14 miljarðar undir koddanum.

Það var merkilegt að hlusta á þátt hjá Ingva Hrafni á ÍNN. Viðmælandinn var Jafet Ólafasson fjármálamaður sem er virtur á sínu sviði og er fjárglöggur maður. Hann benti á að 14 miljarðar væru undir kodda landsmanna. Ingvi Hrafn sagðist hafa vissu fyrir því að fólk sem hann hafði spurnir af, treystu ekki núverandi bönkum og geymdu peningana í niðurgrafna í görðum heima hjá sér. Jafet Ólafsson sagðist hafa heyrt af fólk ætti á milli 10 - 25 miljónir króna í bankahólfum sum væru troð full af peningum og mikill eftir spurn væri eftir stærri hólfum í bönkunum. Það kom fram í þessum þætti að 4 - 5 miljarðar væru í gjaldeyrir. Enda streymir nú gjaldeyrir inn í bankana sem var til þess að einn bankana afturkallaði lánsþörf fyrir erlendan gjaldeyrir til að mætta þörfum fólks sem væri að huga á utanlandsferðum. Enn nú ferðast fáir vegna samdráttar í efnahagslífinu.

Jafet Ólafsson ráðlagði þeim sem hefðu falið peninga sína að koma þeim í umferð og fá vexti á óvertryggðum reikningum á bilinu 15 - 17 prósent eins og staðan væri í dag. Sumir bankar bjóða uppá að greiða vextina mánaðarlega og halda höfuðstólnum sem er mjög gott.

Frekar enn að fela peninga heima hjá sér því peningar gætu brunnið og tryggingar borga ekki tjónið, eða fela peninga í garðinum heima hjá sér eða annars staðar. Þar gilda sömu lögmál ef peningar brenna og þeir verða eldinum að bráð.

Síðan var talað um stöðu mála, Jafet var mjög jákvæður og benti á að 500 miljarðar væru í jöklabréfum með greiðsludag fyrrihluta næsta árs , þetta væru bankar frá Þýskalandi og Austurríki sem ættu þessi jöklabréf. Til að halda þessum bréfum örlítið lengur væri hugsanlega best fyrir okkur að bjóða þeim vertryggingu á þessi lán. Þá er hugsanlega að þeir myndu hugsa sinn gang vegna lækkandi vaxta víðvegar um allan heim.

Að lokum var Jafet bjartsýnn á að verðhjöðnun yrði í febrúar - mars þá færi hugsanlega Dollarinn í 100 krónur sem dæmi og kvaddi alla sem ættu falið fé að koma þeim strax í öruggar hendur til að efla efnahagslífið í landinu.

Jóhann Páll Símonarson.

 


Hverskonar viðskiptasiðferði er þetta.

Ég er hneykslaður á fjármálaeftirlitinu og ráðherra banka mála Björgvini G Sigurðssyni skuli sætta sig þessa niður stöðu. Þarf ekkert að segja mér að Birna hafi ekki samið um kauprétta samninga eins og hún átti kost á. Það gerðu fleiri aðilar enn hún sjálf og urðu að standa við sína samninga með þeim skilmálum sem í samningi hennar stóð. Enn því miður virðist það vera niðurstaðan að gögnum hefur verið komið undan til þess eins að komast undan að greiða það sem henni bar. Nei þetta voru mistök gamla bankans segir hún sjálf, og ber við minnisleysi. Tóm þvæla segi ég. Var það ekki Björgvin G Sigurðsson ráðherra Samfylkingar sem skipaði hana í bankastjórastólinn hver skildi hafa gert það ef hann hefur ekki gert það. Það var hann sem skipaði hana í bankastjóra stólinn

Ég tel að forstjóra hjá Fjármálaeftirlitinu  ber að víkja úr starfi og eins bankamála ráðherra Samfylkingar Björgvini G Sigurðssyni þeir félagar hafa klúðrað mörgum málum. þess vega eiga félagarnir að segja af sér strax. Hugsið ykkur Birna Einarsdóttir stofnar félag sem heitir Melorka ehf sem er eignarhags félag í eigu hennar. Birna Einarsdóttir kaupir Sjö miljónir hluta á genginu 26,4 fyrir samtals 184 miljónir króna sem skráð voru í kauphöllinni. Það þarf ekki annað enn að fara í Kauphöllina til að staðfesta málið.

Það sem gleymist í umræðunni þeir sem eru innherjar ber að tilkynna fjármálaeftirlitinu. Birna er innherji, ef kaupin ganga til baka þarf að tilkynna að kaupin hafa gengið til baka. Þetta eru reglur sem öllum innherjum ber að fara eftir í samráði við regluvörð.

Ef þetta verður niðurstaðan í banka uppgjörinu þá mun ég kalla þetta spillingu og ekkert annað. Ég sjálfur var hluthafi með veð í bréfum og tapaði mínu og meira enn það. Enn samt varð ég að borga veðið sem var í bréfunum. Ekki gaf bankinn mér neitt eftir, frekar sóttu þeir á. Ég tel þetta mál vera mjög alvarlegt sem efnahagsdeild ríkislögreglustjóra ætti að skoða nánar og víkja Birnu Einarsdóttur úr starfi á meðan rannsókn væri í gangi og henni væri lokið. Fyrr verður ekki friður um þetta tiltekna mál. Ég sjálfur mun ekki sætta mig við svona framferði þeirra sem eiga hlut af máli.

Jóhann Páll Símonarson.  


mbl.is FME aðhefst ekki vegna viðskipta Birnu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvert fóru Peningarnir í Glitnir banka.

Hvernig stóð á því að fáir einstaklingar gátu yfirtekið banka án þess að peningar væru til staðar. Án þess að fjármálaeftirlitið og bankamálaráðherra Samfylkingar Björgvin G Sigurðsson gerðu athugasemdir við þessa menn. Þessir sömu menn bjuggu til eigið fé með því að lána sín á milli. Seldu fyrirtæki á milli sín, höfðu ekkert reiðufé. Til þess eins að auka gengi á bréfum í fyrirtækjum þeirra. Fjárhagstaða FL Group sem síðan hét Stoðir var afar slæm vegna gífurlegra skulda. Sem sömu stjórnendur lánuðu fé úr bankanum í þetta fyrirtæki.

 Fjármálaeftirlitið gerði ekki einu sinni athugasemdir við þessa menn. Þeir flugu í einkaþotum á milli landa á kostnað bankans, jafnvel var tekið á móti drengjum úr greiningardeildum bankana nýkomnir úr háskóla eins og miljónamæringum þegar þeir voru í boðsferðum á vegum bankana. Gistu á dýrustu og bestu hótelum sem var hægt að fá.  Þessir sömu menn áttu fyrirtæki Sterling, 10 -11, Kaldbak - Stím sem lítið dæmi. Það má segja að þetta voru sýndar hluthafar. 

Birna Einarsdóttir bankastjóri nýa Glitnir banka var með kauprétta samning fyrir tugi miljóna í gamla bankanum fyrir hrunið. þar með hefur hún skuldbundið sig til þess að standa skil á sínum gjörðum. Nei þetta var misskilningur sagði hún, sem betur fer fór þetta mál hennar ekki í gegn að hennar sögn. Hvernig gat þetta skeð hjá þessari konu sem er búin að vinna minna og meira í bankanum síðan 1987 að mig minnir ? Endurskoðunarfyrirtækið sem var að endurskoða gamla Glitnir banka skrifuðu upp á reikningana án þess að gera alvarlegar athugasemdir. Nú er þetta sama fyrirtæki að rannsaka gerðir gamla bankans stór undarlegt mál að mínu mati. Hvernig stendur á því að bankamálaráðherra og fjármálaeftirlitið skuli ekki hafa blandað sér í málið.

Á sama tíma missa 11 þúsundir hluthafar mikið af sínu sparifé í ýmsum sjóðum og verðbréfum og margir eru nú þegar gjaldþrota. Hvaða lög ná yfir þessa menn, þau eru eru ekki til. Er það virkilega satt að enginn af þessum mönnum þurfi að standa fyrir sínum gjörðum. Ef það verður ekki gert er þetta kjör aðstaða fyrir spillingu. það gengur heldur ekki upp að bankastjóri nýja bankans skuli sleppa undan að greiða tugi miljóna sem hún var samningsbundin bankanum að greiða. Á sama tíma eru hluthafar í málaferðum við ríkið vegna yfirtöku á bankanum. Og endurskoðunar fyrirtækið að rannsaka sjálfan sig. Ég tel þetta dæmi vera gróft brot um spillingu og í raun og vera ætti að setja þessa menn strax inn og rannsaka þá til hlítar. Hluthafar og viðskiptamenn eiga rétt á því að vita hvernig var af þessu staðið og hvert peningarnir fóru og hvað var gert við þá..

Jóhann Páll Símonarson.

 


Straumur á fljúgandi ferð.

Willam Fall forstjóri Straums hefur náð undraverðum árangri síðan hann tók við forstjóra starfinu. Enda hefur hann staðist öll próf sem hann hefur farið í gegnum. Ekki síst þegar flóðbylgja skall á fjármálalífið með hörmulegum afleiðingum með falli Landsbankans, Glitni, og Kaupþings og margir sitja nú með sárt ennið og vitja ekki sitt rjúkandi ráð og hafa tapað og sumir öllu sem þeir áttu. Sem ég skil mæta vel.

Straumur hefur staðið af sér þetta áfall vegna góðra eiginfjárstöðu, þessi staða er búin að vera lengi. Straumur hefur ætið skilað hagnaði og hluthafar hafa notið góðs af hagnaði fyrirtækisins. Starfsfólk er dýrmætasta auðlind fyrirtækisins á því vaxtarstigi sem bankinn hefur verið að ganga í gegnum með þekkingu, fagmennsku og heilindum.

Stafsmönnum hefur fjölgað á öllum afkomusviðum og stoðsviðum enda sýnir vöxturinn það starfsmönnum fjölgaði úr 80 manns í Reykjavík í 110 á árinu 48 starfsmenn starfa í London sex í Stokkhólmi og gæti fjölgað. Auk þess hefur starfsmönnum fjölgað í Kaupmannahöfn úr 11 í 23 starfsmenn á stuttum tíma sem sýnir glöggt dæmi hvað Willam Fall forstjóri og stjórn félagsins hefur náð góðum árangri rekstri Straums. Enda ákvað stjórnin að heildar arðgreiðslur yrðu fyrir árið 2007 48,9 miljónum evra sem samsvarar 0,0047 evrum á hlut eða 30% af hagnaði ársins. Við hluthafar getum verið stoltir að vera með í stækkun Straums á alþjóðavetfangi og hafa gott starfsfólk með okkur í stækkuninni sem mun stækka okkar hlut í framtíðinni.

 

Jóhann Páll Símonarson.     


mbl.is Bætt staða Straums
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Undirskriftarsöfnun í gangi.

Nú er í gangi undirskriftarsöfnun um að taka upp Dollar í stað krónu. Forsvarsmaður undirskriftar er bloggvinur okkar Loftur Altice Þorsteinsson þar færir hann góð rök fyrir sínu máli. Eins og menn eiga að gera. Ég hef áður fjallað um þessi mál. Enn þessi umfjöllun Lofts er ítarlegri enn ég gerði sjálfur.

Þess vegna vil ég benda þeim sem eru sammála honum að skrifa sig á þennan lista. Munum eitt sem er mikilvægt í lífinu látum ekki Evrópusambandið stjórna okkar högum og svipta okkur þar með sjálfstæðinu í leiðinni. Þess vegna tökum við upp Dollar í stað krónu og eru um leið engum háð nema okkur sem sjálfstæð þjóð.

Jóhann Páll Símonarson.


Hluthafar í Glitnir banka leita réttarins.

Fjöldi fólks og þeim fjölgar ört sem nú eru í sambandi að leita réttar síns á hendur ríkisvaldinu vegna hlutabréfakaupa í gamla Glitnir banka eftir að hann var yfirtekin með 75% eignahluta ríkisins. Sem síðar var breytt í algjöra yfirtöku. Og þar með töpuðu aðilar sem höfðu trú á ríkinu öllu sínu sem keyptu hlutabréf í bankanum með 75% eignarhluta ríkisins. Þessir aðilar sem standa að þessu hafa fengið sér lögmann í málið og ætla fyrst að ræða við ríkið um stöðu mála. Ef það gengur ekki upp munu þessir aðilar hefja málsókn og fara alla leið.  

Ef svo væri að þú ættir hlutabréf í gamla Glitnir banka eftir að ríkið yfirtók bankann og vildi bætast í hópinn gætir þú haft samband við olafur sigurdsson rikisbanki@gmail.com síminn hjá honum er 5546689 - GMS 8215166. 

Ég tel að fjölmiðlar hafa brugðist í þessu máli, þess vegna vil ég koma þessu á framfæri til ykkar.

Jóhann Páll Símonarson.

 

 

 


Steingrímur J Sigfússon braut Þingsköp Alþingis.

Það er ömurlegt til þess að vita þegar kjörin þingmaður virðir ekki reglur sem honum ber að fara eftir. Þegar hann sjálfur skrifaði undir þegar hann varð kjörin Alþingismaður og tók sæti á Alþingi. Það var sjálfur þingmaðurinn Steingrímur J Sigfússon sem bar vantrausttillögu upp, eins og allir vita.

það sem vekur upp spurningar hjá mér getur það verið rétt að formaður vinstri græna gangi ekki heill til skógar?. Getur það verið?. Hver vegna missti Steingrímur J Sigfússon stjórn á skapi sínu með þessum hrópum og köllum á Dómsmálaráðherra Björn Bjarnason sem var í ræðu stól að segja sitt álit. Björn Bjarnason benti Steingrími J Sigfússyni á að hann sjálfur hefði tafið fyrir því með fyrirvörum sínum og afstöðu, að hægt yrði að koma rannsóknarnefnd vegna bankahrunsins á laggirnar.

Viti menn Steingrímur missti stjórn á skapi sínu algjörlega og var eins og geðsjúklingur sem vissi ekkert hvað hann var að gera. Varð Alþingi til ævivarandi skammar, það var ekki fyrr en Björn Bjarnason gerði hlé á sinni ræðu augnablik og benti sinni athugasemd til forseta. Sem bað þingmenn að gæta hófs í orðavali. Þarna kom í ljós reynsluleysi forseta. Alþingismenn sem senda fúkkayrði til ráðherra meðan hann er í ræðustól ber að víta.

" Samkvæmt 89 gr Þingskapa.

Ef þingmaður talar óvirðulega um forseta íslands eða ber þingið eða ráðherra eða einhvern þingmann brigslyrðum eða víkur frá með öllu frá umtalsefninu skal forseti kalla til hans: ,, Þetta er vítavert" , og nefna þau ummæli sem hann vítir. Nú er þingmaður víttur tvisvar á sama fundi og má þá forseti, með samþykki fundarins, svipta þingmanninn málfrelsi á þeim fundi.

Ég tel þess grein eiga við geðtruflaða þingmann og formann VG. með því að hrópa og berja í axlir forsætisráherra Geirs Haarde. þetta upphlaup er honum til vansa og honum væri nær að líta sér nær að biðjast afsökunar á sínu framferði. Það er engum holt að þurfa ekki að viðurkenna mistök sín, það voru nefnilega börnin okkar sem horfðu á þetta í sjónvarpinu. Hvernig haldið þið að framtíðin verði þegar þessi skilaboð eru send út á meðal almenning. Er nokkur hissa þegar unglingar og fullorðið fólk stendur upp í hárinu á löggæslumönnum þá er það í lagi. Steingrímur J Sigfússon þú varst Alþingi og þjóðinni til skammar með þínu framferði.

Jóhann Páll Símonarson. 


mbl.is Segir Steingrím tefja rannsóknarnefnd
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er Kaldbakur að eignast Tryggingarmiðstöðina?

Fjárfestingarfélagið Kaldbakur varð til í ársbyrjun 2002 með yfirtöku allra eigna og skulda kaupfélags Eyfirðinga. Samruni Kaldbaks við hlutabréfasjóð Íslands tók gildi hálfu ári síðar.

Eftir hrun bankana virðast stjórnendur Nýja Landsbanka Íslands vera að semja við Fárfestingarfélagið Kaldbakur um yfirtöku á félaginu. þetta er sama fólkið sem var í forsvari í stjórnum bankana sem fóru á hausinn fyrir stuttu. Er þetta boðlegur stjórnunarstíll í íslensku samfélagi þegar þúsundir þjóðarinnar hefur tapað fé á stjórnendum bankana. Þessir sömu menn verða að sæta ábyrgð á sínum gjörðum undan því verður ekki komist.

Það er ekki verjandi að málin fari í hring eftir hring og niðurstaða verður engin. Ég tel að þessi sala verði að stöðvuð strax, og þessir aðilar sem ætla sér með þessum kaupum að ná undir sig fé félagsins, til þess eins að reyna að bjarga eigin skinni. Ég tel þetta vera ábyrðahlutur nýrar stjórnar Nýja Landsbanka Íslands ef þeir ætla að ganga til samninga við þessa menn. Nóg er komið þegar. Burtu með allt þetta fólk. Ríkisvaldinu væri nær að auglýsa Tryggingarmiðstöðina til sölu fyrst áður enn gengið er til samninga.

Getur það verið rétt að Jón Ásgeir Jóhannesson hafi borgað tugi miljóna króna í kosningarsjóð Samfylkingar fyrir síðustu kosningar og þess vegna hafið þeir nú forgang að kaupa Tryggingarmiðstöðina á afar góðum kjörum. Það væri fróðlegt að Viðskiptaráðherra myndi upplýsa þjóðina áður enn af sölunni verður. Samfylkingin er nefnilega ætíð að benda á aðra sem sökudólga enn gleymir sjálfum sér í hita leiksins. Þessi flækja er vart skiljanleg lengur hvernig menn stofna félög og jafnvel einn forsvarsmaður stendur fyrir öllu saman. Þetta ástand verður að stöðva.

Jóhann Páll Símonarson.  


mbl.is Kaldbakur eignast 12,5% í FL Group á genginu 7,28
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sjórán vinda upp á sig.

Sjórán undan ströndum Sómalíu eru að verða tíðari enn þau voru. Nú er svo komið að skipa sem sigla þessa hættulega leið eru í stöðugum ótta. Vegna þeirra hættu að verða fyrir árás sjóræningja og eigendur skipa krafðir um lausnargjald. Sjóræningjar eru sér þjálfaðir til þess að stökkva um borð á næturlagi án þess að nokkur verði var við þennan líð. Hugsið ykkur fríborðið á olíuskipinu Sirius Star sem var rænt nýlega hvað geta áhafnarmeðlimir gert sem eru með hættulegan farm innanborðs. Ekki neitt vegna þess að ekki má nota neitt sem getur valdið íkveikju.

Þetta er stærsti fengur sjóræningja til þessa sem þeir hafa gert atlögu að og náð skipi á sitt vald. Þeir eru ekki hættir því þeir hafa rænt fraktskipi frá frá Hon Kong fyrir utan stöndum Yemen. Nýjustu fréttir herma að fleiri fraktskip þar á meðal frá Íran, Grikklandi, og eitt fiskiskip með 16 áhafnarmeðlimum frá Tælandi hafi verið rænt í gærmorgun.

Rússar, Frakkar, Þjóðverjar, Spánverjar, Grikkir, Portúgalar, Svíar og Norðmenn, ætla nú að senda sín herskip til að vernda eigendur skipa fyrir sjóræningjum. Nú er stóra spurningin hvernig mun þetta ástand verða þegar þessi floti herskipa verður komin til Sómalíu. Alla vega er ekki hægt að glæpamenn komist upp með að stunda sjórán án þess að tekið verði á því með viðeigandi hætti.

Jóhann Páll Símonarson 


mbl.is Krefjast 25 milljóna dala lausnargjalds
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hættum að kenna öðrum um hvernig fór.

Ég tek undir með Gylfa Zoega deildarforseta og prófessor við Háskóla íslands. Þar segir hann að það sé ekki rétt að slást innbyrðis, undir það tek ég. Mikill umræða hefur verið um bankana eftir að þeir voru teknir yfir af ríkinu með þeim afleiðingum sem hlaust af þeim gjörningi. Skildi engum undra þau viðbrögð sem þjóðin hefur sent frá sér eru skýr. Að ekki verði unnið á sömu nótum og hefur verið um bankastarfsemi og eftirlitstofnanir sem hafa brugðist trausti þjóðarinnar.

það sem mig langar að koma á framfæri hvernig væri að við myndum hætta í bili að ræða um negatíf mál dag eftir dag og snúa umræðunni til betri vegar. Ég mæti ekki svo í vinnuna að talað er um það versta sem hægt er að hugsa sér ekkert jákvætt nema dapurleiki sem mætir mér. Það sama á við félaga minn sem hugðist taka sér smá hvíld frá þessari umræður með því að fara í sund. Nei það var ekki hægt þar var rætt um negatífa hluti og endaði með því að viðkomandi snéri við og fór heim aftur. Hugsið ykkur stöðugir fundir fólks sem mér finnst sjálfur vera sendiboða frá stjórnarflokkum í stjórnarandstöðu til þess eins að koma á óstöðugleika á milli fólks sem veit ekki hvern fótinn það á að stíga á erfiðum tímum. Nú er nóg komið af þessari umræðu fólk er þreytt og vill frá frið.

Það alvarlegasta er fólkið með fjölskyldur sem hefur misst allar eigur sínar og mun ekki geta haldið sína jólahátíð eins og við hin. Vegna þess að fólkið hefur tapað eignum sínum og veit ekkert hvert það á að snúa sér. þetta tiltekna fólk lokar sig inni og þorir ekki að tala við neinn. Hugsið ykkur ástandið hjá þessu fólki sem á ekki neinn til að tala við eða fá hjálp. Væri ekki nær að við myndum taka höndum saman og biðja presta landsins að opna kirkjur landsins til þess eins að fá birtu og ill í hjarta fólk og taka á móti boðskapi frá  Jesús KRISTI og boðskap um betra líf. Peningar eru ekki allt í lífinu, ekki förum við með peninga yfir gullna hliðið. Það er kærleikurinn sem er ofar í röðinni. Hins vegar væri gott að við myndum styðja hvort annað og reyna að hjálpa þeim sem hafa farið mjög illa út úr þeim hremmingum sem hafa riðið yfir fjölskyldur sem standa höllum fæti í lífinu. þegar stutt er í að jólin munu koma og hátíð í bæ. Gefum hvor öðru hlýu og ill í hjarta. Höldum áfram með lífið, það mun bita upp mjög fljótt og framtíðin mun verða björt, það sem eftir verður.

Jóhann Páll Símonarson.

 


mbl.is Gylfi: Ekki rétt að slást innbyrðis
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband