13.7.2008 | 19:20
Aulaháttur stjórnenda Velferðasvið Reykjavíkurborgar.
Í 32 ár hefur Líknarfélagið Risið barist hetjulega með áfengissjúklingum og vímuefnanotendum í áratugi. Hefur veit hjálp, ráðgjöf og athvarf fyrir heimilislausa. Margir hafa fengið hjálp á heimilinu. Sumir hafa spjarað sig upp á eigin spýtur og breytt um lífstíl. Aðrir hafa fallið og ekki náð að rétta sig við aftur, þurft á endurnýjaði meðferð að halda og byrjað uppá nýtt. Baráttuunni er aldrei lokið. Einstaka einstaklingar hafa ekki þolað við hörðum raunveruleikanum og horfið úr þessum heimi fyrir eigin hendi langt um aldur fram. Samtök áhugafólks um áfengis og Vímuefnavandan SÁÁ starfa á svipuðum grundvelli. Og hafa það gert í ára tugi.
Nú vill svo vel til að Velferðasvið Reykjavíkurborgar undir forystu Jórunnar Frímannsdóttur ætlar að semja við Heilsuverndarstöðina ehf/ Alhjúkrun um rekstur á nýju búsetuúræðum með félagslegum stuðningi. Það er með ólíkindum að það sé ekki samið við Líknarfélagið Risið, SÁÁ, Samhjálp sem eru með fagaðila og hafa um áratuga skeið séð um að hjálpa fólki sem hefur farið á ranga braut í lífinu. Ekki veit ég hvað liggur að baki þessum gjörningi að ekki sé haft samráð við þessa aðila.
Vinavæðingin varð ofar í goggunarröðinni. Ekki var litið á fagaðila sem hafa sérhæft sig í þessum hlutum og hafa áratuga reynslu að meðhöndla fólk sem hefur farið villu vegar. Stað þess er samið við einkafyrirtækið, sem var eigu Jórunnar Frímannsdóttur enn hún segir sjálf að hún hafi selt þetta fyrirtæki. Íbúar Hólavaðs hafa mótmælt þessu aðferðum að eikafyrirtæki sé að koma með veikt fólk inn í skipulagt íbúðarhverfi. Ekki voru þessi áform tilkynnt íbúum fyrr enn þeir heyrðu þetta í kvöldfréttum sem er borgarfulltrúum til vansa. Síðan hafa íbúar brugðust reiðir við þessum áformum Velferðaráðs og hófu undirskriftir á meðal íbúa. Voru þær afhentar borgarstjóranum í Reykjavík Ólafi F Magnússyni fyrir stuttu. Nú er að sjá hvað borgarstjórinn í Reykjavík gerir. Hann hefur vald til að stöðva þennan gjörning og færa þetta mál í hendur fagaðilum, sem hafa sér þekkingu á þessum málum. Og hafa glímt við þessi mál í áratugi án þess að fá skilning frá Ríkisvaldinu í formi fjárheimilda til reksturs enda hefur aðilum fjölgað sem hafa þurft á hjálp að halda.
Jóhann Páll Símonarson.
Úrræðið verður kynnt íbúum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
9.7.2008 | 00:03
Hvert eiga skuldarar að leita.? Réttsýni í sínum málum.
Nýlega var í kvöldfréttum 365 miðla þar var fjallað um skuldara sem lenda í ógöngum ef greiðsluseðill er ekki greiddur á umsömdum tíma. Ég verð að segja mér blöskraði þessi umfjöllun þegar dæmin voru lögð á borðið. Greiðslan var jafnvel komin í 4 falt meira en hún var í fyrstu. Það má segja að það hafi verið smurt vel á, ekki eru bankarnir undanþegnir hrottalegum álögum sem þekkjast ekki á byggðu bóli nema á Íslandi. Þar þrífst þessi ribbaldaháttur ekki einn einasti, Alþingismaður sem ég veit um hefur gert athugasemd á hinu háa Alþingi við endalausum greiðslur sem neytendur þurfa að borga í formi allskonar gjalda. Þá vaknar þessi spurning hvert eiga skuldarar að leita? til að ná sínum sjónarmiðum fram? Sá hin sami á ekki hanbært til að leita réttar síns til lögmannsstofu því kostnaður er skuldara ofviða. Þetta vita þeir sem innheimta skuldir, Þetta vita bankarnir. Þess vegna beita þeir skuldara þeim ofurgjöldum sem eru nú í dag og er nánast að rústa heimilum og fjölskyldum sem hafa byggt sér þak yfir höfuðið. Það eru ekki glæsileg framtíð hjá ungu fólki sem vil að sjálfsögðu vera í sínu eigin húsnæði með sýna fjölskyldu.
Björgvin G Sigurðsson sagði, s,l vetur að seðilgjöld og sanngjarnir viðskiptahættir ættu að vera í viðskiptum, hann sagði líka að að innheimta seðilgjalda væri óheimil að hans mati. Hvað hefur skeð síðan í þeim málum?, Ekki neitt þau halda áfram. Sem dæmi innheimtir Síminn 250 krónur seðil gjald á mánuði af hverjum reikningi sem hann sendir út. Sem gerir 3,000 krónur á ársgrundvelli. Ef fólk greiðir reikninga í banka þá er ekki sama hvað banka fólk borgar sína reikninga. Tökum dæmi af reikningi sem er borgaður var í SPRON og reikningurinn er á eindaga 2 Júlí borgaður 4 júlí dráttavextir 43,00 krónur. Sami gjaldagi í Kaupþingsbanka sömu forsendur Áfallnir dráttavextir 129 krónur Kostnaður og Gjöld 250 krónur sem gera 379 krónur. Mismunur 336 krónur sem er munur á þessum 2 bönkum. þetta voru ekki stórar upphæðir rúmar 13,000 krónur reikningur. Þetta er smá sýnishorn hvernig þessir aðilar haga sér og komast upp með það. Þess vegna fagnaði ég umræðunni hjá 365 miðlum hún vakti fjölda skuldara og þá sem skulda ekki neitt upp við vondan draum. Enda hefur þessi umræða verið á vinnustöðum að undaförnu og mikið rætt um. Á meðan ríkir þjóðarsátt í nýgerðum kjarasamningum þrátt fyrir það hækkar allt sem veltingi getur valdið, þar á meðal vextir hjá bönkunum í landinu það stendur ekki á þeim að vera með. Ef Sjálfstæðismenn ætla að vera með í næstu kosningum þá verða þeir að opna á frjálsa samkeppni og hleypa hér inn í landið viðskiptaaðilum sem vilja stunda hér heiðaleg viðskipti.
Það gengur ekki upp að vera með Tryggingarfélög, Banka, Olíufélög, Skipafélög, og Verslun sem eru á sömu hendi það gengur ekki upp. því samtryggingin er svo mikill að hún er að sliga Íslensk þjóðfélag í herðar niður. Þess vegna verður Sjálfstæðisflokkurinn að opna fyrir erlenda samkeppni til hagsbóta fyrir íslenskt Þjóðfélag. Stað þess að hlusta á þessa síbylju Samfylkingarmanna sem vilja inn í Evrópusambandið og eru þar með að selja land og þjóð. þetta er stefna Samfylkingarmanna því þessir ungu drengir sem gaspra sem mest, hafa aldrei unnið með skóflu og haka þess vegna vita þeir ekkert hvernig lífið og tilveruna gengur fyrir sig. Því þeir hafa fengið allt gefins af foreldrum sem hafa fært allt upp í hendurnar á þessum óreyndu unglingum án þess að þeir hafi þurft að hafa fyrir lífinu. það er ekki nóg að vera menntaður á bókina, því mönnum vantar reynslu og þekkingu á ýmsum sviðum. Sjálfstæðismenn opnum fyrir frjálsa samkeppni þá mun þjóðin njóta gæðanna.
Jóhann Páll Símonarson.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 00:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.7.2008 | 22:15
Vatnið á Íslandi er eftirsótt víða um heim.
Miklar umræður eru um staðsetningu og uppsetningu á vatnsverksmiðjum, sem fyrirhugað er að byggja á næstunni víðsvegar um landið. Ein af þessum fullkomnu verksmiðjum, sem fyrirhugað er að reisa í Þorlákshöfn. Til þess að hún geti hafið störf er staðan sú í dag, að umhverfisráðherra Þórunn Sveinbjarnardóttir stendur í vegi fyrir að þessi verksmiðja rísi, vegna þess að umhverfisráðherra, vill að verksmiðjan fari í umhverfismat. þvílík þvæla á meðan bíður eigandi, bæjarfélagið og íbúar eftir svörum, hvort framkvæmdir geta hafist sem fyrst og skapað þar með sveitafélaginu og íbúum tekjur, í sínu byggðalagi. Það sem ég hef aflað mér upplýsingar um er um mjög stóra og fullkomna verksmiðju. Sem hefur samið um alla framleiðslu sína, sem nemur þúsundir tonna af vatni til notkunar í hinum stóra heimi.
Eftir að þessi aðili byrjaði á sínum útflutningi þá hafa margir vilja taka upp sömu hugmynd og þessi eigandi. Því til staðfestingar eru uppi hugmyndir að flytja ferskvatn út í stórum tankskipum og flytja það síðan á markað. Mér hrís hugur við þeirri hugmynd manna sem vilja hafa þann háttinn á. Ég velti þeirri hugmynd að gömul olíutankskip eða eiturefna tankskip sem uppfylla ekki lengur kröfur verði látin í þetta verkefni því nóg er til af þessum rústdöllum sem liggja við festar víðvegar um heiminn. Ef síðan kæmi upp mengun í þessum farmi þá værum við í mjög slæmum málum og markaðurinn myndi hrynja og yrði þess valdandi að fólk myndi ekki kaupa þetta vatn framar frá Íslandi og þar með væri þessi markaður ekki lengur til.
Þess vegna eigum við að pakka vatninu í neytenda umbúðir eins og gert er í dag. Eftirspurn er mikill. Í síðustu viku fóru um 1 þúsund og sexhundruð tonn á erlendan markað og mun þessi farmur vera komin í notkun á næstu vikum. þetta er stórkostlegt framtak hjá þessum aðila. Ég tel að Íslendingar eigi að vanda til verka varandi framleiðslu á íslensku vatni með því er hægt að skapa atvinnu fyrir fólkið í landinu og tekjur sem myndu renna til Íslenska ríkisins af þessu nýja atvinnuvegi íslendinga.
Ég vara við útflutningi á fersku vatni í gömlum riðdöllum sem standast ekki kröfur um meðferð á ferskvatni það gæti eyðilagt markaðinn strax. Þess vegna megum við ekki láta skemmda varga komast upp með þessa hugmynd. Hana verður að stöðva í fæðingu.
Jóhann Páll Símonarson.
10.6.2008 | 22:50
Hafa fréttamenn Morgunblaðsins ekki áhuga á þessum málum.
Það vekur undrun þegar farþegaskip kemur til landsins með erlenda ferðamenn þá er ekki hægt að tollafgreiða Norrænu sem siglir á milli hafna erlendis með viðkomu á Seyðisfirði. Norræna er ekkert að koma tollvörðum á óvart, vegna reglulega siglingar hennar sem hafa verið til Seyðisfjarðar undanfarin ár. Með erlenda farþega sem eru að kynna sér land og þjóð, og skapa gjaldeyristekjur fyrir íslendinga og atvinnu sem þessu fylgir. Þá er ekki hægt að tollafgreiða skipið vegna þess að skipið sé 3 tímum á undan áætlun og tollverðir og fíkniefna hundar á leiðinni í flugi. Segir deildarstjóri tollgæslunnar á Seyðisfirði. Ég verð að segja hverskonar vinnubrögð eru þetta á hálfu Tollgæslunnar. Geta yfirmenn Tollgæslunnar boðið erlendum farþegum upp á þessi vinnu brögð sem eru ekki manni bjóðandi, fyrir utan svona vinnubrögð, sem þekkjast aðeins í banannalýðveldum ekki hjá síðmenntuðum þjóðum. Það virðist eins og þessi tollgæsla sé stjórnuð af misvitrum mönnum sem hafa ekki þekkingu eða vit hvað þeir eru að framkvæma.´
Maður spyr sig hvers konar fólk er þetta sem ráðið er til tollgæslunnar. Ég helda að hluta af þessu fólki sem er ráðið er. Valdi ekki sínu starfi vegna vankunnáttu og rangra vinnubragða sem felast í því að elta menn með sígarettupakka, hálfa flösku eða nokkrar bjórdollur sem skipa ekki máli. Á meðan flæða eiturlyf inn í landið. Já þetta eru röng skilaboð sem yfirstjórnendur gefa leyfi á. Á meðan ganga perrar tollgæslunnar lausir sem nýlega voru sakaðir um að villa á sér heimildum á íslenskum bar í miðborg Reykjavíkur. Þegar þeir birtust skyndilega undir áhrifum áfengis í tollara gallanum, sýndu tollarapassa og sögðust vera í leit að fíkniefnum. Í framhaldinu óskuðu þeir að viðkomandi kona myndi setja hendur upp, til að auðvelda leit. Já viti menn þessi viðkomandi tollvörður þuklaði á hennar líkama sem er með ólíkindum að það skuli ráðast perra í svona störf.
Ég tek það fram það eru til mikið af góðum tollvörðu sem eru með annað huga far enn þessi aular sem ég talaði hér um. Það virðist þegar þetta unga fólk sem kemur út úr þessum tollvarða skóla sé með vitlaust veganesti út í lífið. Vinnubrögð tollgæslunnar í Reykjavík eru til skammar þeim væru nær að efla þjónustuna og snúa sér að vöruflæðinu stað þess að elda ólar við það sem skiptir ekki máli.
Það er skilda Tollgæslunnar að auka þjónustu við farþegaskipa og önnur för. Stað þess að eltast við ólar við bjórdollur sem skipa ekki máli. Ég tel það tíma til kominn að blaðamenn fari nú að fjalla um tollgæslu í landinu hún er til háborinna skammar. Á meðan er ráðist á lögreglumenn í störfum og allir gagnrýna störf þeirra sem eru að sýna skildum sínum. Þá eru blaðamenn og sjónvarpsfólk tilbúið að gagnrýna það og ekki stendur á því að æsingar blaðamenn taki undir þau orð. Þeim væri nær að fylgjast með vinnubrögðum Tollgæslunnar í Reykjavík hvernig hennar vinnubrögð eru.
Jóhann Páll Símonarson.
Norræna á undan áætlun | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
9.6.2008 | 23:34
Gústaf verður að segja rétt frá.
Ég tel þessi þessi ummæli Gústaf vera þvættingur, vegna þess, enn er fluttur óunnin fiskur á markað vikulega, sem nemur þúsundir tonna á mánuði til Bretlands fyrir utan allan frosna fiskinn sem fluttur er út í gámum sem nemur hundriði gáma á mánuði og ekkert lát er á þeim flutningum. Fyrir utan allan samdrátt í veiðum hafa útgerðamenn fengið betra verð fyrir sína afurðir það hefur aldrei skeð í sögunni. Íslenski fiskurinn er sá besti sem er til í heiminum í dag og er eftirsóttur um allan heim hvert sem við förum. Íslenskur fiskur hefur ætíð verið vinsæll meðal Bresku þjóðarinnar og er mjög eftir sóttur í dag og verður svo um ókomna tíð.
Ef ástandið væri með þessum hætti, þá gætum við ekki verið að flytja út óunnin gáma fisk vikulega til Bretlands. Ef síðan ætti að geyma hann þar. Ég veit til þess að margir Breskir fisverkendur eru ólmir að kaupa þennan fisk frá okkur og fá minna af honum vegna takmarkanna á útflutningi. Ég tel þetta vera áróðurs bragð frá útgerðamönnum sem vilja láta sjómenn taka meiri þátt í rekstri útgerða á Íslandi því næsti samningafundur er á morgun þar verður röflað um ekkert. Það mun verða niðurstaða fundarins á morgun, og útgerðamenn halda áfram að væla eins og Gústaf.
Jóhann Páll Símonarson.
Erfiðara að selja fiskinn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Á fögrum sumardegi er alltaf gaman að vera til og keyra út og suður og fara í sumarbústað eða gera annað sem fólki hentar hverju sinni. Enn í dag gekk okkar fyrrverandi oddviti Sjálfstæðismanna og fyrrverandi borgarstjóri Vilhjálmur Þ Vilhjálmsson að eiga sína heitt elskuðu Guðrúnu Kristjánsdóttur þau veru gefin saman í dag í Grafavogskirkju af séra Vigfúsi Árnasyni presti í Grafavogi. þetta var falleg athöfn og þegar Vilhjálmur játið trúnað sinn við Guðrúnu og hún við Vilhjálm. Já hvað þetta var yndislegt þegar búið var að gefa þau saman. Það skein sól í augum þeirra beggja og hamingjan var æðislega þegar þau gengu út kirkjugólfið efir að þau höfðu verið gefin saman í hjónaband.
Guðrún og Vilhjálmur ég óska ykkur innilega til hamingju með brúðkaupsdaginn ykkar. Megi guð og gæfa vera með ykkur alla tíð.
Jóhann Páll Símonarson.
7.6.2008 | 17:05
Sigrún Brá sundkona úr Fjölni er frábær.
Sigrún Brá Sverrisdóttir sundkona úr íþróttafélaginu Fjölni er fyrsta kona frá þessu félagi sem nær því Ólympíulágmarki í 200 metra skriðsundi hún synti á tímanum 2.03.35 sem er frábær árangur hjá þessari ungu konu. Ekki nóg með það hún tvíbætti íslandsmetið í greininni á sama degi. Sigrún Brá hefur æft mjög vel alla daga í vetur og hefur stundað nám með þessum æfingum sem verður að teljast einstakur árangur. Enda er hún í fanta formi og á eftir að bæta sig þegar frammí sækir.
Það verður gaman að fylgjast með Sigrúnu Brá Sverrisdóttur þegar 5 íslenskir sundmenn fara á Ólympíuleikana í Peking sem hefjast í ágúst á þessu ári. Þessi stóra stund hennar eftir þrotlausar æfingar hafa nú skilað sér og Grafarvogsíbúar eru í sjöunda himni yfir þessum frábæra árangri hennar og íþróttafélagsins Fjölnis sem hefur staðið þétt að baki henni ásamt foreldrum hennar og fjölskyldu sem eiga bestu þakkir fyrir allt.
Sigrún Brá við íbúar í Grafarvogi óskum þér og fjölskyldu þinni, og íþróttafélaginu Fjölni til hamingju með með þinn frábæra árangur sem er einstakur.
Jóhann Páll Símonarson.
Sigrún Brá fer til Peking | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
6.6.2008 | 18:21
Ekkert samið á þessu ári.
Kjarasamningar sjómanna eru lausir og samningafundir hafa verið haldnir, án þess að stærsta stéttafélag sjómanna Sjómannafélag Íslands sé með í þessum viðræðum, um nýjan kjarasamning. Vegna þess að Sjómannafélag Íslands hefur sagði sig úr Sjómannasambandi íslands, síðan hefur framkvæmdarstjóri og formaður Sjómannasambandsins, reynt ítrekað að bregða fyrir þá fæti, og hafa haft í hótunum við útgeðamenn ef Sjómannafélag íslands kæmi inn í þessar viðræður, munu þeir standa upp og fara af fundi. Svona hefur þetta gengið að undanförnu.
Það eru ýmis mál sem þarf að ræða, útgerðamenn vilja að sjómenn auki þátt sinn í olíu kostnaði sem kemur ekki til greina að sjómenn fari að borga með sér. það er orðið skrýtið að sjómenn þurfi ætíð að taka þátt í olíukostnaði til að fá vinnu og minka þar með aflahlut þeirra. Síðan eru það slysamál og veikindaréttindi sem þeir vilja skerða enn frekar. Það er með ólíkindum hvernig útgerðamenn koma fram við sjómenn. Útgerðamenn vilja ekki einu sinni halda sig við fyrri samning sem síðan myndi njóta sömu hækkunar og almennir kjarasamningar sem hafa verið gerðir. Þess vegna verður ekkert samið á þessu ári, tíminn mun fara í að kjafta út og suður um ekki neitt. Á meðan bíða forustu menn Sjómannafélags Ísland eftir að að verði kallað í þá og þeir hafðir með í ráðum. Annars verður ekkert af samningarviðræðum og samningum.
Það sem er alvarlegt í þessu máli hvað Sjómannasamband Íslands, Starfsgreinasambandið, og ASÍ berjast hatramlega gegn stéttafélagi sjómanna Sjómannafélagi Íslands sem vill vera eitt og sér og semja fyrir sína félagsmenn. Að það skuli vera stéttafélög sem berjast innbyrðist er afar slæmt mál fyrir verkalýðsfélöginn og verkalýðinn í heild. Sem minnir mann á Mafíu sem vill stjórna og ráða öllu hvernig málum er háttað ég tel þetta ógeðlegar aðfarir þessa samtaka sem á ekki að líða.
Enn fremur er ég með bréf undir höndum frá Starfsgreinasambandi Íslands undir höndum sem sannar þessa aðför að Sjómannafélagi Íslands bréfið er stílað þann 13 maí 2008 og undirritað af Skúla Thoroddsen framkvæmdarstjóra Starfsgreinasamband Íslands. Sem þyrfti að komast til fjölmiðla til að sýna hvernig þessi félög haga sér.
Jóhann Páll Símonarson.
Sjómenn við samningaborðið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
5.6.2008 | 02:50
Viðbjóðslegar aðfarir gegn Vilhjálmi Þ Vilhjálmssyni.
Viðbjóðslegar aðfarir gegn sitjandi oddvita Sjálfstæðismanna í borgarstjórn. Ég hef aldrei upplifað annað eins þegar borgarfulltrúar og alþingismenn í sama flokki og öðrum flokkum hafa stundað lengi einelti, á hendur manni sem hefur ekkert gert af sér nema að vinna sín verk að heilindum fyrir borgarbúa. Sumir bloggarar hafa tekið sér vald í hendur að líkja Vilhjálmi Þ Vilhjálmssyni við einn spilltasta leiðtoga Ítalíu. Já menn taka sorann frá öðrum og bera það á milli manna, fólkið tekur undir, Viljum við Íslendingar hafa svona þjóðfélag, að fólk getið tekið eina persónu af lífi án þess að þurfa að svara fyrir það. mér undrar ekki hvernig ástand þjóðmála er, ef menn geta trekk í trekk misnotað aðstöðu sína með þessum hætti. Það er ekki fagnaðarefni þegar alþingismenn í Sjálfstæðisflokknum eru með gífuryrði á hendur Vilhjálmi Þ Vilhjálmssyni, nokkrir af þeim þora ekki að koma undir nafni vegna ótta að skaða sitt mannorð. Því líkir skúrkar sem þessir aðilar eru.
Í gær þann 4 júní 2008 er fréttaskýring í mbl á bls 22" eftir Pétur Blöndal." Þar kemur fram að borgarstjórnarflokkur sjálfstæðismanna sé í úlfakreppu þetta er haft eftir þingmanninum Kristjáni Þór Júlíussyni,, Þetta eru þung orð frá Kristjáni sem er í sama flokki og Vilhjálmur Þ Vilhjálmsson þessir félagar hafa starfað lengi saman að sveitastjórnarmálum ekki veit ég annað að það samtarf hafi gengið vel. Nú allt í einu er ekki not fyrir Vilhjálmur Þ Vilhjálmsson. Kaldar kveðjur frá samstarfsmanninum Kristjáni Þór Júlíussyni sem tekur þátt í eineltistilburðum misvitra manna sem reyna að ræna mannorði manns sem hefur ekkert gert neinum nema gott.
Síðan heldur sama kerfið áfram eins og sést hér að neðan, þrjú gefa kost á sér í borgarstjóraembættið. Þannig hefur það verið frá því að þessir aðilar voru kjörnir í borgarstjórn af íbúum Reykjavíkurborgar. Það eru fleiri sem eiga hlut af þessari herferð geng sitjandi oddvita sjálfstæðismanna Vilhjálmi þ Vilhjálmssyni og reyna allt til að koma honum burtu með öllum tiltækum ráðum jafnvel með því að standa straum að kostnaði við skoðanakannanir?. Vilja borgarbúar þessa leikflettu borgarfulltrúa sjálfstæðismanna sem þykkjast ekkert gera, og eru í einkar samtölum út í bæ. Nei ég mun ekki trúa því að borgarbúar muni samþykkja þessar aðferðir skúrka sem reyna að fótum troða nafn Vilhjálms Þ Vilhjálmssonar. Þess vegna tel ég útilokað að þessir aðilar verði í forsvari fyrir sjálfstæðismenn, það þýðir ekkert fyrir sjálfstæðismenn að fótum troða lýðræðið, með því að losa sig við Vilhjálmur Þ Vilhjálmsson sem er rétt kjörin oddviti og mun því taka við embætti borgarstjóra á næsta ári eins og samkomulag gerir ráð fyrir.
Verði niðurstaða sú að Vilhjálmi Þ Vilhjálmssyni verði bolað burtu án skýringa, er ég hræddur um að margt geti skeð sem gæti komið Sjálfstæðisflokknum í slæma stöðu. Sem síðan gætu raddað víðar um þjóðfélagið og orðið formanni flokksins skeinu hætt. Eins og skeði síðast þegar okkar félagi og vinur Albert Guðmundsson heitin var rekin úr ríkistjórninni, af þorsteini Pálsyni sem var þá forsætisráðherra. Sem varð til þess að Þorsteinn Pálsson féll í atkvæðagreiðslu um formannskjör í Sjálfstæðisflokknum og nýr formaður Davíð Oddsson tók við flokknum og tryggði þjóðinni ávöxt og velgengni sem lengi verður haft á vörum manna. Þess vegna vara ég við að hrófla verði við Vilhjálmi Þ Vilhjálmssyni, hann á að sitja þar til kjörtímabili líkur. þá geta menn tekið afstöðu hver eigi að vera oddviti sjálfstæðismanna, Sýnum Vilhjálmi Þ Vilhjálmssyni virðingu hann á ekki þetta skilið frá Sjálfstæðismönnum, eða öðrum andstæðingum, sem hafa reynt stöðug að koma höggi á hann og nú síðast undir beltistað. Það skal getið Vilhjálmur Þ Vilhjálmsson á marga góða vini sem berjast með honum þótt móti blási. Ef menn vilja orustu þá verður hún háð þá munum við sjá hverjir verða undir í þeirri baráttu.
Jóhann Páll Símonarson.
Þrjú gefa kost á sér í borgarstjóraembættið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (17)
31.5.2008 | 21:03
Hvaða stjórnmálaflokkur borgar þessa skoðunarkönnun.?
Það er með óllíkindum hvernig sumir stjórnmálaflokkar geta lagst lágt til þess að draga athyglina frá raunveruleikanum. Þeir gera það með því að sverta mannorð manna með öllum tiltækum ráðum. þetta veldur því að trú manna, á ákveðni persónu lækkar tíma bundið. Enn þegar fólk hefur séð í gegnum þessa áróðurs meistara þá kemur annað í ljós, sem borgarbúar í þessu tilfelli munu sjá þegar fram líða stundir. Nýlega var gefin út afkomu tölur hvernig Reykjavíkurborg væri rekin í tíð Vilhjálms Þ Vilhjálmssonar borgarstjóra. Þegar þessir reikningar voru skoðaðir. Þá kom í ljós að mikill hagnaður var á rekstri borgarinnar sem verður að teljast undraverður árangur. Sem enginn fjölmiðill fjallar um ekki einu sinni Morgunblaðið sem er stærsti fjölmiðillin í landinu.
Ég get tekið undir eitt borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins hafa ekki verið iðnir við að skrifa greinar og upplýsa borgarbúa um hvað er í gangi hver er staða mála og halda fundi með borgarbúum sem dæmi. Og taka á móti þeim sem stunda áróður af versta tagi með lygaþvætti varandi stöðu mála innan borgarkerfisins. Það er ekki lýðandi þegar borgarfulltrúinn Sigrún Elsa Smáradóttir hefur trekk í trekk farið villur vegar gagnvart Orkuveitu Reykjavíkur sem lítið dæmi. Ég ætla ekki að elda ólar við kjörna borgarfulltrúa sem fer með rangt mál, það er Sigrúnu Elsu Smáradóttur til vansa hvernig hún misnotar sína aðstöðu, sem mun ekki verða henni til framdráttar í sínum yfirlýsingum.
Það eru fleiri áhróður meistarar sem fara með rangt mál og það nýlega var 1 varafulltrúi borgarstjórnarflokks Samfylkingar Dofri Hermannsson sem bloggaði óhróður um Vilhjálm Þ Vilhjálmsson nýlega. þar fór óróðurs meistarinn með rangt mál, eins og fulltrúar Samfylkingar og fleiri sem ég gæti nefnt. Enn ég ætla ekki að elta ólar við þetta fólk sem getur ekki einu sinni staðið fyrir sínu með því að segja satt og rétt frá. Þess vegna er þessi skoðunarkönnun hreint bull. Ég hefði gaman af því að vita hvort meirihluti þess fólks sem spurt var væri í Samfylkingunni, Vinstri grænum, eða í framsókn. Ef það reynist satt er þessi skoðunarkönnun bull og þvæla og ekkert annað enn áróður af verstu tegund. Ég mun ekki trúa því að borgarbúar vilji slíka fulltrúa og flokka í borgarstjórn á næsta kjörtímabili.
Jóhann Páll Símonarson.
Fylgi D-lista aldrei minna | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (25)