Fólskuleg árás á lögreglumann.

Það var dapurlegt að horfa uppá það í sjónavarpinu í gærkvöldi þegar ráðist var á lögreglumann í beinni útsendingu. Því miður var þetta atvik ekki til stuðnings málstað vörubílstjóra. Svona lagað er ekki til framdráttar mótmælendum. Síðan kemur talsmaður vörubílstjóra og þykkist ekkert kannast við viðkomandi, segir síðan við frétta mann" afverju var ekki sendur sjúkrabíll handa honum sem réðist á lögreglumanni? skrýtið. Síðan endurtekur Sturla hann var að koma úr aðgerð á hné hvernig vissi hann það þetta er ekki boðlegur málflutningur. Síðan dregur hann ummælin til baka:

Það er auðvelt að vera vitur eftir á og viðurkenna sín mistök. Nú held ég að það sé of seint og sá sem þetta gerði verði látin sæta ábyrgð á sínum gjörðum að tilefnislausu. Það verður að segjast þetta var fólskuleg árás á lögreglumann sem var vinna að framkvæma að lög og reglur væru virtar. Nú tel ég að málið sé komið í hendur dómara þessa lands.

Jóhann Páll Símonarson. 


mbl.is Líklega ákærður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Látum ekki öfgamenn komast upp með hótanir.

Ágættu íslendingar nú er mælirinn fullur hjá mér þegar menn eru farnir að skrifa undir nafni og hóta okkar góða og trausta Dómsmálaráðherra Birni Bjarnasyni öllu illu. Þessi orð sem þessir öfgamenn hafa uppi eru það alvarleg að þau jaðra við samsæri á hendur Birni Bjarnasyni sem hefur ekkert saknæmt gert nema að framfylgja lögum í landinu sem við höfum sætt okkur við og eru þjóðfélagsþegnum til verndar. Til þess höfum við lögreglu til að halda uppi lögum og reglum í þessu landi okkar. Nú vill svo vel til að á undanförum dögum hafa vörubílstjórar gengið berserksgang um götur borgarinnar og gert ítrekaðar tilraunir að taka völdin í sínar hendur með öllum tiltækum ráðum. Með því að stöðva umferð bíla almennaborgara sem eru á leið í vinnu eða til annarra verka þeir hafa ekki farið að fyrirmælum lögreglum sem er mjög alvarlegt mál. Sem er hrein og uppreisn gegn lögunum í þessu landi. Meira að segja hafa vörubílstjórar og sendibílstjórar gert aðsúg að lögreglumönnum í starfi ekki er það til að bæta hegðun þeirra sem er með eindæmum að fullornir menn skulu haga sér með þeim hætti, þá tala ég ekki um blessuð börnin sem horfðu á þetta í sjónvarpi og urðu hrædd sem skiljanlegt er.

Þá spyr ég hvað er til ráða þegar fámennur öfgahópur tekur sig til og tekur völdin um stundar sakir. Eitt get ég sagt íslendingum ef atvinnubílstjórar og sendibílstjórar myndu haga sér með þessum hætti í þýskalandi væri búið að bæla þetta strax niður með þeim ráðum sem þeir hafa og það eru ekki nein vettlingatök sem þeir myndu taka þessa óróaseggi. Ég skal segja ykkur mína reynslu því ég var nefnilega staddur að versla í Þýskalandi þegar ofbeldismenn eins og þessir bílstjórar gerðu reyndu að taka völdin í sínar hendur. Lögreglumenn börðu þá sundur og saman þangað til hópurinn tók á flug og reyndi að koma sér burtu með öllum tiltækum ráðum. Enn fjöldi mann voru handteknir og látnir sæta ábyrgð á sínum gjörðum.

Ég hvet Björn Bjarnason að taka þetta mál föstum tökum flýta málsmeðferð á þessum mönnum sem fyrst breyta lögum og reglum á þann veg að herða refsi ramman við alla sem óhlýðnast fyrirmælum lögreglu og beita lögreglumönnum ofbeldi og meiðslum við þessu verður ekki þagað lengur við erum mörg sem eru búinn að fá nóg af þeim sem ætla að taka lög og reglur í sínar hendur

Björn Bjarnason og lögreglumenn í landinu þið hafið staðið ykkur vel í ykkar erfiðum störfum. Tökum höndum saman og brjótum þetta bak og burtu. Ég vil ekki horfa upp á þetta aftur. Til þess verðum við að handtaka alla með sem brjóta lög landsins og láta þá alla sætta ábyrgð á sínu. það verður ekki gert með skýrslutöku og síðan fara þessir menn út frjálsir þar til dómur verður kveðin upp um síðir. Þess vegna næst ef þeir ætla að taka völdin í sínar hendur. Lokum þá inni þar til dómur hefur verið kveðinn upp í þessu máli. Við getum ekki látið fámennan hóp manna taka völdin í sínar hendur. þetta mál er mjög alvarlegt og dómarar verða líka að hugsa svipað og þjóðin gerir.

Jóhann Páll Símonarson.


mbl.is „Gerðu þjóðini greiða og skjótu þig"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ákvörðun sem íbúar vilja ekki.

Það er undarlegt til þess að vita að nú ætlar Vegagerð Ríkisins að þröngva þessari hugmynd upp á íbúa í Vestmanneyjum og hafið kynningu á frummatsskýrslu sem lögð hefur verið fram fyrir byggingu Bakkafjöruhafnar. það má spyrja af hverju var þessi skýrsla ekki lög fram fyrir löngu til þess að íbúar gætu kynnt sér þetta betur og komið með hugmyndir sem gætu komið að góðum notum. Maður spyr sig líka af hverju er verið að framkvæma verk sem er gegn vilja flestra sem búa í Vestmanneyjum  enda sýndu undirskriftir það fyrir stuttu. Samgönguráðherra Samfylkingar Kristján Möller  var afhentur þessi mótmælalisti enn hann sagði fullum fetum það væri búið að ákveða þessa leið og hún skildi byggð hvað sem það kostaði. Ég tel þessi ummæli háttvirts ráðherra sína hroka og valdníðslu og hlusta ekki á skoðanir fólks sem hefur aðrar hugmyndir sem gætu nýst í þessu máli.

Það vill svo vel til að ég var í stórum hópi manna úr Vestmanneyjum fyrir stuttu þá kom einmitt þetta mál upp á borðið og menn voru ekki sammála Samgönguráðherra varandi Bakkafjöru þeir sögðu það væri hægt að byggja þetta á öðrum stað sem ekki hefði verið kannaður aðeins vestar sögðu þeir. Ég hef líka spurt skipstjóra sömu spurningar þeir segja sjálfir þetta mun ekki ganga upp. Því þegar skipið siglir inn og öldurótið sé mikið geti það kastað skipinu til og það orðið stjórnlaust í þessari rennu. það hljóta allir að sjá hvað myndi ske ef skipið væri með mikið af farþegum og ekki væri hægt að stjórna skipi á ferð. Enda sýndi myndband sem nýlega var tekið af lóðsinum þegar hann var í prufutúr það vantaði ekki mikið að þessi stóri og sterki bátur myndi fara þarna upp. enda fékk báturinn á sig tvö brot þessi sjón var ekki fögur.

Síðan kemur kostnaður og öll uppbygging hafnarmannvirkja og vega sem nemur hundriði miljóna króna úr vösum skattborgara. Það er mín skoðun það væri betra að kaupa notað skip strax sem myndi henta íbúum í Vestmanneyjum í stað þess að henda peningum út í loftið. Samgönguráherra væri nær að kynna sér málið betur áður enn hann gefur út skipun að verkið getur hafist. Gegn vilja íbúa og aðra sem þurfa að nýta þér þessa þjónustu.

Jóhann Páll Símonarson.

 


mbl.is Frummatsskýrsla lögð fram og kynnt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Glæsilegur árangur á Laugavegi.

Fyrir einum mánuði síðan bloggaði ég um veggjakrot á Laugavegi og Hverfisgötu. Ég og konan mín fórum gangandi niður Laugaveginn í dag viti menn sjón okkar var allt öðruvísi enn fyrir einum mánuði. Nú hafa verslunareigendur og borgaryfirvöld tekið höndum saman og fært Laugaveginn í annan búning að hætti síðara manna búið var að mála og þrífa hús og verslunareigandi var með fjölskyldu sína að mála og hlúa að sinni eign. Eins tókum við eftir það var búið að loka húsum á snyrtilegan hátt sem biðu eftir að verða rifin. Þetta er stórkostlegt framtak sem sýnir hvað er hægt að gera ef vilji er fyrir hendi.

Það sem kom mér í opna skjöldu hvað var mikið af brotnu gleri og tyggjó klessum eftir nætulífið á Laugaveginum. Sem sýnir í raun að fólkið sjálft ber enga virðingu hvorki fyrir sér né öðrum og  eigum annarra. Þá spyr maður sig hvað er til ráða? Væri hægt að fjölga sýnilegum lögreglumönnum niður Laugaveg um helgar og láta þá sem bera ábyrgð á þessum óþrifnaði sæta sektum sem væru verulegar hár og síðan skyldaðir í þegnskildu vinnu að hreina eftir sig. Þetta gæti verið lausn á málinu ef menn væru staðnir að verki. Þessar hugmyndir er vert að skoða til þess að koma í veg fyrir óþrifnað af mannavöldum.

Það sem ber af í þessum umræðum er hvað verslunareigendur, borgayfirvöld, formaður borgarstjórnar, og borgarstjóri hafa verið dugleg að koma þessu í lag. Það er allt annar bragur á þessu í dag enn var fyrir einum mánuði síðan. Þið öll hafið mínar bestu þakkir fyrir ykkar framlag eftir því verður tekið þegar fólk á leið niður Laugaveginn á því liggur engin vafi. 

Jóhann Páll Símonarson.


Stjórnendur Tollgæslunar í Reykjavík beita sjómönnum valdníðslu.

Þetta eru ekki fögur orð sem stendur hér í fyrirsögn. Á sama tíma og tollverðir á Keflavíkurflugvelli þar sem nær miljón farþegar fara í gegnum við komu til landsins. Þeirra árangur að gera upptækt  fíkniefna smygl er hreint út sagt frábært ásamt fleiru og eiga þeir þakkir skilið fyrir sín vökuleg augu. Það sama á ekki við alla tollverði í Reykjavík. það sem vakti  áhuga míns á þessu máli er að við komu skipa til landsins þurfa áhafnarmeðlimir nú að fylla út toll lista við komu til landsins hvað menn eru með. það sem alvarlegasta er í þessu máli er, til þess að áhafnarmeðlimir geti farið í land.beita tollgæslumenn óvenjulegu aðferðum ómerktum lista á honum stendur fylgisskjal með skipverjalista. þar þurfa skipsverjar að skrifa stöðu manna, vörulýsingu, og vermæti samkvæmt reikn.Tollverðir hafa í hótunum við áhafnir ef menn skrifi ekki á ómerkta lista og verði samvinnu þýðir, þá muni tollverðir tefja fyrir afgreiðslu skipa ef áhafnir hlýða ekki fyrirmælum tollgæslumanna. Ég tel þennan lista persónunjósnir og sjómenn séu ekki jafnir fyrir lögunum eins og hin almenni borgari sem kemur til landsins. Þið getið rétt ímyndað ykkur stöðuna ef tollverðir frá Reykjavík myndu beita sömu aðferðum á Keflavíkurflugvelli við komu farþega erlendis frá.

Ég veit til þess að þetta mál er komið í hendur Persónuverndar sem mun fjalla um málið, hvort sjómenn séu jafnir fyrir lögunum. Það er svo undarlegt með unga menn eins og Rúnar Gunnarsson heitinn söng fyrir þjóðina hér á árum áður. Ég segi þetta vegna þess að nú eru ráðnir tollverðir sem hafa litla þekkingu eða vita ekki hvað er að vera tollvörður heldur eru ráðnir óharðnaðir unglingar sem eru jafnvel blautir á bak við eyrun og rignir upp í nefið á þeim. Vegna þess að þeir eru opinberir starfsmenn sem kunna ekki með sitt vald að fara. Já þetta er ekki gott og á sama tíma og tollverðir á Keflavíkurflugvelli taka hvern mann á eftir öðrum sem reyna að koma ólöglega með fíkniefni undir belti því þar vinna fagmenn sem kunna til verka enda sýna tölur það. Ég tel að starfsaðfarir tollgæslunnar í Reykjavík verða að breytast eins og gerist erlendis við þurfum ekki lengra að fara til Færeyja til að innleiða aðra starfshætti. Við eigum ekki að láta misvitra stjórnendur og starfsmenn eyðileggja starf tollgæslunnar að elta ólar við tittlingaskít sem skiptir ekki máli. Við eigum í staðinn að efla tollgæsluna með ýtarlegri leit að fíkniefnum og leit í gámum sem fara til viðskiptamanna þar eigum við að eyða kröftum tollgæslunnar í stað þess að beita sjómönnum ólöglegum þvingunum.

Jóhann Páll Símonarson.


Við skuldum börnunum betri aðbúnað.

Grunnskólinn var á sínum tíma fluttur yfir til sveitafélaganna eins og allir vita. Ábyrðin á grunnskólanum er sem sagt sveitafélaganna og í okkar tilviki borgarinnar. þegar ég tala um ábyrgð á ég ekki aðeins við ábyrgð á uppbyggingu skólahúsnæðis heldur líka á innra starfi skólanna og í íþrótta og æskulýðstarfi. Þótt námskrá grunnskólans sé á ábyrgð Alþingis og menntamálaráðherra þá eiga borgaryfirvöld að láta sig innra starf skólans varða.

það er enginn sem getur bannað borgaryfirvöldum að bjóða uppá meiri tungumálakennslu en námskrá gera ráð fyrir. það er enginn sem getur bannað fræðsluyfirvöldum í Reykjavík að bjóða börnunum borgarinnar upp á meiri þjálfun í stærðfræði en námskrár gera ráð fyrir. það er ekkert nema framtakleysi borgaryfirvalda sem kemur í veg fyrir að okkar börnum sé boðið uppá meira en það lámark sem námskrár skyldur þau til að læra. við skuldum börnunum okkar betri framtíð sem byggist á fjölbreyttu námi og undirbúningi fyrir sjálft lífið.

Sama er að segja um tómstundir barna og íþróttir. það er samdóma álit allra þeirra sem vilja sjá að þol og þreki grunnskólabarna og unglinga fer hrakandi. Ástæðan er innivera, fábreitt tómstundastarf og minnkandi kröfur um árangur í íþróttum. Hér er það skylda þess sem ber ábyrgð á grunnskólastarfi að grípa inn og beina börnunum af þessari braut. Við verðum að gera þá kröfu til borgaryfirvalda að þau tryggi börnunum betri aðbúnað til íþróttaiðkunar en bíði ekki alltaf eftir að aðrir geri það. ÍSÍ eða KSÍ eða íþróttafélögin. Það er skylda borgaryfirvalda að taka frumkvæðið og verða sá hvati í skóla og íþróttastarfi sem þarf til að bæta innra starf skólana og íþróttamenninguna í tengslum við þá. Við eigum ekki að láta það viðgangast að sjá börnin okkar fitna og þyngjast ár frá ári án þess að grípa þar inní. Í skóla og íþróttamálum eigum við að berjast fyrir að börnin stökkvi lengra, hærra, og hlaupi hraðar en jafnaldrar þeirra í öðrum löndum. Við skuldum börnunum það veganesti.

Jóhann Páll Símonarson.

 


Frábært framtak hjá Vilhjálmi Þ Vilhjálmssyni.


Ég tek undir með Vilhjálmi þ Vilhjálmssyni að taka til hendinni og koma á skipulagi hvernig menn eiga að bera virðingu fyrir eigum annarra. Til þess þurfa borgaryfirvöld ekki að greiða úr vösum skattborgara til að koma þessum hlutum í lag. Enn að þrífa götur og gangstéttir það er sameiginlegt mál okkar allra borgarbúa að greiða. Enn skemmdavargar og þeir sem halda ekki sínum húsum við ber að standa undir kostnaði á sínum eignum og skemmdum. Ef borgaryfirvöld þurfa að koma að málum. Það er svo annað mál að það þurfi að blogga um hlutina til þess að fjölmiðlar taki við sér og kjörnir borgarfulltrúar vakni af værum blundi eftir mikla umræðu að undanförnu í fjölmiðlum.

Þess vegna fagna ég því að formaður borgaráðs Vilhjálmur Þ Vilhjálmsson hefur tekið málið í sínar hendur og komið málinu af stað því ber að fagna. Hitt er svo umhugsunarefni hvers vegna oddviti Framsóknarmanna Óskar Bergsson hefur ekki látið þetta tiltekna mál til sína varða. það sama á við oddvita Samfylkingar Dag B Eggertsson. og oddvita vinstri græna Svandísar Svavarsdóttir þessir aðilar eiga það sameiginlegt að vera sama hvernig sóðaskapur og veggja krot er að þróast með ótrúlegum hætti án þess að þessir aðilar hafi áhuga að koma þessum málum í lag eins og nýleg dæmi sanna. Vilhjálmur Þ Vilhjálmsson þú átt mitt hrós fyrir þitt framtak.

Jóhann Páll Símonarson. 

 

 

 

 


mbl.is Átak gegn niðurníðslu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvar eru borgafulltrúar Reykjavíkur ?.

Veggjakrot í Reykjavík hefur stór aukist frá árinu 2006 í dag hefur þetta gengið svo langt að nú verður að taka til hendinni og stöðva þetta veggjakrot tafarlaust með öllum tiltækum ráðum. það verður ekki gert nema að borgayfirvöld leggi fé í málið og hafi samband við Björn Bjarnason dómsmálaráðherra til að fá hann til liðs við borgaryfirvöld til að upprædda þessa skemmdavarga sem vinna þennan verknað í skjóli nætur. Nú er svo komið að verslunareigendur við Laugaveg blöskrar skilningsleysi og aðgerðaleysi borgarfulltrúa Reykjavíkur sem virðast vera sama hvernig þetta er að þróast. Ég átti nefnilega leið niður Laugaveg í gær ég verð að segja að mér blöskraði að sjá þetta veggjakrot víðsvegar á leið minni niður Laugaveg og hvernig þetta er að þróast. Það sem stakk mig mest að þeir sem gera þennan verknað merkja sér sitt svæði með sínum nöfnum og veigra sér ekkert undan því.

Síðan geta menn gengið upp Hverfisgötu á miðri leið beint á móti Ríkey þar er búið að krota á vegginn allskonar krot  það fer ekki framhjá neinum sem ganga eða keyra upp Hverfisgötu þetta blasir við manni. Þeir sem hafa krotað hljóta haft mikið fyrir því. Hvernig komast menn þarna upp án þess að fólk sem þarna býr verði þess vart ? Hvers vegna gera borgaryfirvöld ekkert í málinu? þetta eru stórar spurningar sem verður að svara sem fyrst. Ég tel að eigendur húsa verði að sjá sóma sinn að mála yfir þetta krot sem fyrst. Og borgaryfirvöld sjái til þess að að þetta verði gert.  Við getum ekki látið Laugaveginn líta út eins og Harðlem til þess verður lögreglan að vera sýnileg og borgaryfirvöld verða að taka á mannlausum húseignum sem standa auð og í niðurníðslu og eigendur húsanna gera ekkert til að fegra umhverfið. Stað þess eru þau látin grotna niður til þess að verktakar og kaupsýslumenn geta keypt þau og rifið þau síðan. 

Jóhann Páll Símonarson.


Samkeppni í siglingum.

Alþjóðleg samkeppni í skipaútgerð er komin á algerar villigötur þegar hún í vaxandi mæli látin velta á því að miða kostnað við lægstu öryggiskröfur og þrælalaun erfiðismanna í fátæktarlöndum. Slíka þróun ber að stöðva áður en hún nær því stigi sem allt stefnir að. Hér er um málefni að ræða sem taka verður upp sem alþjóðlegt samstarfsverkefni, enda ættu þegar að vera fyrir hendi alþjóðarsamtök og stofnanir sem getu hafa til að taka þessi mál föstum tökum, ef vilji er til.?

Siglingar um heimshöfin verður að setja undir sterka stjórn, sem byggist á alþjóðlegum reglum sem fullt eftirlit er haft með og sé hlítt. Að sjálfsögu eru til einfaldar lámarksreglur sem um þetta gilda og ekki verður undan komist að virða hvernig sem búnaði og öryggistækjum er annars fyrir komið. Á því er allur gangur sem ræðst af vanaþroska viðskiptasiðferði alþjóðlegra útgerðafyrirtækja og þau látin komast upp með, þótt svo eigi að heita að þau séu látin sæta ábyrgð, ef gróflega ber útaf í slysum og tjónum, sem rekja má til trassaskapar í útgerð og skipstjórn.

Ef það telst að vera nauðsyn að setja fyllstu kröfur um öryggi sjófarenda í einu landi, þá er það ekki síður nauðsynlegt í öðrum löndum. Á því getur enginn munur verið. Það er á þeim viðhorfum sem alþjóðasamkeppni í siglingum á að byggjast á ekki eltingarleik við undirmálsstaðla ófullburða réttar ríkja og sultakjör réttindalausar sjómannastéttar sem naumast skilur það tungumál sem talað er á stjórnpall eða taka leiðbeiningum þegar eitthvað ber út af.

Jóhann Páll Símonarson.


Alcan á Íslandi styður nútíma þrælahald.

Eins og allir vita þurftu stjórnendur og eigendur Alcan í Straumsvík að leita hjálpar fyrir tilveru sinni gegn öfgasamtökum sem börðust hatramlega gegn stækkun álversins. Stjórnendur Alcan fengu í lið með sér fjölda manna þar á meðal starfsmenn fyrirtækisins til að afla sér fylgi fyrir stækkun fyrirtækisins sem skiljanlegt var. Vörn Alcan í málinu var að opna kosninga skrifstofu til að mæta harðri gagnrýni og svara fyrir sig. Enda var vel af öllu staðið í þessari baráttu frá stjórnendum Alcan sem stóðu upp í hárinu á þessum öfgasamtökum. Enn Alcan tapaði málinu og þessi öfgasamtök Vinstri Græna sem unnu með naumum meiri hluta þessar kosningar sem meirihluti Samfylkingar manna í bæjarstjórn Hafnarfjarðar þorði ekki að taka ákvörðun um. Heldur var þessi ákvörðun bæjarstjórnar velt yfir á bæjarbúa í formi kosninga um stækkunina. Alcan í Straumsvík hefur um ára raðir verið þekkt fyrir að vera mjög eftirsóttur vinnustaður og vel staðið að öllum hlutum. Það meiga eiga þeir eiga og það verður aldrei tekið frá þeim. Ég man þá tíma þegar allt ál og flest öll þjónusta og aðföng voru flutt til og frá landinu með íslenskum skipafélögum og íslenskum áhöfnum sem Álverið í Straumsvík setti skilyrði að svo væri. Íslenskt ál með íslenskum skipum þetta voru aðalmerki Álversins í Straumsvík á þeim tímum þegar allt lék í lyndi.

Nú er uppi aðrir tímar þann 1 júlí 2008 mun erlend skipafélag Wilson sjá um alla flutninga til og frá landinu, þetta fyrirtæki er það sama og átti Wilson Mugga sem strandaði hér við land fyrir einu ári síðan, var síðan dregið burtu af strandstað. Fyrirtækið Wilson hefur um áraraðir byggt afkomu sína að hafa útlendinga á þrælalaunum þótt eigandinn sé íslenskur ríkisborgari. Eimskip hefur um ára raðir haft þessa flutninga með íslenskum áhöfnum þótt skipin hafa verið skráð erlendis. Alla vega hafa 30 - 40 íslendingar haft fasta atvinnu af þessum flutningum fyrir Alcan. Á þeim skipum sem hafa séð um alla þessa þjónustu fyrir Alcan á vegum Eimskip í ára raðir. Ég mun ekki trúa því að stjórnendur og eigendur  Alcan í Straumsvík  muni nú stuðla að því að íslenskir farmenn missi atvinnu sína fyrir þræla sem fá ekki mannsæmandi laun. Því þetta fyrirtæki Alcan í Straumsvík hefur barist fyrir tilveru rétti sínum fyrir stuttu og sjómenn stóðu einhuga með þeim í einu og öllu þegar þeir stóðu í ströngu. Enn lengi skal mann reyna.

Ég mann líka að Íslendingar að hafa fært þeim gullmola upp í hendurnar með allskonar niðurgreiðslum á rafmagnsverði, sem lítið dæmi. þar er um að ræða þúsundir miljóna króna frá íslenskum skattborgurum sem lítið hefur verið talað um. Síðan kemur þetta fyrirtæki Alcan sem er nú er í öðru hlutverki og þakkar íslenskum farmönnum stuðninginn með því að semja við skipafélag sem borgar ekki mannsæmandi laun með áhafnir að erlendum uppruna. Alcan í Straumsvík rekur nú nýa gullgrafara stefnu sem ekki var sú hugmynd þegar þeir voru að byrja, því enginn vissi hvernig þetta myndi enda. Enn íslenskir starfsmenn og farmenn hafa starfað þétt saman í áratugi að bættum hag fyrir Ísal í Straumsvík eins og þetta fyrirtæki hét á árum áður. 

Þetta er þakklætið sem við íslenskir farmenn fáum frá Ál fyrirtækinu Alcan í Straumsvík  sem hafa ætið haft þetta fyrirtæki að leiðarljósi og reynt allt til þess að bæta hag þeirra í samtölum við menn erlendis. Enn við farmenn erum ekki hættir að berjast því fjör egg okkar farmanna er í húfi. Við munu nú hefja okkar för okkar með því að auglýsa þessi fyrirtæki sem vilja leggja íslenska farmanna stétt niður. Sem dæmi Alcan í Straumsvík, Álverksmiðjuna á Reiðarfirði sem flytur allt ál með erlendum skipum sem dæmi. Hver mann ekki söguna Rússarnir koma, Sjómannafélag Íslands mun á næstunni gera allt í sínu valdi að upplýsa málið. það skal tekið fram að félagið er nú í viðræðum við vini sína viðvegar um heiminn.

Jóhann Páll Símonarson.  


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband