30.5.2008 | 16:30
Kristján Möller tekur mark á opnu bréfi.
Það er fagnaðar efni þegar samgönguráðherra Kristján Möller tekur mark á athugasemdum, sem voru til hans í opnu bréfi sem er ritað þan 23 maí af skipaverkfræðingum Alfreðs Tulinius. Þar var skipaverkfræðingurinn með alvarlegar athugasemdir að útboðs reglur um byggingu nýs Herjólfs væri ekki samkvæmt reglum um stöðuleika. Meira að segja voru hunsaðar reglur þyngdar og særýmis, að hans mati. Sem ég tel vera alvarlegasta hlut í málinu. Stöðuleiki skipa er grunvalaratriði að skip geti siglt, ef hann er ekki fyrir hendi þá hvolfa skipin og sökkva með þeim afleiðingum að fólk ferst því enginn tími gefst til að bjarga fólki.
Nú hefur samgönguráðherra snúist hugur, eftir að hafa kannað þessi mál og komist að þetta var rétt mat hans Alfreðs Tulinius. Grein hans var vel rök studd. Nú koma bloggarar og gefa Kristjáni Möller fall einkunn sem er ekki góður vitnisburður. Ég sem áhugamaður um öryggismál sjómanna er honum sammála, ég tek undir með honum að fá faglega aðila, til þess að smíða þetta skip til þess verður að styðjast við lög og reglur um smíði skipa.
Hins vegar er þetta ferli búið að vera tóm þvæla frá upphafi og er í raun ekki hægt að bjóða Vestamanneyingum upp á þetta. Hver er kostnaður í dag af þessu ég trúi að hann nemi hundriði miljóna króna sem eru flognar burtu. Hver eiginlega tekur ábyrgð á þessu. Er ekki rétt að láta þá menn sem haga sé með þessum hætti fara tafarlaust eins og aðra sem hafa verið reknir að undanförnu fyrir slappleika í starfi. Það getur ekki verið hagur fyrir Samgönguráðherra að hafa slíka menn í starfi.
Enn Samgönguráðherra hefur ekki farið að ábendingum um að Bakkafjöru höfn muni jafnvel skola burtu vegna ágangs sjávar. Það sama gerðist fyrir 40 árum síðan þegar varnagarðurinn í Grímsey hvarf í eini vestanbrælu þrátt fyrir líkön og rökfærslur. Ég mæli með því að höfnin í Bakkafjöru sem nú á að ráðast í byggingu á. Verði nú öll gögn um málið könnuð og rannsökuð áður enn ráðist verður í þessa framkvæmd annað er ekki boðlegt.
Jóhann Páll Símonarson.
Smíði Vestmannaeyjaferju boðin út á ný | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
29.5.2008 | 23:50
Er Guðmundur Þóroddsson að hætta sem forstjóri.?
Á morgun er síðasti dagur stjórnar Orkuveitu Reykjavíkur að taka ákvörðun hvor Guðmundur Þóroddsson forstjóra komi til starfa á ný. Guðmundur hefur verið í leyfi frá störfum vegna anna í öðrum verkefnum. Hins vegar verður ekki komist hjá því að trúnaðarbrestur var uppi í þessu blessaða Rei máli sem það var kallað á sínum tíma. Sem leiddi til þess að Guðmundur hafi í undirbúningi að úthluta kaupréttarsamningum, til ákveðna manna á fyrirfram ákveðnu gengi. Sem betur fer gekk það ekki, allt var þetta afturkallað. Ný stjórn skipuð í 100 daga sem síðan féll. Á ný er skipuð stjórn sem nú fer með öll völd, og ákvörðunar töku formaður þessara nefndar er Kjartan Magnússon sem getur lagt það til að Guðmundur Þóroddsson hætti störfum sem forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur þann 1 júní 2008.
Ég tel að Guðmundur hafi ekki skilað neinu sem forstjóri frekar verið í hagsmuna poti fyrir fyrrverandi bankastjóra sem ætluðu sér að græða hundruð miljóna króna, á Orkuveitu Reykjavíkur sem er í eigu borgarbúa. Síðan er þetta klúður Guðmundar sett á okkar ágætta Vilhjálm þ Vilhjálmsson sem er borin þungum sökum, um þetta mál þegar hann var borgarstjóri. Sem var til þess að Björn Ingi Hrafnsson sleit þessu meirihluta samstarfi Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar. Það var gert með afar sérkennilegum hætti með því Björn Ingi grét á öxlunum á Alfreð þorsteinssyni fyrir framan fundarmenn já Björn Ingi átti svo bágt á þessum tíma, sem var til þess að hann gafst upp og hætti afskiptum af borgarmálum. Eftir stendur mál Guðmundar Þóroddssonar sem ég tel muni ljúka á morgun sökum trúnaðarbrest. Ég mun ekki trúa því að Sjálfstæðismenn muni kyngja því að ráða hann aftur til starfa nóg er komið af hans verkum sem hefur engu skilað nema vandræðum og óstjórn.
Jóhann Páll Símonarson.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.5.2008 | 21:59
Straumur - Burðarás fjárfestingarbanki h/f. Vel stjórnað.
Undan farna mánuði hefur verið sterkur orðrómur í þjóðfélaginu um stöðu bankana. Sú umræða hefur verið negatífar af öfundsverðum mönnum sem vilja koma höggi á þá. Í kjölfarið hefur gripið um sig hræðsla á meðal fjárfesta sem hafa hug á því fjárfesta í bönkum eða fjárfestingarfélögum sem hefur orðið til þess að hlutabréf hafa lækkað miss mikið vegna ótta. Sum félög hafa verið tekin af markaði vegna gífurlega tapreksturs á þeim félögum vegna snarvitlausar stefnu stjórnenda. Það er alvarlegt þegar óvandaðir stjórendur haga sér með þessum hætti, enda er svo komið að búið er að fjærlægja þá í burtu úr stjórnum þessara félaga. Sem betur fer segi ég það er ekki hægt að hafa stjórnendur sem fara illa með fé fyrirtækisins og hluthafa. Það hefur komið fram að hluthafar hafa gert athugasemdir til góðs fyrir alla því þetta eikur traust og virðingu þeirra sem hafa hagsmuni að gæta ekki síst eigenda.
Meira að segja hafa sum af þessum félögum ekki borgað arð í áraraðir þrátt fyrir að hluthafar hafa bent á þessi atriði. Enn þegar hlutafélög eru tekin af mörkuðum þá verður gífurleg hræðsla á meðal hluthafa, sem halda að allt sé að fara til fjandans, þeir séu að tapa öllu og og nýleg dæmi sýna. Enn þrátt fyrir það vildu menn ekki selja frekar vildu þeir halda sínum hlut. Sem ég skil vel því upplýsingarstreymið er lítið og væntanlegir hluthafar halda að sér höndunum vegna negatífar umræðu um þessi félög.
Enn þegar menn leggja við hlustir og leggja sig fram að skoða þessi mál betur með það að leiðarljósi að kanna skuldastöðu og hreina eign. Þá kemur í ljós að Straumur - Burðarás fjárfestingarfélag og Landsbanki Íslands, sem eru með þeim best reknu félögum í dag á Íslandi, og eru ekkert að fara á hausinn. Því eignarfjárstaða þessara félaga er gríðarlega sterk og eftir er tekið. Meira að segja á erlendri grundu tala menn um þessi sterku félög sem sigla sin sjó þótt á móti blási. Það fer lítið fyrir þessum fyrirtækjum í dagsins önn, menn vita lítið um þessi félög nema þegar auglýst er til aðalfundar. það er mín skoðun að fjárfestar ættu að kanna þessi mál betur þá kæmust þeir að hinu sanna. Ég veit og ég get sannað að menn hafa fengið tugi þúsunda í arð á hverju einasta ári sem hluthafar hafa fengið í sinn vasa í peningum frá þessum félögum.
Á meðan önnur félög borga ekki einu sinni arð af fjárfestingu hluthafa. Þetta tala fáir um ekki einu sinni fjölmiðlar sem eiga að miðla þessum upplýsingum til fjárfesta. Fjölmiðlar þegja um góðu hlutina sem þessi félög gera og framkvæma. Ég sem hluthafi er mjög sáttur með þennan rekstur og tel hann vera í góðum höndum stjórnenda Straums - Burðarás og Landsbanka íslands sem hafa stjórnað þessu með festu og öryggi fyrir hluthafa. Undir það get ég tekið þegar stjórnendur Straums - Burðarás hafa nægt lausafé til rekstur til síðari hluta ársins 2009. Þess vegna þurfa hluthafar ekkert að óttast.
Jóhann Páll Símonarson.
Rekstur Straums fjármagnaður fram á síðari hluta 2009 | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
26.5.2008 | 18:37
Þjóðin hafði betur gegn óvinum.
Þjóðin hefur kveðið upp sinn útskurð þar kom fram að rúmlega helmingur er fylgjandi að flugvöllurinn verði áfram í Vatnsmýrinni sem er rétt ákvörðun. Þessi skoðun er afdráttarlaus og fer ekki á milli mála hvað þjóðin vill. Hins vegar þeir sem eru á móti í raun, ekki margir þegar málið er skoðað betur. Tökum dæmi með suma af Sjálfstæðismönnum, flesta ef ekki allir frá Samfylkingu þar á meðal Dag B Eggertsson sem er með skýran valkost burtu með flugvöllinn. Síðan komum við að Vinstri Grænum þau eru á móti. Framsóknarflokkurinn er á móti flugvellinum í Vatnsmýrinni. Ólafur F Magnússon er sá eini sem er með skýra stefnu í þessum málum. Þótt mér hafi fundist hann verið að bugast á sínum tíma í afstöðu sinni. Enn hann hrósar sigri með sinni afstöðu og hún verður ekki tekið frá honum.
Framsóknarflokkurinn í borgarstjórn hefur barist fyrir því að hann verði færður á Löngusker eða upp á Hólmsheiði. það er með ólíkindum hvernig Framsóknarmenn standa að sínum málum, með þessum rökum að vilja flugvöllinn burtu hvað sem það kostar. Framsóknarflokkurinn var ekkert að hugsa um atvinnutækifærin, sem þarna lágu undir, eða hugsa um fólkið sjálft sem býr í Reykjavik, og stundar þar atvinnu og borga skatta til síns sveitarfélags sem er Reykjavík. Framsóknarflokkurinn var ekkert að hugsa um landsbyggðina, sem þarf að komast leiðar sinnar. Það sama á við Samfylkinguna, Vinstri Græna, og að síðustu hluti af Sjálfstæðismönnum sem vilja það sama og hinir flokkarnir í borgarstjórn. Því miður að borgarfulltrúar skuli ekki sjá að sér í þessum máli. Þrátt fyrir stöðug mótmæli þjóðarinnar þá virðist borgafulltrúar vera út og suður í sínu málflutningi. Eitt stendur uppi flugvöllurinn á að standa til 2016 hvað sem öðru líður. Það mun koma í ljós þegar þjóðin hefur kveðið upp sinn útskurð í kosningum á næstu árum því þessi baráta mun harðna hvað sem hver segir.
Af hverju vilja Sjálfstæðismenn, Samfylking, Vinstri Grænir, Og Framsóknarmenn ekki koma með þá tillögu að færa alla starfsemi Háskólans í Reykjavík upp á Hólmsheiði og byggja þar flott og gott Háskólatorg þar sem næg bílastæði væru til handa öllum og þeir gætu vel við unað. Stað þess að setja undir sig bestu staði í Reykjavík þar sem við íbúar viljum lifa með flugvöllinn í nánd. Flott hugmynd ef borgarbúar vilja færa sig um set í borgarkerfinu. Og láta síðan námsmenn njóta sín með fjöllin í baksýn af hverju ekki. Við getum ekki aukið umferð til Reykjavíkur lengur því vegakerfið mun ekki þolað það. Hins vegar ef við færum Háskólann burtu úr Reykjavík uppá Hólmsheiði er ég viss um að aðstaða þeirra mun batna og fólk úr nágranabæjum mundi fagna þessum hugmyndum.
Jóhann Páll Símonarson.
Meirihluti vill flugvöllinn áfram í Vatnsmýri | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
25.5.2008 | 14:22
Vilhjálmur Þ Vilhjálmsson. Næsti borgarstjóri.
Það er ljóst að Vilhjálmur Þ Vilhjálmsson mun taka við embætti borgarstjóra á næsta ári. Hann hlaut flest atkvæði í prófkjörinu, er því oddviti borgarstjórnarflokksins til loka kjörtímabilsins. Síðan geta Sjálfstæðismenn ákveðið sjálfir í prófkjöri hvern þau styðja. Ég er ansi hræddur um að margir nýir fulltrúar munu gefa kost á sér. Ég tel og tek undir, það verður koma nýtt fólk inn í þennan hóp sem er með aðra sín enn þessi borgarstjórnarhópur sem nú starfar. Því miður hefur fámennur hópur borgarfulltrúana eyðilagt orðstír Sjálfstæðisflokksins og Vilhjálms Þ Vilhjálmssonar með sýnu valdabrölti að uppefja sig til riddara. Það vill svo vel til borgarfulltrúar verða að hlýða sínum oddvita og framkvæma þau verk sem hann biður um. Það gengur ekki upp að allir stjórni og gefi út sínar yfirlýsingar án þess að það sé rætt innan borgarstjórnarflokksins. Lítið dæmi Reykjavíkurflugvöllur, þar berst hluti af borgarstjórnarflokknum sem vilja flugvöllinn burtu sem fyrst. Það vill of gleymst í umræðunni hvað mikið af atvinnutækifærum og tekjum sem þarna koma inn 600 föst störf, sem fólk hefur atvinnu af. þetta hefur orðið til þess að andstaða hefur harðnað og orðið borgarstjórnarflokki Sjálfstæðismanna til vansa. Því flugvöllurinn á að standa til 2016 og meirihluti þjóðarinnar vill að hann verði þar áfram. Þess vegna eiga þessir borgarfulltrúar að standa með þjóðinni í stað þess að berjast á móti því sem þjóðin vill.
Vilhjálmur Þ Vilhjálmsson hefur gífurlega reynslu á borgarmálum. Ég veit ekki um neinn sem hefur eins mikla reynslu og hann. Þess vegna hefur hann orðið fyrir einelti af misvitrum mönnum sem reyna með öllum tiltækum ráðum að eyðileggja orðstír hans með allskonar yfirlýsingum. Ekki vantar þá sem vilja koma höggi á Sjálfstæðisflokkinn með skipulögðum skrifum. Það er eins með þessar skoðunar kannanir hverir skyldu nú borga þær, hvaða flokkur skyldi það nú vera. Það sama gildir um samtök fyrirtækja hafa verið að kaupa þessar skoðunarkannanir til þess að hafa áhrif á skoðanir þjóðarinnar og stjórmálamanna með stöðugum áróðri.
Ég tel að borgarbúar verði að gefa Vilhjálmi Þ Vilhjálmssyni og Sjálfstæðisflokknum vinnufrið að sinna sínum málum og vinna vel að hagsmunum borgarbúa. Ef það tekst þá er ég fullviss að fylgið muni verða meira og fólkið sáttara við lífið og tilveruna. Það hefur náðst mikill árangur í baráttunni gegn veggjakroti á Laugavegi, sem hefur sýnt að óánægjuraddir hafa dregið sig í hlé. Síðan eru eftir stór mál. sem er bygging hjúkrunarheimila fyrir aldraða sem Sjálfstæðisflokkurinn lofaði fyrir síðustu kosningar og Vilhjálmur staðið sig vel í þeim málaflokki. Sem oddviti Samfylkingar Dagur B Eggertsson gleymdi að taka sér fyrir hendur og framkvæma ekki hafði Dagur áhuga að berjast fyrir aldraða í þá 100 daga sem hann var borgarstjóri með samstarfsflokkunum. Sem framkvæmdu ekki neitt nema þeir voru góður að kalla á fjölmiðla þar vantaði ekki athyglina. Síðan hafa þau verið með stöðugt skítkast út í alla. Það mun koma tími að Vilhjálmur Þ Vilhjálmsson sets í stól borgarstjóra og mun stjórna þar að heilindum fyrir alla borgarbúa. Þess vegna er besti kosturin að Vilhjálmur Þ Vilhjálmsson verði næsti borgarstjóri í Reykjavík.
Jóhann Páll Símonarson.
Flestir vilja Hönnu Birnu í embætti borgarstjóra | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
23.5.2008 | 20:46
Stýrihópur fellur á prófinu
Mbl í dag er opið bréf á bls 23 frá Alfreð Tulinius til Kristjáns Möller samgönguráðherra.
Þar bendir Alfreð á nokkra þætti sem hann telur ekki vera í lagi og samrýmast ekki reglum um stöðuleika skipa varðandi smíði á nýjum Herjólfi, sem á að sigla milli Bakkafjöru eða Landeyjarhöfn eins og greina höfundur bendir á. Mig langar að benda á það sem hann segir " Hér stig ég um það bil frá borði, og hætti mér tæpast í lengra ferðalag með þessari ferju; Ég tel þetta mjög alvarlegt mál þegar menntaður skipafræðingur bendir á þennan hlut málsins. Er hann að segja það að skipið sé ekki sjóhæft og ekki hafi verið farið eftir reglum Newton og Arkimedes sem er regla þyngda og særýmis Alfreð telur menn hunsa þau lögmál sem hafa verið við líði frá fyrstu tíð.
Síðan bendir Alfreð á fyrirhugað hafnarstæði í Bakkafjöru hvort það sé heppilegt með tilliti til áhrifa til lands og sjávar." Síðar bendir hann á hvort hún sökkvi í sandinn eða ekki. Vona ég bara að þeir fagmenn séu ekki þeir hinu sömu og hlustuð ekki á þaulavana sjómenn Grímseyinga fyrir um 40 árum um hvar heppilegast væri að staðsetja varnagarðinn þar á sínum tíma.,,
"Enn þeir tóku athugasemdum sjómanna fálega og vitnuðu í sín líkön og rannsóknir máli sínu til stuðnings og fengu sínu framgengt gegn vilja heimamanna. Í þá daga hvarf varnagarðurinn í fyrstu vestanbrælu eins og sjómenn spáðu, þrátt fyrir líkön og rökfærslur. ,,
Eftir þessa fróðlegu grein þá tel ég þessi áform vera mjög alvarleg aðför að hinu réttláta ef þetta eru rétt rök sem Albert Tulinius Skipafræðingur bendir á í sinni grein. Og komi tími til þess að fréttamiðlar fari ofan í þessi mál með málefnalegum hætti og kanni sannleiksgildi þessarar greinar. Það getur ekki verið stefna samgönguráðuneytisins og samgönguráðherra Kristjáns Möller að stefna fólki í hætti með því að framkvæmdir í Bakkafjöru og smíði á nýjum Herjólfi hefjast. Fyrst þarf að liggja fyrir gögn sem staðfesta að þetta sé í lagi.
Jóhann Páll Símonarson.
Verið að fara yfir ferjumál | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
21.5.2008 | 14:35
FIMLEIKA STARF FYLKIS Í HÆTTU.
Ég hlustaði á umræðu í borgarstjórn í gær að fimleika starf félagsins væru í hættu vegna skort á aðstöðu til íþróttaiðkunar þetta eru ekki góð tíðindi sem borgarbúum berast til eyrna, að ungir sem aldnir geti ekki æft keppnisgrein sína, vegna þess að íþróttahúsið við Fylkisveg er of lítið. Það kom fram í umræðunni að þessi mál væru til skoðunar um framtíðarsvæði félagsins við Hádegismóa. Þegar ég fór að kanna þetta tiltekna mál sem búið að vera í umræðunni lengi enn er stöðugt vísað á milli manna.
Eins kom fram í umræðunni að peningar til íþróttamála væru uppurnir, og munu ekki vera til fyrr enn eftir næstu kosningar. Sem er ekki gott mál fyrir Fylkismenn ef borgarstjórnar meirihluti ætlar að hunsa þessi mál eina ferðina enn. Það er leitt til þess að vita að meirihluti sem nú er við völd skuli ekki vinna með Fylkismönnum að lausn þessara mála. Ég veit ekki betur enn þeir sjálfir hafi sagt að Fylkir sé eitt af bestu reknu Íþróttafélögunum í Reykjavík. Það má vel vera að þeir hafi gleymt því. Ég ætla að vitna í skýrslu fundar Íþrótta- og tómstundaráð Verknúmer : SN070695.
Tökum dæmi af 187 fundi 2007.
Þann 31 0któber 2007. Þar er lagt fram bréf íþróttafélagsins Fylkis, 31 október 2007, varandi fyrirhugað athafnarsvæði við Hádegismóa. Niðurstaða. Óskað er eftir að lögð verði frekari þarfagreining félagsins vegna uppbyggingar á svæðinu.
188. fundur 2007 Niðurstaða. Vísað til umhverfisstjóra.
198. Fundur 2008. Niðurstaða Kynna formanni skipulagsráðs.
124. fundur 2008. niðurstaða Vísað til umsagnar Íþrótta- og tómstundaráðs Reykjavíkur.
Þetta er með ólíkindum hvernig er farið með eitt af reykjavíkurfélögum. Fylkir sem býr við skort á aðstöðu fyrir sína félagsmenn til að iðka sínar íþróttir sem hefur hingað til talið vera hollt og gott fyrir alla aldurhópa að stunda íþróttir. Enn til þess verður að vera aðstaða til iðka úti íþróttir og taka á móti fólki sem vill sjá kappleiki án þess að þurfa að taka með sér regnhlífar til þess að geta horft á leiki félagsins. Eða sitja á blautum plastbekkjum sem duga ekki fyrir alla. Þeir sem koma ekki nógu snemma verða að standa. Þetta ástand getur Reykjavíkurborg ekki boðið íbúum Árbæjar og annarra íbúa í Reykjavík uppá þetta ástand lengur án þess að um það verði fjallað. Íþróttafélaginu Fylki vantar sérstaklega stærra húsnæði og aðstöðu fyrir íþróttir til dæmis fimleika.
Jóhann Páll Símonarson.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.5.2008 | 14:56
STJÓRNARSLIT
Veiðar á Hrefnu í atvinnuskyni var heimilað í gær, leyft verður að veiða 40 dýr á þessu sumri. Það er eðlilegt að íslendingar nýti sér allar þær veiðar sem hafa skaðað íslenskan sjárvarútveg síðan hvalveiðar voru aflagðar. Enda hefur hvalastofninn margfaldast síðan og sér ekki högg á vatni þótt, 40 dýr séu veidd til sjálfbærar nýtingar. Við ættu frekar að hefja hvalveiðar sem fyrst áður enn þessi tegund verður búinn að éta okkur útá gaddinn þessi tegund étur þúsundir tonna af þorski sem lítið dæmi.
Enn það stendur ekki á mótmælum hvalaskoðunarmanna og annara öfgasamtaka, sem gera út á að villa fyrir fólki og komast upp með það vegna þekkingarleysis og upplýsingarskorts á þessum málum. Ég veit ekki betur þegar ferðafólk kom hingað fyrir nokkrum árum þá voru i boði skoðunarferðir upp í Hvalfjörð og var miklið aðsókn ferðamanna að kynna sér lifnaðarhætti Íslendinga.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir formaður Samfylkingar er andsnúinn þessum veiðum og í sama streng tekur Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra er óánægður með ákvörðun Einars K Guðfinnsonar sjávarútvegsráðherra að heimila veiðar á 40 Hrefnum. Samfylkingarfólk tekur undir orð formannsins að Einar hafi ekki haft heimild að gefa út þetta leyfi. Ég tel þetta vera töluverðan ágreining þegar formaðurinn er mjög ósáttur hvernig að þessu er staðið þannig lýsir hún því. Getur það verið að þetta sé leikaraskapur að hálfu Samfylkingarmanna, eða er þetta hrein og bein alvara?.
Ég tel að Sjálfstæðismenn geti ekki lengur staðið undir svona vinnubrögðum dag eftir dag. Það má ekkert gera Þórunn Sveinbjarnadóttir umhverfisráðherra er á móti öllu. Berst gegn álveri í Helguvík með öllum tiltækum ráðum. Hugsanlega á Bakka gegn því að fólkið geti lifað í þessu landi vegna sinnar öfgastefnu. Það eru fleiri sem eru með sömu skoðun og Þórunn Sveinbjarnardóttir. Ég tel að Sjálfstæðisflokkurinn geti ekki starfað með þessum flokki lengur, sem er á móti framförum í þessu landi Sjálfstæðismenn munu ekki sætta sig við þessi vinnubrögð .
Jóhann Páll Símonarson.
Óánægja með hrefnuveiðar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.5.2008 | 23:44
Útlendingar sækja hingað í stórum stíl.
Miklar umræður hafa verið hér á landi að undanförnu um málefni útlendinga sem koma hingað í leit að atvinnu eða í gegnum starfsmannaleigur sem eru jafnvel starfræktar hér á landi. Þessu hefur fylgt ýmsar uppákomur og margt af því sem komið hefur upp. Eru vegna þess að óprúttnir menn sem eru að hlunnfæra fólk sem hefur komið hingað í leit að betri kjörum enn það býr við. þetta hefur gengið svo langt útlendingar eru látnir borga tugi þúsunda fyrir leigu á iðnaðarhúsnæði sem ekki er samþykkt sem húsnæði. Fólk kemur frá ýmsum þjóðum kann því ekki að tala tungumálið sem við tölum og skilur okkur ekki. Enda er það ekki skilda hér á landi að innflytjendur tali okkar tungumál, ef við förum að versla í verslunum í dag þá eru útlendingar upp til hópa í afgreiðslu og margir hverir skila ekki hvað sagt er sumir bregða fyrir sér ensku í litlum mæli.
Vigdís Finnbogadóttir fyrrverandi forseti íslands beitti sig fyrir því að kanasjónavarpið yrði lokað sem fyrst vegna þess að það var töluð enska. Þetta var gert til þess að sporna við því að íslenskt tungumál myndi hverfa. Nú er það algengt að enska er töluð á hluthafa fundum fjármálafyrirtækja ekki íslenska nema hjá Landsbankanum og nokkru fyrirtækjum. Ég segi þarna er verið að leiða inn erlent tungumál inn í landið og íslenskan verður eftir eins og fólkið.
Af hverju er ástandið svona er græðgin orðinn svona sterk að atvinnurekendum er andskotans sama hverjir eru í vinnu til að halda laununum niðri. Undirstöður atvinnuvegur þjóðarinnar er mannaður með erlendu vinnuafli og nú er svo komið að ungt fólk fæst ekki lengur til sjós. Af hverju er ekki hlúð að þessari stétt manna. Mér finnst orðið skelfilegt hvernig er komið fyrir okkur við eru hlustendur í þjóðfélaginu og höfum enginn áhrif stjórnmálamenn hlusta ekki á skoðanir fólks.
Ég tel að vandamálin eigi eftir verða harðari og meiri þegar árin líða. Rétt í þessu var frétt í BBC World News að glæpum í Englandi væri að að fjölga þetta ástand mun versna hvað sem menn bera á móti því. Ég tel að við verðum að taka upp þessa umræðu við getum ekki endalaust látið erlent vinnuafl lækka hjá okkur launin og yfirtekið okkar tungumál. Vegna ákvarðanna misvitra manna sem vilja nota okkur sem fé þúfu. Við því verðum við að bregðast með öllum tiltækum ráðum.
Jóhann Páll Símonarson
15.5.2008 | 18:24
Of langt gengið.
Nú berast þær fréttir að börnin okkar eru í leikskólum og skóla að minnsta kosti 9 -10 tíma á dag er þetta ekki of langt gengið í þessum málum þegar blessuð börnin eru frá kl 8 á mornanna til kl 17 á daginn 5 daga vikuna þá þurfa þau að dvelja í leikskólum og skólanum. Er fólk að átta sig á þessu núna. Þetta ástand er búið að vera í mörg ár og fer versnandi með hverju árinu sem líður. Ég vil benda á hvers vegna er allt í einu farið að ræða þessi mál núna, það má vel vera vegna þess að fólki er farið að blöskra framkoma foreldra við börnin sín sem er dýrasta eign þeirra.
Nú er loksins kominn góð og gild umræða um blessuð börnin okkar, já það er nokkuð til í þessari umræðu sem sýnir virðingarleysið gagnvart börnunum. Sum af þessum börnum eru vakin upp úr kl 07 á morgnana þau drifinn á leikskóla eða í skólann og síðan eru þau þar til þau eru sótt frá kl 16- 17 kannski til kl 18 því sumir foreldrar komst ekki fyrr. Þetta sýnir að leikskólar og skólar eru uppeldistofnanir fyrir foreldra barna. Er þá nokkur hissa á því að líðan barna fer hrakandi vegna þess að umhyggja og væntum þykkja er á hrakólum fólk hefur ekki tíma fyrir sjálfan sig né aðra. Fólk gefur sér ekki tíma til að spila spil, því sjónvarpsglápið tekur yfirhöndina og ræður ferðinni.
Enda er svo komið þegar helgin er komin þá er sett barnaspóla í myndtækið eða horft er á barnatíma í sjónvarpinu til þess að foreldrarnir geta hvílt sig og fengið frið. Svona gengur vikan út í gegn. Ég tel mörg börn sem í dag alast upp vera of feit vegna hreyfingarleysis og agaleysis foreldra sem keppast um að gefa þeim það sem þau vilja pitsu, kók,sælgæti. popp sem lítið dæmi já friðurinn er keyptur á dýru verði.
Jóhann Páll Símonarson.
Viðvera barna í leikskólum lengist | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)