13.5.2008 | 18:05
Af hverju er ekki samkeppni á Íslandi. ?
Hér á landi er ekki virk samkeppni það er alveg sama hvert við lítum, hvort það sé hjá fjölmiðlum, bönkum, matvöruverslunum, tryggingarfélögum, og olíufélögunum. ekkert lát hefur orðið af þessari samtryggingu hvert félagið stofnað kringum annað með þeim nöfnum sem tilheyra hverju sinni. Þetta stjórnlausa ástand hefur verið við líði að minnsta kosti í 30 ár, án þess að nokkur íslendingur spái í hlutina ekki einu sinni þingmenn á hinu háa Alþingi. Samt komast þessi aðilar upp með alla skapaða hluti og gera það sem þeim hentar, sem kallast á góðri íslensku samtrygging af verstu tegund. Eyjólfur Konráð Jónsson heitin fyrrverandi þingmaður Sjálfstæðismanna varaði við þessari hugmynd fyrir nokkrum árum,kallaði þetta hringamyndun fyrir vikið féll þessi ágæti þingmaður út af þingi, ekki fékk hann stuðning fyrir sinni hugmynd. Enn því miður var þetta rétt, sem Eyjólfur Konráð Jónsson heitin bendi réttilega á á sínum tíma.
Því getum við ekki verið eins og Frakkar, Þjóðverjar, Hollendingar, og Englendingar þar er vöruverð og þjónusta miklu ódýrari en hér á landi. Ef við förum til dæmis til Vestfjarða þar er vöruverð miklu dýrara enn í Reykjavík. Ef hjón ferðast til útlanda versla þar barnaföt og myndavélar síðan er tekið flugið heim þegar heim er komið þá lenda hjónin í tollkvóta þú mátt ekki versla meira enn fyrir ákveðna upphæð og verður að framvísa nótum fyrir því sem keypt er. Ef þú hugsanlega kaupir meira af fötum handa börnunum þá lendir hjónin að borga toll af því sem umfram er að ákveðni upphæð. Það sem ég þekki til veit ég ekki til þess að þessar tollreglur gilda þar nema á Íslandi.
Af hverju má ég ekki kaupa ódýr barnaföt og myndavélar án þess að borga af því toll. Þarna eru tollayfirvöld að vernda verslunareigendur og tryggja það að ekki sé virk samkeppni. Ef þetta misræmi væri ekki til í lögunum myndi vöruverð lækka í verslunum það sama á við hin fyrirtækin sem ég benti á samkeppnina vantar.
Ef við bregðumst ekki við þessu ástandi þá munu lífskjörinn versna. Unga fólkið mun ekki láta bjóða sér þetta ástand lengur. Það mun hreinlega flytja úr landi og ekki koma til baka. Ein ástæðan að ég kýs Sjálfstæðisflokkinn er sú að ég hélt að flokkurinn myndi tryggja samkeppni og myndi ekki standa í vegi fyrir henni.
Ef Sjálfstæðisflokkurinn sem er breiður flokkur tekur ekki á þessum málum á næstunni mun hann ekki njóta traust fólksins í landinu. Þess vegna verður Sjálfstæðisflokkurinn að berjast fyrir því að hér ríki samkeppni á öllum sviðum. Vöruverð verði svipað og í nágranalöndum við annað verður ekki unað fyrr enn því marki hefur verið náð.
Jóhann Páll Símonarson.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
12.5.2008 | 17:58
Reyna bankarnir að komast yfir sparifé landsmanna,?
Nýlega var í fréttum að Kauphöllin vill að lífeyrissjóðir láni verðbréfin sem lífeyrissjóðirnir hafa fjárfest í. Tilefnið er að sögn Fjármálaráðherra að koma á fót einkvers konar lánamarkaði með verbréf. Hverjir eiga Kauphöllina eru það ekki bankarnir?
Það er með ólíkindum þegar bankar reyna með öllum tiltækum ráðum að komast yfir sparifé landsmanna með einum eða öðrum hætti. Er búið er að skipa nefnd ? Hvaða nefnd er þetta? Eigin veit hvernig hún er skipuð. Það var nefnilega Kauphöllin sem átti frumkvæðið að þessari hugsanlegu breytingu í formi laga. Sem á að reyna að troða inn sem lög í skjóli myrkur frá hinu háa Alþingi í hita leiksins og stutt verður í að þinglok verða. Getur það verið að bankarnir leggi sig svona lágt, að reyna þetta? Ég mun ekki trúa því fyrr en á reynir.
Ég tel þetta frumhlaup þeirra sem vilja ganga svo langt að komast yfir fé landsmanna sem þeir eiga ekkert í. Það sem ég hef komist næst í þessu máli. Þetta er búið að vera í nefnd á vegum fjármálaráðherra síðan árið 2006 og hefur ekki komist lengra, eins og sakir standa þrátt fyrir allt.
Vegna þráláts orðróms þá bar ég fram fyrirspurn um þetta tiltekna atriði á aðalfundi Lífeyrissjóðs Gildi nýlega. Þar kannaðist stjórnarformaður sjóðsins Vilhjálmur Egilsson ekki við þessa hugmynd né að einhverjir hefðu komið að máli við stjórn sjóðsins. Hann fullvissaði fundarmenn að þessi hugmynd sé ekki á dagskrá og ekkert hefði verið rætt við þá um þessa leið.
Ég tel þetta vera stór undalegt mál, menn ganga svo langt þegar menn hringja og ætla að spyrjast um þetta tiltekna mál. þá er ekki hægt að ná í þá eða þeir eru uppteknir og reyna að komast hjá því að svara.
Ég tel nú vera rétta tíman til þess fallin að almenningur láti til sín taka áður enn það verður um seinan. Við getum ekki látið bankana komast yfir okkar lífeyrissjóði því þeir eru í eigu þjóðarinnar sem sjóðfélagar hafa borgað í af sínum launum.
Jóhann Páll Símonarson.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
11.5.2008 | 16:20
Mun Eimskip taka upp strandsiglingar aftur.
Ármann Kr Ólafsson þingmaður Sjálfstæðismanna vill flutningabíla af þjóðvegum landsins vegna gífurlega slits sem hefur orsakað að vegir landsins eru að verða ónýtir. Sem hlýtur að gera það að verkum að nú verði að byggja þessa vegi upp frá grunni sem kallar á aukið fjármagn til vegagerðar hér á landi. Ármann vill niðurgreiða þessa flutninga til að sporna við meira sliti á vegunum. Samgönguráðherra hefur tekið undir þessa hugmynd Ármanns og er málið nú í skoðun.
Það er rétt hjá Ármanni Kr Ólafssyni vegirnir eru að hrynja niður hver af öðrum enda er það ekki nein furða því þungi á þessum bílum er gífurlegur,16 metra bíll með tengivagni vegur um 16,5 tonn síðan er tekinn fullur gámur af fiski sem dæmi þessi gámur vegur um 30 tonn þá eru komnir um 46,5 tonn á vegina sem hver bifreið ekur segjum frá Ísafirði það eru farnar 15 ferðir á sólahring. Sem hlýtur að ganga frá þessum vegum. Enda hafa vestfirðingar kvartað mikið undan slæmum vegum sem eru eins og forapyttir víða.
Ég veit til dæmis í Frakklandi þá hefur ríkistjórn landsins þá stefnu að niðurgreiða flutninga vörubifreiða sem ferðast á milli borga í Frakklandi það er gert með ferjusiglingum. Tilgangur með því er að minka álag og slit á vegum. Þess vegna er hugmynd Ármanns hugsanlega til kominn síðan geta menn deilt um aðferða fræðina hvort íbúar á landsbyggðini eiga að standa undir kostnaði að fá til sín nauðsynjavörur og síðan eru fluttar allar útflutningsvörur frá þeim allt ferð þetta fram á vegum landsins sem eikur kostnað fyrir íbúa sem búa úti á landi þar er vöruverð dýrara enn á höfuðborgasvæðinu.
Nú er spurning hvort Eimskip tekur upp strandflutninga upp aftur þessari spurningu er ósvarað. Hugsanlega gætu stjórnendur hugsað um það ef ríkið myndi leggja fé í verkið. Ég hef tvívegis borið þessa fyrirspurn fram á aðalfundum félagsins enn fengið lítið ágengt í þeim málum. Enn nú er uppi önnur staða og hugsanlega væru Eimskip tilbúið að koma að því að hefja að nýju strandsiglingar til að minka álag og slit á vegum með þátttöku ríkisins.
Jóhann Páll Símonarson.
Strandsiglingar kall nútímans | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
10.5.2008 | 21:54
Frábær sigur Framara.
Ég verð að segja það Framarar spiluðu með hjartanu í dag og var gaman að fylgjast með þeim hvað þeir voru ákveðnir að spila vörn Fylkis sundur og saman með ákveðnu leik kerfi sem gafst vel í þessum leik. Sjaldan hef ég séð lið Fylkis spila eins lélegan fótbolta eins og þeir gerðu í dag.. Mér finnst eins og leikmenn Fylkis höfðu ekki áhuga að spila knattspyrnu. það þýðir ekkert fyrir þjálfara Fylkis að kenna öðru um ófarir síns liðs, og bæta sínar ófarir með því að segja við höfum verið svo góðir að undanförnu og unnið marga leiki að það eitt og sér réttlæddir að tapa á móti Fram.
Því Fram vann verðskuldaðan sigur og áttu það skilið. Leikmenn Fram þið eigið mínar bestu þakkir fyrir ykkar frammistöðu hún var frábær. Liðsandinn var með einsdæmum svona vil ég hafa það.
Með bestu þakkir fyrir ykkar framlag leikmenn Framarar og þeirra aðhaldsmenn. Enn við Framarar verðum að sýna það í verki við verðum nú að mæta á völlinn með öllum til tækum ráðum. Sýna það í verki að við eru stórveldi í knattspyrnu og öðrum íþróttum sem eru undir merkjum Fram.
Jóhann Páll Símonarson.
Þorvaldur Örlygsson: Ekkert hræddur að sigurinn stígi mínum mönnum til höfuðs | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
7.5.2008 | 16:29
Furðuleg vinnubrögð Kristjáns Möller gegn íbúum í Grafarvogi.
Það verður að segjast nú á að keyra yfir íbúðarlýðræði með öllum tiltækum ráðum. Þessi fundur hefur ekki verið vel kynntur nú allt í einu er opinn fundur um málefni Sundabrautar hvað er eiginlega í gangi þegar stjórnsýslan beitir lýðræðinu með þessum hætti. Það vill svo vel til að ég hef gert athugasemdir við legu Sundabrautar og sent inn athugasemdir til skipulagstofnunar, umhverfisstofnunar ekkert mark var tekið á athugasemdum sem bárust þessum stofnunum. Sem varð til þess að ég var að ráða mér lögmann til þess að takast á við þessa aðila. Það skrýtna í öllu þessu máli er að mínum lögmanni bárust ítarlegri gögn enn venjulegum kæranda sem kærir útskurð sinn til þessara stofnana. Sem sýnir í raun hvernig umhverfisráðuneytið beitir sýnum rökum, sem verður að teljast ekki góð stjórnsýsla, fyrir utan allan kostnað sem ég varð að greiða sjálfur til þess að fá mínum rétti framgengt.
Síðan voru boðaðir fundir með íbúum Grafarvogs á sumarleyfistíma þegar venjulegi launamaður var að njóta hvíldar frá dagsins önn. Það verður að teljast ekki góð vinnubrögð af hálfu vegagerðar ríkisins sem stóð fyrir þessum fundum og hélt nokkra kynningarfundi sem íbúar voru virkilega ósáttir við. Enn samt halda þeir áfram að berja niður lýðræðið með þessari framkomu sinni að boða til fundar án þess að fólki gefst tími að kynna sér málið ýtarlega. Þessi vinnubrögð Samgönguráðherra Kristjáns Möller er ekki hægt að líða og ekki heldur meirihluta borgarstjórnar. Ég spyr hvar er Vilhjálmur þ Vilhjálmsson er hann ekki oddviti Sjálfstæðismanna á hann ekki að verja hagsmuni borgarbúa. Ég veit ekki annað að hann sjálfur hefði skrifað ágætta grein í Morgunblaðinu fyrir stuttu um málefni Sundabrautar. Nú allt í einu er Gísli Martein Baldursson orðin talsmaður Sjálfstæðismanna hvað er í gangi furðulegt finnst mér.
Þetta sýnir í raun að þetta er málamyndar fundur áður enn ákvörðun um legu Sundabrautar verður tekin án þess að íbúum verður gefin kostur að ræða stöðu mála og taka til máls og hafa áhrif á sitt umhverfi. Það verður ekki leyft heldur verður það í formi fyrirspurnar sem er mjög óeðlilegt þegar er boðað er til almenns fundar. Mér finnst Kristján Möller samgönguráðherra og borgaryfirvöld beita íbúum Reykjavíkur þvingunum sem er ekki sæmandi í lýðræðislegu þjóðfélagi.
Jóhann Páll Símonarson.
Íbúasamtök undrast vinnubrögð samgönguráðherra | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
6.5.2008 | 13:57
Hverjir stóðu að þessu.
Ég tel bankaáhlaup vera saman tekin ráð þeirra sem vilja bankana feiga og hafa gert það með skipulögðum hætti að undanförnu. Ég tel að við þurfum ekki hagfræðing frá USA til að kenna okkur hvernig við eigum að fara að hlutunum, ég er búinn að fá nóg af þessu bullukollum. Getur það verið að viðskiparáðherra Samfylkingar hafi fengið hagfræðinginn Robert Z Aliber til Íslands að halda hér fyrirlestur í Háskóla Íslands í gær.Einungis til að veikja allt um tal um íslenska krónu og til þess að styrkja þau rök að nú sé okkar gjald miðill búin að vera og nú sé rétti tíminn að hefja aðildarviðræður um að komast inn í Evrópubandalagið. Ef satt reynist þá tel ég þetta vera aðför að Íslenskri þjóð sem hefur fulla trú á því sem bankar eru að gera. Enda hefur öfund teygt sig langt um velgengni þeirra á undan förnum árum.
Eins og ég benti hér á undan í bloggi mínu er vandi íslenskar þjóðar þessi jöklabréf sem voru gefinn út á sínum tíma og eru nú að koma hagkerfi okkar í koll. Þetta þótti hin vænlegasti kostur og ekki vantaði álitsgjafana hvað þetta væri gott. Enn nú er það að koma okkur í koll sem um munar. Ég tel sem lítið dæmi eignarfjárstöðu Landsbankans Íslands og Straum Burðarás vera það mikla að þeir eiga fyrir skuldum og meira enn það sem lítið dæmi hvað þessi umræða um bankakerfið er á villigötum. Frekar eigum við að hlúa að því sem vel er gert því íslenskir bankar hafa borgað hér miljarða í formi skatti til íslenskar þjóðar og hafa aukið eftirspurn eftir vinnu afli. Þess vegna eigum við að láta þá um sína stefnu. Við þurfa ekki hagfræðing frá USA til að kenna okkur reglurnar. Vandinn er nefnilega jöklabréfin sem eru til vandræða í íslensku hagkerfi.
Jóhann Páll Símonarson.
Bankaáhlaup hafið? | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
4.5.2008 | 17:32
Er kreppa yfirvofandi á Íslandi?
Miklar og hatramar umræður hafa verið hér að undanförnu um að allt sé að fara til fjandans. Stjórnarflokkum og Seðlabankanum eru sökuð um allt sem miður fer. Þegar stjórnarandstaðan fær ekki sínu fram þá nota þeir öll niðrandi orð til að koma höggi á ríkisstjórnina. Og þeir hafa gengið svo langt að tala íslensku krónuna niður. Þessar umræður hafa haft þau áhrif að telja fólki trú um að allt sé að fara á niðurleið. Hver mann ekki eftir þessum orðum. Tiltrú á íslandi fer þverrandi, Við verðum að ganga í Evrópusambandið. Taka upp evru, því íslenska krónan er ónýt að þeirra mati. Er þetta boðleg umræða að hálfu þeirra sem halda því fram. Nei ekki að minni hálfu.
Framsóknarflokkurinn breytti um skoðun á á sínum fundi þann 3 maí undir yfirskriftinni að nú verði að breyta stjórnarskránni til þess að komast inn í Evrópubandalagið. Já þarna snerist formaður Framsóknarflokksins um heilan hring í sinni afstöðu því hann sjálfur sagði fyrir ári síðan aðild að Evrópubandalaginu kæmi ekki til greina, Hvað hefur gerst í huga Guðna Ágústssonar? Getur það verið að varaformaður Framsóknarflokksins Valgerður Sverrisdóttir hafi haft í hótunum við formann Framsóknarflokksins að hún myndi bjóða sig fram á móti honum ef hann myndi ekki hlýða kalli hennar.?
Það vill svo vel til í dag er Ísland mjög vel stætt á meðal okkar nágrana þjóða, sem berjast hvert að öðru að halda velli því efnahagur þeirra fer niðurá við hefur orsakað atvinnuleysi. Nú er svo komið að stórveldið Þýskaland berst nú við sama ástand og nágrana þjóðir þeirra og verður fróðlegt á næstunni að fylgjast með hvernig þetta endar. Á meðan eru íslenskir útflytjendur sáttir við sinn hlut verð er í hámarki, þar á meðal fiskútflytjendur sem fá gott verð fyrir sínar afurðir á sama tíma ríkir hér skerðing á aflaheimildum. Þá er fiskverð í hámarki.
Ég tel Ísland, Noregur, og Kazakhstan á næstu árum verði með ríkustu þjóðum í heiminum vegna yfirráða yfir auðlindum á borð við orkubú,ál og hugbúnaði sem dæmi. Ég tel að við þurfum ekkert að taka upp annan gjaldmiðil því íslenska krónan er sterk eins og norska krónan. Hinsvegar þegar búið verða að borga upp jöklabréfin, þá munu þessi andstaða við íslensku krónuna minka. Þjóðin mun síðar vera sátt. Ég mun ekki trúa því að þeir sem vilja taka upp aðildarviðræður vilji selja auðlindir okkar og þar með okkar sjálfstæði eftir áratuga baráttu okkar forfeðra.
Jóhann Páll Símonarson.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
3.5.2008 | 16:47
Rekstrar kostnaður lífeyrissjóða hefur aukist.
Það vekur ekki undrun sjóðsfélaga, fullrúa stéttafélaga þegar allur rekstarkostnaður lífeyrissjóða hækkar um miljónir á ári án þess að brugðist er við því. Ársfundur lífeyrissjóðs Gildi var haldin þann 29 apríl 2008, á þessum fundi voru fundargögn lögð fram sjóðsfélögum til upplýsingar um stöðu sjóðsins. þessi fundur var góður að mínu mati tryggingarfræðilegar upplýsingar og sjóðstjóri færðu sín rök fyrir máli sínu. Síðan er hægt að deila um forsendur sem þeir nota, enn þetta voru þeirra rök. Fundurinn var þétt setinn, það sem vakti athygli mína, hvað sjóðfélagar hafa takmarkaðan áhuga á að tjá sig um sín málefni. Ekki síst þeirra fulltrúa verkalýðsfélaga sem hafa svipaðan áhuga og sjóðfélagar að gera athugasemdir við hækkandi rekstrarkostnað sjóðsins. Enda fær hluti af fulltrúum sem eiga aðild að sjóðnum þar laun í sínum vinnu tíma frá um 1,5 miljónum til um 830 þrjátíu þúsund króna. Sem verður að segjast í sumum tilfellum tvöföld laun í vinnutíma stéttafélagana og atvinnurekanda.
Rekstrakostnaður ársins 2005. Var 209,399 miljónir króna, árið 2006. var hann 228,152 miljónir króna og hafði hækkað um 19 miljónir króna. árið 2007 var hann 242 miljónir króna og hafði hækkað um 14 miljónir króna. Það má færa fyrir því rök frá árinu 2005 hefur rekstrarkostnaður hækkað úr 209 miljónum króna í 242 miljónir króna sem er hækkun upp á 33 miljónir króna á 2 árum. Ég vil ennfremur benda á að fjárfestingatekjur höfðu minkað um 15 miljónir á 2 árum. Varðandi afkomu á síðast liðnum 3 mánuðum þeirri spurningu vildu þeir ekki svara enn gefið var í skyn að um tap væri að ræða enn það mun koma í ljós á næsta ári.
Síðan er það laun framkvæmdastjóra sem hafa hækkað úr rúmum 19 miljónum króna í 21 miljón króna á milli ára, fyrir árið 2007. Hvað sögðu þessir verkalýðsforkólfar og fulltrúi atvinnurekanda sem nýlega voru að semja við láglaunafólkið um smánarbætur og kalla það síðan þjóðar sátt. þetta er ekki sátt frá mínu sjónarmiði ég kalla þetta græðgi. það vill svo vel til að nýlega voru sendir heim til sjóðfélaga yfirlit frá lífeyrissjóðnum Gildi sem ég kannaði mjög vel og fór yfir þá kom í ljós að viðkomandi sem hafði borgað allan sína tíð í sjóðinn mun fá út úr honum frá 165 þúsundum króna til 200 þúsundir króna ef hann heldur áfram að borga sömu upphæð. þegar hann verður 65 ára.
Það alvarlegasta í þessu máli að mínu mati hvers vegna eru laun aðila sem er sjóðstjóri hjá lífeyrissjóðnum Gildi ekki gefin upp.Laun hans fengust ekki gefinn upp þrátt fyrir ítrekun. Ég tel þessa aldargömlu viðmiðunar reglu 3,5 prósent til útreikninga á lífeyrisgreiðslum til sjóðsfélaga vera úr takti við alla raunveruleika.
Að lokum hvet ég alla sjóðfélaga sem eiga sinn rétt í Lífeyrissjóðum landsmanna að kynna sér vel reikninga þessara sjóða og gera athugasemdir við þá ef þeim finnst laun stjórnarmanna vera of há. Nú er svo komið að stjórnarlaun fyrir aðalmann mun verða 75 þúsund krónur á mánuði og formaður stjórnar verði 150 þúsund krónur á mánuði, varaformaður fái 112.500 þúsund krónur á mánuði fyrir hvern setin fund. Mér er farið að ofbjóða þessi laun þá sérstaklega þegar menn eru í vinnu annarstaðar og þiggja þar laun frá stéttafélögum eða í röðum atvinnurekenda.
Jóhann Páll Símonarson.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.5.2008 | 15:27
FRAM fagnar 100 ára afmæli.
Í dag fögnum við FRAMARAR 100 ára afmæli okkar ungir sem aldnir. Miklar breytingar hafa orðið á starfsemi okkar síðan ég lék með Fram í fótbolta hér á árum áður. Æfingar aðstaða var á malarvelli við Skipholt í Reykjavík rétt fyrir neðan klettana við Sjómannaskólan þjálfari okkar í 5 flokki var Alfreð Þorsteinsson. Leikið var á malavöllum á þeim tímum og við fótbolta menn þekktum ekkert annað. Framheimilið var í skúrabyggingu. Síðan hefur öll þróun til iðkunnar gjörbreyst allir leika nú á grasvöllum sem er framfara skref í þágu allrar sem leika knattspyrnu er íþróttinni til framdráttar.
Miklar framfarir hafa orðið síðan. Okkar aðstaða í Safamýrinni er orðin mjög þröng. Á 100 ára afmælisdegi FRAM í dag hafa borgaryfirvöld og fulltrúar þess fært okkur fallega gjöf framtíðar félagssvæði í Úlfársdal í Grafarholti gert er ráð fyrir að það verði tekið í notkun árið 2010 og allt svæðið verði tilbúið árið 2012. Síðan er gert ráð fyrir að heimaleikir FRAM geti farið þar fram árið 2011. Ég tel þetta vera stærstu stund stund í sögu félagsins síðan félagið var stofnað. Og ber að þakka borgaryfirvöldum, borgarfulltrúum, og borgarbúum fyrir þessa höfðinglegu gjöf.
Áfram FRAM til hamingju með 100 ára afmælisdaginn.
Jóhann Páll Símonarson.
27.4.2008 | 16:11
Þingmenn gefa röng skilaboð.
Að undanförnu hefur lögreglan þurft að standa undir talsverði gagnrýni á sínum starfsaðferðum, hvernig þeir eiga að bregðast við upplaupum,óeirðum, skemmdaverkum, og ýmsum málum sem kemur til þeirra kasta, og í leiðinni að halda uppi lögum og reglum, Þá er það orðið fastur liður í dagblöðum að lögreglan hafi farið offari í sínum störfum. Nýlega tóku flutningabílstjórar völdin í sínar hendur og lokuðu Suðulandsvegi við Norðlingaholt og þar með allri umferð til og frá borgini. Lögreglan bað þessa flutningabílstjóra að ríma fyrir umferð, enn þeir fóru ekki fet. Sem varð til þess að lögreglan tók til sinna ráða og beitti þeim aðferðum sem þeim hentaði til að ríma svæðið.
Það vantar ekki þá sem hafa skoðun á hlutunum og tjá sig opinberlega um þessa hluti í Fréttablaðinu 24 apríl 2008 var formaður Frjálslyndaflokksins Guðjón Á Kristjánsson spurður hvað honum fyndist um þessar aðgerðir Lögreglunar." Þetta eru fáheyrð viðbrögð lögreglu segir Guðjón Á Kristjánsson formaður Frjálslyndaflokksins,, Þarna er þingmaðurinn að koma allri sök á lögregluna
Síðan segir Steingrímur J Sigfússon í sama blaði þar segir hann." Ónotaleg sjón. Mér er mjög brugðið og spyr hvort óhjákvæmilegt hafi verið að sýna svona hörku... Það er ónotalegt að sjá íslenska lögreglu birtast eins og óeirðalögreglu." Ég get ekki túlkað þessi orð öðruvísi að lögreglan hafa beitt óþarfa hörku
Hvaða skilaboð eru þessir þingmenn að koma á framfæri. Ég skil það þannig að þeir hafi gefið leyfi að það megi ganga í skrokk á lögreglumönnum og berja þá til óbóta. Er þetta sæmandi að þingmenn sem tjá sig með þessum hætti og eru fulltrúar okkar á löggjafarsamkomu okkar íslendinga.
Á sama tíma fer ofbeldi vaxandi í þjóðfélaginu árásum á lögreglumenn og öryggisverði fer fjölgandi, miðbær Reykjavíkur er eins og vígvöllur. Nú í morgun var ráðist að tilefnislausu á 18 ára gamlan öryggisvörð í verslun í Austurstræti. Þetta ástand í miðborg Reykjavíkur er orðið í einu orði sagt skelfilegt fólk er hætta að þora að ganga um götur borgarinnar að eiga það á hættu að vera barið sundur og saman af ofbeltisfólki.
Það er mín skoðun að þjóðin verði að sýna lögreglumönnum virðingu og traust. Lögreglumenn verða að fá vinnufrið til að halda uppi lögum og reglum. Við getum ekki liðið það að það sé ráðist á lögregluna að tilefnislausu án þess á því verði tekið. Ég krefst þess að þingmennirnir Guðjón Á Kristjánsson og Steingrímur J Sigfússon segi sínu störfum lausum. það er ekki heppilegt að vera með þingmenn sem gefa röng skilaboð út í þjóðfélagið.
Jóhann Páll Símonarson.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)