hafa skapast á íslenska markaðinum þess vegna var gerður samningur á milli félagna Smyril - Blu - Water og Smyril - Line að auka þjónustu á íslenska markaðinum til þess eins að betur bæta þjónustuna við viðskipamenn félagana.
Fyrsta ferðin hjá Norrænu til Íslands verður þann 2 febrúar 2009 kl 14. skipið hefur verið í þurrkví í Hamborg til eftirlits og skipt var um nýjan velti ugga sem nú er verið að prófa. Til þess að skipið velti ekki eins og skoppara kringla og farþegar og áhöfn geti notið hvíldar. það vekur furðu þegar flutningar eru að dragast saman heiminum skuli skipafélög sem eru í eigu Færeyinga auka hingað flutningsgetu og það á Seyðisfjörð og má vel vera á aðra staði á landinu. Það skal tekið fram að annað skipið sem umræðir sem er gamalt skip leysti Herjólf af þegar hann var í slipp á Akureyri fyrir stuttu.
Jóhann Páll Símonarson.
21.1.2009 | 13:51
Lögreglumenn voru of prúðir við mótmælendur.
Mótmælendur í gær gengur of langt gagnvart lögreglumönnum hentu til dæmis skyri, grjóti í menn sem eiga að halda uppi lögum og reglum meira að segja brutu þeir rúður, kveiktu í vörubrettum, bekkjum, og hent bensíni á jólatré sem var gjöf frá Norðmönnum. Flestir sem þarna komu fram voru öfgamenn og unglingar sem höguðu sér eins og brálæðingar sem væru ný sloppnir út. Síðan kemur Hörður Torfason sem þykkist ekkert vita um stöðu mála, nema hann segir lögregluna hafa gengið of langt til þess eins að koma hér öllu í bál og brand. Þetta er ömurlegt til þess að vita hvers vegna lögreglumenn beittu ekki tilteknum ráðum gegn þessum villimanna líð sem er fámennur hópur manna sem þykkist vera heil þjóð.
Lögreglan þarf nefnilega að hætta að klappa þessum líð og taka á þeim sem brjóta lög föstum tökum þá er átt við að skemma það sem við eigum. Eins þurfum við að fá hjálp erlendis frá menn sem eru vanir að fást við þessi verkefni og sér þjálfaðir lögreglumenn á þessu sviði frá þýskalandi og fleiri þjóðum sem myndu taka á þessum líð. Það gengur ekki upp að láta fámennan hóp manna valda skemmdum dag eftir dag á því verður að taka tafarlaust og enga miskunn þá þíðir ekkert að væla þó að lögreglumenn nota kylfur þegar þeim er ofboðið, það er gert erlendis þegar menn hlýða ekki fyrirmælum..
Síðan er það Ríkissjónavarpið og stjórnendur þess sem sendir fámennan hóp starfsmanna sem tekur viðtöl og æsir í leiðinni upp mótmælendur og sýnir um leið þessum líð sem er að brjóta lög umhyggju og hvernig er farið með mótmælendur komast upp með það. Þjóðin er nefnilega í skildu áskrift að þessum fjölmiðli, sjónvarpinu væri nær að fjalla um mál sem eru að sliga þessa þjóð. Verðtrygging hverir komu henni á hún er enn við líði?. Hækkun á vöxtum hverir standa í vegi fyrir því að þeir lækki?, Af hverju er ekki búið að láta þá sem voru í eftirlitaðilar gagnvart bönkunum fara. Einn af æðstu stjórnendum gamla Kaupþingsbanka er sagður hafa farið með miljarða króna til eyja sem lifa í skattaparadís af hverju er þetta mál ekki rannsakað. Þetta er lítið brot sem ég nefni. Þjóðin þarf að fá svör hvers vegna er ekki búið að draga þessa menn til ábyrðar. Ríkissjónvarpið á að upplýsa þjóðina og halda þessu við, ekki fjalla eða taka viðtöl við einstaklinga sem brjóta lög.
Frá mínum sjónarmiðum er í lagi að mótmæla friðsamlega enn ekki að beita ofbeldi gagnvart þeim sem eiga að halda hér uppi lögum og reglum. Stjórnvöld hafa gott af því að heyra hug fólk ef það er gert með ábyrgum hætti eins og leikarinn gerði það voru fagleg mótmæli. það skilar engu að eyðileggja eigur þjóðarinnar og valda auknum útgjöldum frá okkur skattborgurum samkvæmt nýjustu fréttum nam síðasta tjón á aðra miljón fyrir utan allt annað sem er ekki sæmandi neinum sem á þarna hlut af máli það eitt styður ekki þennan málstað.
Jóhann Páll Símonarson.
15.1.2009 | 13:02
Eitt af stærstu skipafélögum heims A.P. Möller-Mærsk á í erfiðleikum.
Heimskreppan er farin að hafa mikil áhrif á skipafélög víðvegar um heiminn hefur þau áhrif að skipafélög víðs vegar um heiminn hafa lagt skipum sínum sem nemur í hundruðum skipa sem eru verkefna laus og þar með hafa sjómenn misst atvinnu sína og margir skipaeigendur missa hugsanlega skipin sín vegna skulda enda er nú of framboð á gömlum og nýjum skipum til sölu
Skipafélagið Mærsk-Line sem er eitt öflugasta fyrirtæki á danskri grund um árabil á nú við erfiðan rekstur að etja. Annað árið í röð og virðist engan enda ætla að taka. rekstartapið nam 7,7 miljarða króna árið 2007 árið 2008 nam tapið 20-22 miljarða króna. Tapið 2008 má rekja til hækkandi olíuverðs í heiminum, fallandi danskrar krónu sem dæmi. þetta eru stór tíðindi þegar skipafélag eins og Mærsk sem er brautryðjandi í skipasmíðum, gámasmíðum og hefur verið einn stærsti atvinnurekandi í Danmörku og hefur verið að minnsta kosti með í smíðum 1-3 skip á ári. Mærsk-Line stendur nú höllum fæti vegna vegna bágbornar eignarfjárstöðu og hefur orðið að segja upp 5000, 10000 atvinnutækifærum til að bregðast við þessum mikla samdrætti í heiminum.
Í gær kvöldi sendi Eimskipafélags Íslands frá sér afkomu viðvörun vegna fyrirséðar gjaldfærslu á 4 ársfjórðungi. þetta hefur verið gert vegna varfærnisjónarmiða um viðskipavild í samræmi við alþjóðlega reikniskilastaðla. Ennfremur kemur fram að að gert er ráð fyrir sölu eigna í Norður - Ameríku ljúki í í febrúar 2009 salan mun létta verulega á skuldasetningu félagsins. og þrátt fyrir erfiða skuldastöðu félagsins og óhagstæð skilyrði á fjármálamarkaði. Grun rekstur félagsins gengur vel. þá er lausafjárstaða félagsins tryggð og stöðug. Eimskipafélag Íslands er einn stærsti vinnuveitandi á Íslandi eins og Mærsk-Line í Danmörku.
Það er ekkert skrýtið þegar skipafélög eins og Eimskip og Mærsk-Line sem byggja sína afkomu á flutningum þurfi að draga saman í rekstri, skipakosti þegar eftirspurnin eftir þjónustu fer minnkandi. Olíuverð hefur verið í hæðstu hæðum að undanförnu. Verð hrun á skipum, eignum og fleiru sem mætti nefna. Þetta orsakar það að verð á skipum, eignum hríðfellur og minnkandi eftirspurnar, sem hlýtur að draga saman tekjur og versnandi afkomu skipafélaga vegna samdráttar í heiminum sem skipafélög eiga við að etja í dag þetta er svipuð staða og Eimskipafélag Íslands er í vegna afkomuviðvörunar sem félagið sendi frá sér í gær.
Þess skal getið að Eimskipafélag Íslands var stofnað 17 janúar 1914 eins og kunnugt er, hafi svo mikil áhrif á hag og sjálfstæði hinar íslensku þjóðar, þannig hefur þjóðinni gefist kostur, um leið að kynnast starfsemi félagsins sem best frá byrjun, Eimskipafélag Íslands á sér langa sögu í 95 ár sem félagið hefur starfað í flutningum og þjónustu. Nú þegar Eimskipafélag Íslands fagnar afmælisdegi sínum þann 17 janúar á laugardag viljum við landsmenn óska Gylfa Sigfússyni forstjóra Eimskipafélagsins til hamingju með afmælisdaginn, þú hefur staðið þig með eindæmum vel og hefur sannað það í verki. Eimskipafélag Íslands til hamingju með 95 ára afmælisdaginn megi Eimskip lifa um aldur og æfi.
Jóhann Páll Símonarson.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)