18.11.2008 | 14:38
Hvalur hf hefur fengið leyfið.
BBC- fréttastofa segir hafa eftir háttsettum embættismanni í japanska viðskiptaráðuneytinu að Hvalur hf hafi fengið innflutningsleyfi fyrir 60 tonnum af langreyðar kjöti sem hafði legið í tollgeymslu síðan í Júní. Jafnframt hefur kjötið verið rannsakað með heilbrigðiskröfur í huga.
Ég tel þetta vera fyrsti vísirinn að við getum hafið hvalveiðar að nýju og þar með nýtt hvalastofninn í samræmi við lög og reglur. Sjórinn er fullur af þessum dýrum sem éta þúsundir tonna af okkar fiskveiðarstofni á hverju ári. Nýlega sáust 2 Hnúfubakar í Faxaflóa að spóka sig, bátur sem þar var á siglingu með ferðamenn brá í brún að sjá þessi dýr svamla þarna í leit af fæðu. Þess vegna hvet ég stjórnvöld að gefa leyfi fyrir að hefja hvalveiðar að nýju.
Jóhann Páll Símonarson.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.11.2008 | 16:07
Tökum upp dollar í stað krónu.
Margar kenningar eru uppi sérstaklega frá þingmönnum Samfylkingar og ráherrum flokksins sem vilja taka upp evru og ganga í Evrópubandalagið strax. Því miður ganga málin ekki fyrir sig þannig, ferillinn er lengri enn fólk heldur. Fyrir utan það, allir skilmálar eru á þann veg að þjóðinni verður miðstýrt frá Brussel af Evrópubandalaginu. Þar með verðum við að beygja okkur undir þeirra reglur sama hvað raular og tautar. Þeir munu taka fiskimiðinn okkar sem hefur haldið í okkur lífinu frá aldar öðli. Var það ekki íslensk þjóð sem stóð í þorsveiði stríði við Breta, og unnu stríðið þrátt fyrir að þeir sendu hingað herskip á móti vopnlausri þjóð. Meira að segja Frakkar hættu, Þjóðverjar hættu og fleiri þjóðir sem stundu veiðar hér við land hættu. Vegna útfærslu landhelginnar í 200 mílur.
Ég er á þeirri skoðun að Sjálfstæðismenn eiga að gera tvíhliðasamning við Seðlabanka Bandaríkjanna um að taka upp dollar í stað krónu. Ég tel þennan kost vænlegri enn að taka upp evru og þeim skilyrðum sem evru mynt fylgir. Dollara myntin mun auka hagvöxt í landinu til langframa. Þess vegna eiga Sjálfstæðismenn strax að senda út okkar fólk og ná tvíhliðasamningum ekki seinna enn í næstu viku þá myndi þetta mál vera komið í höfn. Til þess að ná atvinnulífinu í gang verður að taka upp aðra mynt við getum ekki endalaust haldið áfram á þessari braut. Fyrirtækin eru að gefast upp, fjöldi fólks stendur nú uppi í sömu stöðu og fyrirtækin í landinu. Þess vegna tel ég Sjálfstæðismenn í kjör aðstöðu að skipta nú yfir í dollar og ná þar með yfirburðaforystu í stjórn landsins.
Jóhann Páll Símonarson.
15.11.2008 | 14:39
Glæpsamlegt athæfi stjórnar Giftar.
Er ekki rétt að sækja þessa stjórnarmenn til saka fyrir glæpsamlegt athæfi. Jú segi ég það á ekki að líðast í lýðræðislegu samfélagi þar sem eigur fólks eru gerðar upptækar. Fyrir um viku síðan hætti stjórnarmaður Giftar sem er Eignarhaldsfélag umfram skuldir Samvinnutrygginga sem var lagt niður.
Sigurjón Rúnar Rafnsson stjórnarformaður er hættur ekki hef ég fengið skýringuna hvers vegna hann hætti. Sigurjón er aðstoðarkaupfélagstjóri Kaupfélags Skagafjarðar. Ég veit ekki annað enn að Valgerður Sverrisdóttir, Finnur Ingólfsson, Ólafur Ólafsson hafi verið stjórnarmenn í þessu félagi og ekki staðið fyrir því að greiða eigendum sínum það fé sem þeir áttu í félaginu á til settum tíma. Sem stóð til að gera um 100 þúsund krónur sem ég kemst næst í þessu máli. Það var ekki gert stað þess voru peningarnir í vörslu gamla Kaupþings og fleiri félaga og nægur tími vannst til að greiða þessa peninga fyrir hrun bankana. Ekki var vilji til að gera það það dróst og dróst skýringar óljósar.
Er það líðandi og verjandi að starfandi þingmaður Framsóknarmanna Valgerður Sverrisdóttir skuli ekki segja af sér þingmennsku eins og Bjarni Harðarson gerði nýlega ég tel það vera. Fjárglæframönnum úr Framsóknarflokknum eiga að sæta ábyrgð. Framsóknarflokkurinn er ekkert undan þeginn í þessu máli. Rúmlega 50 þúsund fyrrverandi tryggingartaka hjá Samvinnutryggingum áttu rétt á greiðslum í samræmi við hlutafé.
Glæfrafólkið úr Framsóknarflokknum fjárfesti í Kaupþingi gamla og var tíundi stærsti hluthafi í bankanum. Þar með stærsta eign þeirra síðan tók Fjármálaeftirlitið yfir og eignirnar urðu að engu. Síðan eru það Exista og Icelander Group sem eru á fallandi fæti. Þetta eru örlög sem ekki er hægt að líða. Valgerður Sverrisdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins segðu af þér þingmennsku strax. Og þið hin sem eftir eru sem ég hef nafngreint það sama gildir um ykkur hin.
Jóhann Páll Símonarson.
Tugmilljarða eignir Giftar verða að engu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.11.2008 | 21:38
Kaupum notaða ferju strax handa íbúum í Vestmanneyjum.
Karl Gauti Hjaltason sýslumaður og bloggari í Vestmanneyjum ofbýður framganga Samgönguráðherra að hætta við samningsviðræður við þýsku skipasmiðastöðina um smíði nýs Herjólfs. Ég get ekki tekið undir margt enn ekki allt sem sýslumaðurinn segir.
Alvarlegasti hluturinn í máli sýslumannsins er að skipi og fólki er stefnt í hættu vegna tíðra bilana sem hafa verið að undanförnu segir sýslumaðurinn og nú er skipið með bilaða ugga sem hann talar um. Er þetta ekki veltu flapsar sem eru settir út á siglingu sem eru til þess að minka veltu skipsins ég hefði haldið það.
Það er alvarlegur hlutur ef farþega ferja sem flytur vörur og fólk sem ferðast með börnin sín milli lands og eyja er ekki í lagi. Ferju sem er siglt á erfiðasta hafsvæði heims þar sem veður eru válind. Það er ekki góð tilfinning að vita til þess að skip sé ekki í lagi. Hvers vegna stöðvar ekki Siglingarmálastofnu Ríkisins sem er eftirlitsaðili skips sem ekki er siglingarhæft. Er stofninn ekki að sinna skyldum sínum? Hvað ef bilaður bíll keyrir um göturnar er hann ekki færður til skoðunar. Jú hann er færður til skoðunar og annað hvort er klippt af honum númerið eða hann fær frest til að lagfæra hlutina. Hvað með flugvélar sem standast ekki kröfur. Þær eru stöðvaðar strax og skýrslu skilað til rannsóknarnefndar flugslysa. Ef sýslumaður í Vestmanneyjum ofbýður ástandið af hverju stöðvar hann ekki skipið strax með kyrrsetningu vegna þess að skipið stenst ekki þær reglur og kröfur sem á að fara eftir eins og hann bendir á vegna tíðna bilana.
Mér finnst hann rugla saman pólitík og öryggismálum skipa sem er sitt hvort málið. Vandi Vestamanneyinga er að þeir geta ekki notað samgöngur, eins og við hin sem getum keyrt um þjóvegi landsins. Enn því miður er sú þjónusta ekki til staðar nema með skipi því íbúarnir þurfa að greiða fyrir sína þjónustu hvort það er með flugi eða skipi þegar þeir þurfa að leita sér sérfræði þjónustu hjá læknum í Reyjavík eða annað sem lítið dæmi.
Einn bloggarinn talaði um frekju þeirra sem búa á afskektum stað. Þetta er ekki svaravert að mínu áliti. Ég tel mig þekkja til betur vegna viðkomu minnar sem sjómanns í ára tugi. Íbúar í Vestmanneyjum sem þarna búa eiga betra skilið enn skítkast frá fólki sem þekkir ekkert til staðhátta. Fyrst þessi staða er kominn upp þá stöðvum við framkvæmdir í Bakkafjöru og kaupum notaða ferju strax með góðan ganghraða á meðan ástandið er svona. Ég tek undir með íbúum þeir þurfa góða og örugga þjónustu eins fljótt og auðið er. Það verður ekki gert nema að kaupa notaða ferju fyrir minna fé enn að kaupa nýtt. Ég hef áður bent á þessa hugmynd.
Jóhann Páll Símonarson.
Smíði Vestmannaeyjaferju frestað | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.11.2008 | 00:03
Hver af þessum umsækjendum mun fá starfið?
þegar ég skoðaði umsækjendur þá voru þetta aðallega viðskiptafræðingar, 1 lögmaður og 5 konur. Hvers vegna sækja menntaðar konur ekki um þetta starf? Eru launin það léleg að þið hafið ekki áhuga. Eða þora konur ekki að sækja um vegna ótta við karlinn þessari spurningu vil ég varpa til ykkar. Mig grunar hver mun fá starfið ég mun tjá mig þegar ráðning liggur fyrir.
Enn konur hvar eru þið hafið þið ekki áhuga?. Kjörið starf fyrir ykkur og tími til komin að kona verði fyrir valinu.
Jóhann Páll Símonarson.
Yfir 30 umsóknir um starf framkvæmdastjóra LÍN | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
12.11.2008 | 17:45
Hvaðan kemur þessi gjaldeyrir?
Það er með ólíkindum hvernig hægt er að nálgast gjaldeyrir með því að hringja í uppgefið númer þá virðist allar ferðir vera færar. Mér brá illilega við þegar ég var að fletta fréttabalðinu í dag og var að skoða auglýsingar hvað væri til sölu og ýmislegt sem stóð til boða. þegar ég lít neðarlega á blaðið sé ég auglýsingu frá tveimur aðilum sem gefa upp símanúmer hjá sér.
Þar stendur Evrur til sölu bæði hér og erlendis 200 krónur evran. Uppl. í síma 8418311 ég fór að leita hver væri skráður eigandi upp kom nafnið Ólafur Björn Ólafsson Brekkubyggð 5 210 Garðabæ.
Hin auglýsingin hljóðaði svo. Evrur og dollarar til sölu, mikið magn til afhendingar hérlendis og erlendis uppl. í síma 6187001. Ég reyndi að fletta upp í símaskrá þar kom upp ekkert nafn.
Ég tek það fram það má vel vera að það sé prakkaraskapur í þessari auglýsingu og sé verið að koma höggi á viðkomandi. Enn auglýsingardeild Fréttablaðsins útbyr þessa auglýsingu og sér um að auglýsa það. Og viðkomandi greiðir fyrir auglýsinguna.
Ef þetta er allt rétt þá er komið hér upp á landi svartamarkaður fyrir gjaldeyri svipað og ég var til sjós og ég var að ferðast á milli landa í þá daga. Ég ætla rétta að vona að þessir dagar komi aldrei aftur. Hitt er svo annað mál hvaðan kemur þessir gjaldeyrir sem þarna stendur til boða.
Jóhann Páll Símonarson.
12.11.2008 | 00:47
Orkuveita Reykjavíkur á við fjárhagsvanda.
Ég tek undir frétt Morgunblaðsins að fjárhagsstaða sé mjög slæm hjá Orkuveitu Reykjavíkur. Hún er það slæm að ekki er hægt að bora tilraunaboranir lengur nema með leyfum frá Orkuveitu Reykjavíkur. Ef niðurstaða fæst þá má kannski bora 1 holu. Jarðboranir hafa sérhæft sig í að bora fyrir orkufyrirtækin í landinu og ennfremur fyrir erlend fyrirtæki og haft góðan orðstír vegna sér kunnáttu og fagmennsku sem þetta fyrirtæki hefur sýnt í áratugi.
Nýjar boranir voru fyrirhugaðar við Hellisheiðarvirkjun en nú hefur sú staða snúist við vegna fjárskorts og þar með hefur öllum framkvæmdum og borunum verið frestað og áhyggjur manna hafa aukist vegna fjárhagsvanda og niðurstöðu stjórnar Orkuveitu Reykjavíkur sem stjórnendur og borgarfulltrúar Reykjavíkurborgar trúðu ekki að það væri raunin.
Það hefur í för með sér alvarlegar afleiðingar vegna orkuvöntunar fyrirtækja sem nú er bíða eftir að fá orku til framleiðslu. Fyrirtæki sem vilja efla atvinnulífið og ekki veitir af þegar þrengir að á vinnumarkaði. Það vekur furðu að þetta stóra fyrirtæki Orkuveita Reykjavíkur sé nú illa statt fjárhagslega. Hvað hefur valdið þessari stöðu. ? Ég mun ekki trúa því að fyrirtækið hafi ekki nægt fé til rekstrar. Sjálfur mun ég ekki trúi því að helsta mjólkurkýr íbúa í Reykjavík sé á vonarvöl þessa dagana.
Það er furðulegt að Hjörleifur Kvaran nýráðin forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur hefur ekki hugmynd hvað fyrirtækið skuldar og hver staðan er. Ég tel að íbúar í Reykjavík muni ekki sætta sig við þessi svör forstjóra og fulltrúa Reykjavíkur í stjórn Orkuveitu Reykjavíkur eða stjórnenda Reykjavíkurborgar. Nú spyr ég? borgarfulltrúa Sjálfstæðismanna sem eru með meiri hluta stjórn í borgarstjórn sem áttu hlut í að fella fyrrverandi borgarstjóra Vilhjálm Þ Vilhjálmsson og sverta mannorð hans. Hvar eru þið nú?. Ég er ansi hræddur að risið á ykkur sé ekki hátt þessa dagana. Ykkur hefði verið nær að verja Vilhjálm á sínum tíma þegar landráðamenn reyndu að komast yfir auð Orkuveitu Reykjavíkur með öllum til tækum ráðum.
Stað þess hafið þið stunda eineltistilburði á hendur Vilhjálmi Þ Vilhjálmssyni. Þetta er staðreynt mála. þið sem hafði staðið af þessum tilburðum hafið skaða Sjálfstæðisflokkinn í leiðinni. Ég veit hverjir stóðu að þessum gjörningi og ég mun ekki sætta mig lengur við þetta ástand. Það gengur ekki upp að þetta fyrirtæki standi nú á brauðfótum og á ekki fé til framkvæmda og Hjörleifur Kvaran heldur áfram að segja ósatt eins og fyrrverandi samstarfsmenn, Vilhjálms Þ Vilhjálmssonar sem var komið úr embætti með slúðri og eineldi á hendur honum. Það munu síðar rísa hér upp öfl sem munu ekki sætta sig við þessa niður stöðu hvernig var farið óðgeðslega með Vilhjálm Þ Vilhjálmsson sem á betra skilið enn honum var boðið uppá á þeim tíma.
Jóhann Páll Símonarson.
Áform orkufyrirtækja í hættu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
10.11.2008 | 07:57
Hvar eru peningar sem svifu út úr fyrirtækjunum?
Nýlegt dæmi um að forstjóri FL Hannes Smárason hafi lánað 3 miljarða félaga sínum Pálma Haraldssyni til að kaupa flugfélag án heimilda hluthafa FL. Þessi sami forstjóri ber á móti þessu sögu sögnum og segir þær rangar. ? Þegar Hannes Smárason hætti sem forstjóri Fl fékk hann 120 miljónir í starflokasamning fyrir hvað veit ég ekkert um. Laun bankastjóra stórubankana voru ekki af verri endanum sem dæmi 163,5 miljónir króna á ársgrundvelli fyrir hvað veit ég ekki. Það voru fleiri sem höfðu svipuð laun og fóru með miljónir króna í starfslokasamningum.
Forstjóri skipafélags fékk um 140 miljónir í starfslokasamning þegar hann hætti störfum og skildi eftir sig sviðna jörð. Mörg eru dæmin sem hægt væri að taka. Skildi nokkru undra að fyrirtækin í landinu standi illa þegar fyrirtæki eru rekin með þessum hætti. Ef einhver mótmælti á hluthafafundum eða gera athugasemdir þá fannst þeim sem áttu hlut á máli, vera hreina móðgun við störf þeirra. Meira að segja verkalýðsforkólfur hafði í auka tekjur 6 miljónir króna fyrir fundasetu í banka í vinnutíma hans sem forystumaður og leiðtogi í verkalýðsfélagi. Á sama tíma eru launþegar sveltir í launum og ekki er hægt að borga hærri laun til þeirra sem hafa smánarlaun. Á sama tíma hafa forystumenn í atvinnulífinu áhyggjur af stöðu fyrirtækjanna skildi engum undra orð þeirra.
Jóhann Páll Símonarson.
Mörg fyrirtæki eru tæknilega gjaldþrota | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
9.11.2008 | 18:14
Í hvaða flokkum eru þessir öfgamenn ?.
Mér fannst þessi mótmæli sem voru á Austurvelli í gær snúast um skrílslæti, frekar enn að hafa einkvað til málana að leggja. Þarna var hópur af ungu fólki sem hagaði sér með grófum hætti og ekki voru þeir sem eldri voru betri til fyrirmyndar. Þessir sömu voru með stiga til að geta sent óharðnaða unglinga til að setja bónus fána upp á okkar löggjafasamkomu hið háa Alþingi. Þegar lögreglan hugðist biðja þessa ólátaseggi að hætta þessum aðgerðum þá stóðu þeir upp í hárinu á lögreglumönnum sem eiga að tryggja það að lög og reglur skulu haldnar.
Ömurlegt var að sjá hvernig unga fólkið hagaði sér með því henda eggjum, tómmötum, og jógúrt í Alþingishúsið er ekkert nema vanvirðing og dómgreindarleysi við þá sjálfa og fjölskyldur þeirra. Ég tel þess aðila sem eru stöðugt með þennan áróður dag eftir dag vera stjórnað af ákveðnum stjórnmálaflokkum sem vilja stjórna því sem þeim hentar. Á því verður að taka föstum tökum við sem þjóð getum ekki leyft öfgasinnum að taka löginn í sínar hendur. Það er gert með því að handtaka þá sem brjóta lög og virða ekki reglur og láta þá sæta ábyrgð á sínum gjörðum.
það verður að stöðva þessar mótmæla útisamkomur strax með öllum tiltækum ráðum, við getum ekki látið öfgahópa stjórna ólöglegum aðgerðum til þess eins að skapa óróa og ótta fólks. Hörður Torfason sem er einn af mótmælendum var spurður af fréttamanni hvort þetta væri ekki einelti gagnvart stjórnvöldum"? Ég veit ekki annað enn að sá sami maður hafi flúið land sem hann var fyrir einelti sjálfur á sínum tíma, hann sjálfur er kannski búin að gleyma því.
Ekki má gleyma hér fjölmiðlum sem hafa kynnt undir þessum áróðri. það vekur furðu að nú gjósa upp hagfræðingar sem hafa ekki verið mikið í dagsljósinu að undanförnu, hvaðan skildu þessir menn hafa verið að undanförnu, þeir eru hver með sína skoðun eins og við öll. Ég hef ekki séð neinn af þessum mönnum sem ber af. Samt hafa þeir mentað sig og lært eftir sama lögmálinu í hagfræði þá er átt við kenningar. Stóri vandinn í þessu þjóðfélagi er að nú er að ryðja sér til rúms hópur af öfgafólki sem sækir sér hugmyndir frá öðrum þjóðum. Ef við sem þjóð gerum ekkert í þessum málum þá mun einn daginn skapast hér vandræða ástand. Til þess verðum við öll sem viljum ekki að þetta ástand fari lengra, að hlýða fyrirmælum lögreglu og standa með lögreglumönnum í þeirra verkum til þess ein að okkur líði betur.
Jóhann Páll Símonarson.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
5.11.2008 | 11:53
Dagur B Eggertsson jók skuldir borgarbúa.
Nýr hafsögubátur var siglt til landsins frá Damen Shippyards Hollandi í vikunni frá fulltrúum skipasmiðastöðvarinnar. Siglingin gekk vel enn Hollendingunum leyst ekkert á veðráttuna á leiðinni til Reykjavíkur. Báturinn er nú til prófunar og hefur verið í verkefnum síðan hann kom til landsins. Hafsögubáturinn verður skírður Jötunn á föstudaginn með virðulegri athöfn á vegum Faxaflóahafna.
Það sem alvarlegasta í þessu máli er að borgarfulltrúi Samfylkingar Dagur B Eggertsson setti fram þá kröfu að hafsögubáturinn færi í útboð og þar með tafðist smíði bátsins vegna þess að búið var að panta bátinn og hann var komin í smíðaröðina. Þegar ákvörðun Dags lá fyrir þá varð að semja upp á nýtt og báturinn varð að fara í nýja smíðaröð og Faxaflóahafnir urðu því að greiða hærri upphæð enn til stóð vegna gífurlegar gengisbreytingar sem hafa orðið á tímabilinu.
Það er ömurlegt til þess að vita að borgarfulltrúi Samfylkingar hefur komið íbúum í Reykjavík í meiri skuldir, ef hann hefði hugsað málið út frá öðru samkomulagi sem Faxaflóahafnir höfðu gert.
Hitt er svo annað mál sem ég tel mjög brýnt að keyptur verði stór og öflugur dráttarbátur eins og þeir eru með og eru í notkun í okkar nágranalöndum. Þessir litlu bátar ráða ekkert við þessi stóru skip sem hingað koma til landsins ég nefni þessi stóru farþegaskip, stór súrálskip, sem koma til landsins og þurfa hjálp í vonum veðrum. Ég ætla ekkert að gera lítið úr þessum kaupum, þessir bátar sem hafa verið keyptir og smíðaðir frá sömu skipasmiðastöð. Hægt er að nota þá við aðstoð á minni skipum og þurfa að vera til. Það væri gaman að vita hvað fyrra tilboðið hljóðaði uppá?. Og það síðara? Eingöngu til þess að skattgreiðendur í Reykjavík gættu séð mismuninn.
Jóhann Páll Símonarson.
Nýr Jötunn til hafnar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |